Fréttablaðið - 27.10.2007, Side 1
OPIÐ LAUGARDAG KL:11-16
DELTALIGHT
LISTIR
Fólkið í fjörunni
HÖNNUN
Úr hjólabretti í fatahengiINNLIT
Sálin á heima við hafið
hús&heimiliLAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 2007
Von í miðbænum Tekur ballettspor meðan
hún er í símanum
Fleiri bækur verða gefnar
út fyrir jólin nú en áður. Þegar
hefur 801 rit verið skráð í gagna-
grunn Bókatíðinda og er þá ekki allt
talið. Nokkrir útgefendur tilkynna
ekki útgáfurit sín til Bókatíðinda og
má því gera ráð fyrir að útgefnir
titlar séu enn fleiri.
Að sögn Kristjáns B. Jónassonar,
formanns Félags íslenskra bóka-
útgefenda, voru 677 titlar í Bóka-
tíðindum í fyrra og árið 2005 voru
þeir 660.
Áætlað er að Bókatíðindi komi út
í annarri viku nóvember en þau
hafa aldrei verið stærri, verða nú
266 blaðsíður. Lögum samkvæmt
annast prentsmiðjur skylduskil á
útgefnum ritum til valdra bóka-
safna en stundum hafa verið brota-
lamir á að staðið sé við þá lagalegu
skyldu.
Lokatölur um útgáfu birtast í
Íslenskri bókaskrá, sem tekur til
allra útgefinna rita sem sækja um
svokölluð ISBN-númer. Samkvæmt
henni hafa útgefin rit hér á landi
verið að meðaltali 1.500 á ári en
voru flest árið 2000, um 1.800. Þá
eru námsbækur ekki taldar með.
Íslenskum bókaútgáfum fer
fjölgandi. Í Félagi íslenskra bóka-
útgefenda eru á fimmta tug útgef-
enda en af þeim eru um fjörutíu
virkir. Útgefendur í Bókatíðindum
eru nær hundrað. Þá hefur
kiljuútgáfa og erlent samprent á
barnabókum aukist mikið og bóka-
útgáfa fyrir erlenda ferðamenn er
æ meiri. Að sögn Kristjáns er einn
útgefandi áberandi stærstur en ef
öll fyrirtæki sem eiga aðild að hinu
nýja Forlagi eru talin saman eru
útgefin rit á þeirra vegum vel yfir
annað hundrað.
Bætist í bókaflóðið
Fleiri bækur verða gefnar út fyrir jólin nú en áður. Þegar hefur 801 rit verið
skráð í gagnagrunn Bókatíðinda. Í fyrra voru þau 677 og árið þar á undan 660.
„Ég skildi ekki hvað orðið
negri þýddi en ég vissi að
krakkarnir kölluðu mig það til
að særa mig,“ segir Bryndís
Eiríksdóttir, sem telur endur-
útgáfu bókarinnar Tíu litlir
negrastrákar mistök.
Ráðist var á eiginmann
Bryndísar af þeirri einu ástæðu
að hann er dökkur á hörund. Þau
eiga saman tvö börn og óttast
Bryndís að þau verði fyrir
svívirðingum vegna bókarinnar.
„Það er rætt um prentfrelsi. Það
er vissulega mikilvægt en mér
þykir mannvirðing mun
mikilvægari, og þessi bók
gengur þvert á það mikilvægi,“
segir hún.
Óttast að börn
sín verði hædd
Maður lést í hörðum árekstri
tveggja bíla á norðanverðri Holta-
vörðuheiði á áttunda tímanum í
gærkvöld.
Fimm voru í bílunum tveimur og
voru slasaðir fluttir til aðhlynning-
ar á Landspítalann með þyrlu Land-
helgisgæslunnar.
Veður var slæmt á heiðinni og
mikil hálka á veginum. Loka þurfti
fyrir umferð um Holtavörðuheiði á
meðan lögregla og sjúkralið
athöfnuðu sig. Fólk beið í tugum
bíla beggja vegna slysstaðarins
eftir að vegurinn opnaði á ný.
Lögregla var kölluð út um
klukkan hálf átta og fóru lögreglu-
menn frá Borgarnesi, Búðardal,
Blönduósi og Hólmavík á vettvang.
Læknir kom frá Hvammstanga.
Eftir að vegurinn hafði verið
lokaður í rúma klukkustund var
bílum hleypt um hann í hollum.
Veginum var svo lokað aftur þar
sem umferðin hindraði rannsókn á
tildrögum slyssins.
Ekki fengust nánari upplýsingar
um slysið hjá lögreglu áður en
blaðið fór í prentun í gærkvöldi.
Banaslys á Holtavörðuheiði