Fréttablaðið - 27.10.2007, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 27.10.2007, Blaðsíða 2
Birgir Andrésson myndlistar- maður lést í Reykjavík á fimmtudag. Hann var 52 ára að aldri. Birgir var fæddur í Vest- mannaeyjum 6. febrúar 1955, sonur hjónanna Andrésar Gestssonar og Sigríðar Jónsdóttur, sem er látin. Hann lærði myndlist við Myndlista- og handíðaskól- ann frá 1973 til 1977 og fór til framhalds- náms í myndlist við Jan van Eyck-listaháskólann í Maastricht í Hollandi frá 1978 til 1979. Birgir hélt tugi einkasýn- inga um ævina og opnaði nýlega sýningu í Safni ásamt Rögnu Róbertsdóttur sem stendur enn. Í haust var hann tilnefndur til Íslensku sjónlistaverðlaunanna fyrir yfirlitssýningu á verkum sínum í Listasafni Íslands á síðasta ári. Hann lætur eftir sig unnustu, Helgu Magnúsdóttur, soninn Arnald Frey og sonarsoninn Ingólf Breka. Birgir Andrés- son látinn „Við stöndum frammi fyrir þeirri ákvörðun hvort vísa eigi fólki út í kuldann eða hýsa það. Vandinn liggur ef til vill í því að við erum of brjóstgóðir og þrýstingurinn er þess vegna ekki nógu mikill á sveitarfélögin,“ segir Stefán Eiríks- son, lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins. Hann segir það fyrirkomulag að nota fangaklefa til að hýsa vegalaust fólk ekki þekkjast víða um heim. Fulltrúar tíu aðila funduðu í gær um aðstæður heimilislausra. Fram kom að vandamálið leyndist víða og væri á höndum margra, sem ynnu þó ekki saman. Fyrir kemur að heimilislausir einstaklingar eru útskrifað af spítala án þess að annað úrræði taki við. Gríðarlegur fjöldi fólks leitar til Hjálparstarfs kirkjunnar, Rauða krossins og Samhjálpar og lögreglunnar. Félagið Geðhjálp átti frumkvæði að fundinum og segist framkvæmdastjóri samtakanna hafa undir höndum lista yfir 107 einstaklinga sem eigi í engin hús að venda, flestir geðsjúkir. „Á fundinum gátu flestir aðilar staðfest að sú tala er nærri lagi, meðal annars voru forsvarsmenn Landspítalans og lögreglunnar sammála því,“ segir Sveinn Magnússon. „Það skortir hvorki þekkingu né fjármagn. Það sem vantar er samstarf milli þeirra sem hafa puttann á púlsinum. Yfirvöldum ber að setjast niður og komast að því hver hin raunverulega þörf er og finna rétt úrræði.“ Þó nokkur fjöldi einstaklinga nýtur engrar félags- eða heilbrigðisþjónustu. Einstaklingar með geðraskanir sem eru auk þess fíklar eru dæmi um það. „Þeir eru of geðveikir til að fara í meðferð og í of mikilli neyslu til að fara á geðdeild. Það sem þarf er fleiri heimili með vakt allan sólarhringinn. Þannig verður þjónustan mun skilvirkari. Á heimilinu við Miklubraut 20 hefur náðst góður árangur og einstaklingarnir eru farnir að lifa góðu lífi,“ segir Heiðar Guðnason, forstöðumaður Samhjálpar. Beðin um viðbrögð segir Björk Vilhelmsdóttir, formaður velferðarráðs Reykjavíkurborgar, að til standi að auglýsa eftir samstarfsaðilum til að reka búsetuúrræði fyrir um tuttugu heimilislausa einstaklinga. „Við erum að vinna starfs- og fjárhagsáætlun ráðsins og munum virkilega taka á þessum málum.“ Lögreglan hýsir þá sem aðrir vísa frá Upplýsingar Geðhjálpar benda til að 107 einstaklingar eigi í engin hús að venda. Þónokkur fjöldi nýtur hvorki félags- né heilbrigðisþjónustu. Samstarfi þeirra fjölmörgu sem koma að málum heimilislausra er ábótavant. Þorleifur, ætlið þið að hafa þetta eftir dúk og disk? Alcoa Fjarðaál harmar að verklagsreglum hafi ekki verið fylgt út í hörgul þegar tveimur konum var sagt upp störfum hjá fyrirtækinu í síðustu viku. „Brugðist hefur verið við til að tryggja að þeim verði fylgt í framtíðinni, komi til svipaðra aðstæðna, enda lítum við svo á að góðir starfsmenn og vinnuandi séu mikilvægasta auðlind fyrirtækisins,“ segir í yfirlýsingu. Fréttablaðið greindi frá því í gær að konunum hefði verið sagt upp fyrirvaralaust og án viðvör- unar. Annarri var sagt að hún gæti ekki lært á tæki, hinni að hún hefði ekki fallið í hópinn. Tryggir að regl- um verði fylgt Dr. Sigurgeir Þorgeirsson búfjárfræðingur verður ráðuneytisstjóri sjávarút- vegs- og landbúnaðarráðuneytis frá og með næstu áramótum. Sigurgeir, sem lauk doktorsprófi frá Edinborgarháskóla 1981, lætur þá af starfi framkvæmdastjóra Bændasamtakanna en því hefur hann gegnt í tólf ár. Hann var og aðstoðarmaður Halldórs Blöndal landbúnaðarráð- herra frá 1991 til 1995. Þá hefur Sigurgeir starfað sem sauðfjárræktarráðunautur. Stýrir nýju ráðuneyti Meirihluti sóknarpresta í Reykjavík hyggst nýta sér heimild Kirkjuþings til að staðfesta samvist verði lögum breytt. Fréttablaðið hringdi í allar kirkjur í Reykjavík og spurði presta hvort þeir hygðust nýta sér heimildina kæmi til lagabreytingar. Tólf sóknarprestar og tveir prestar í fjórtán kirkjum svöruðu. Ekki náðist í presta tveggja kirkna. Níu prestar hyggjast nýta sér heimildina, þar af átta sóknarprestar. Þeir voru allir sáttir við ályktun Kirkjuþings en fjórir þeirra hefðu viljað ganga lengra og viðurkenna hjónaband samkynhneigðra. Enginn prestur neitaði því að hann myndi nýta sér heimildina en fjórir sóknarprestar og einn prestur í fimm kirkjum sögðust ýmist vilja hugsa málið eða bíða og sjá hvað löggjafinn gerir. Í að minnsta kosti níu kirkjum af samtals sextán í Reykjavík munu samkynhneigð pör því geta leitað til að minnsta kosti eins prests sem tilbúinn væri að staðfesta samvist þeirra. Prestar Þjóðkirkjunnar mega neita fólki um þjónustu en verða þá að vísa á annan prest. Í ályktun Kirkjuþings var lögð sérstök áhersla á frelsi presta til þess að ákvarða hvort þeir staðfesti samvist samkynhneigðra eða ekki. Auglýsingabíl Atlants- olíu hefur aftur verið komið fyrir við Sæbraut, rétt hjá bensínstöð Olís við Skúlagötu. Um síðustu helgi létu Olísmenn draga bílinn í burtu á þeim forsendum að hann stæði á lóð fyrirtækisins. Albert Þór Magnússon, fram- kvæmdastjóri Atlantsolíu, segir lóðina í eigu borgarinnar, og hefur sent Olís reikning fyrir kostnaði við að leysa bílinn út. „Bíllinn okkar stendur í jaðri Skúlagötu 5, sem er borgarland. Þar er öllum heimilt að leggja enda hvergi merkingar um annað,“ segir Albert. Bensínstöð Olís er á Skúlagötu 9, en fyrirtækið á bílaplan við hliðina. „Okkur fannst illa að okkur vegið þegar þeir létu draga bílinn burt. Það var ekki einu sinni hringt í mig og ég beðinn að færa hann heldur var hann bara dreginn.“ Albert segir þetta mál fyndið í ljósi þess að forsvarsmenn Olís noti viðlíka aðferðir sjálfir. „Þeir eiga sinn bíl og leggja honum stundum við okkar stöðvar. Við erum ekkert að amast við því vegna þess að þetta er bara hluti af samkeppni.“ Þorvaldur R. Ásgeirs- son, verslunarstjóri hjá bensínstöð Olís á Skúlagötu, vildi ekkert tjá sig um málið þegar leitað var eftir því. Ekki náðist í Jón Ólaf Hall- dórsson, framkvæmdastjóra sölu- sviðs hjá Olís. Megum víst leggja á lóðinni „Hér, þar sem saman eru komnir margir velunnarar samstarfs Ítalíu og Íslands, er mér sannur heiður að kynna Silviu Cosimini en hún hefur verið rödd höfunda eins og Halldórs Laxness, Arnalds Indriðasonar og Thors Vilhjálmssonar, svo ég nefni nokkur nöfn,“ sagði Geir H. Haarde forsætisráðherra áður en hann afhenti Silviu 2.500 evra (217.000 ísk.) styrk frá ríkisstjórn Íslands. Silvia hefur þýtt mörg íslensk bókmenntaverk yfir á ítölsku og var henni færð fjárhæðin fyrir lofsvert framlag til menningarmála. Þýðingar Silviu hafa verið gefnar út hjá stórum ítölskum forlögum. Heiðruð fyrir menningarstörf
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.