Fréttablaðið - 27.10.2007, Qupperneq 4
Íslensk og ítölsk stjórnvöld hafa
ákveðið að koma á fót starfshópi til að efla
viðskipta- og efnahagsleg tengsl landanna.
„Það er alveg ljóst að mikill áhugi er á auknu
samstarfi milli þjóðanna. Þessi starfshópur
verður í stakk búinn til þess að plægja
akurinn. Það er fyrir hendi frjósamur akur og
það þarf að vinna úr tækifærunum sem eru
fyrir hendi,“ sagði Geir H. Haarde forsætis-
ráðherra að loknum hádegisfundi hjá ítalsk-
íslenska verslunarráðinu sem haldinn var á
Grand Hotel de la Minerva í miðborg Rómar.
Þar skýrði Geir frá vilja beggja þjóða til að
efla tengslin en hann og Romano Prodi,
forsætisráðherra Ítalíu, hittust á fundi fyrr
um daginn þar sem málefni þjóðanna og
alþjóðamál voru rædd. Þeir voru sammála um
að efla tengslin og leggja áherslu á sýnilegan
árangur þess.
Meðal gesta á fundi verslunarráðsins var
Emma Bonino, utanríkisviðskiptaráðherra
Ítalíu, en hún segist hafa sérstakan áhuga á að
efla tengslin við Ísland. „Heimurinn er sífellt
að verða minni í þeim skilningi að auðveldari
samskipti og upplýsingaflæði skilja engan út
undan. Litlar þjóðir eins og Ísland geta gegnt
mikilvægu hlutverki á ýmsum sviðum.
Sérstaklega á þetta við um orkumál og
nýtingu endurnýjanlegrar orku, þar sem
Ísland hefur verið leiðandi á heimsvísu. Ítalir
geta lært af Íslendingum,“ sagði Bonino í
viðtali við Fréttablaðið.
Hún sagði grunninn að velgengni þjóða á
alþjóðavettvangi felast í því að velja réttu
þjóðirnar til samstarfs. „Ábyrg utanríkis-
stefna felst í því að sjá tækifæri, meta þau og
nýta þau sem líklegt er að leiði af sér góða
hluti. Ég hef mikinn áhuga á því að auðvelda
ítölskum fyrirtækjum að reyna fyrir sér á
erlendri grundu en einnig að leiða fyrirtæki
og stjórnvöld annarra þjóða til samstarfs við
okkur. Ísland er eitt þessara landa.“
Guðjón Rúnarsson, formaður ítalsk-íslenska
verslunarráðsins og framkvæmdastjóri
Samtaka fjármálafyrirtækja, stýrði fundinum.
Landsbankinn var styrktaraðili hans og var
Halldór J. Kristjánsson bankastjóri
viðstaddur.
Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleikari kom
sérstaklega frá New York til þess að spila á
fundinum, en hann stundar tónlistarnám við
Juilliard-háskólann. Flutningur hans á lagi
Sigvalda Kaldalóns, Ave María, var síðasta
dagskráratriði fundarins og var Víkingi
Heiðari vel fagnað. Geir og kona hans, Inga
Jóna Þórðardóttir, þökkuðu Víkingi Heiðari
sérstaklega fyrir flutninginn en hann hafði á
orði við Geir að lag Sigvalda væri umtöluð
„vel falin perla“ á meðal nemenda í Juilliard-
háskólanum.
Geir átti einkafund með Benedikt XVI páfa
í bókasafnsrými páfa og færði honum nýja
íslenska þýðingu á biblíunni og gullkross að
gjöf. Einnig skilaði hann kveðju frá Karli
Sigurbjörnssyni, biskupi Íslands, og bauð páfa
í heimsókn til Íslands. „Það var greinilegt að
páfinn var vel að sér um Ísland þó að kaþólski
söfnuðurinn á Íslandi sé ekki stór,“ sagði Geir
en rúmlega sjö þúsund manns eru skráðir í
kaþólskan söfnuð á Íslandi. „Við áttum ágætt
einkasamtal sem var mikils virði. Einnig
ræddi ég við kardinála [Tarciso Bertone] sem
jafnframt er forsætisráðherra Páfagarðs.
Alþjóðleg mál voru rædd og þar var greinilegt
að kardinálarnir eru vel að sér. Persónulega
er þetta mikil upplifun, að koma í Páfagarð og
fá þessar móttökur,“ sagði Geir að lokinni
heimsókninni.
Sambandið við Ítalíu treyst
Vilji er hjá íslenskum og ítölskum stjórnvöldum til að efla samstarf á sviði viðskipta. Frjósamur akur sem
hægt er að plægja, segir Geir Haarde. Getum lært af Íslendingum, segir utanríkisviðskiptaráðherra Ítalíu.
Tveir fyrrverandi
ritstjórar DV, Björgvin Guðmunds-
son og Páll Baldvin Baldvinsson,
voru sýknaðir í meiðyrðamáli í
Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.
Magnús Hinrik Guðjónsson,
framkvæmdastjóri Heilbrigðis-
eftirlits Suðurnesja, krafðist þess
að ummæli um hann í fyrirsögnum
og frétt blaðsins yrðu dæmd dauð
og ómerk.
Í dómnum segir að ekki hafi
verið sýnt fram á að ritstjórarnir
hafi gerst sekir um ólögmæta árás
á æru framkvæmdastjórans. Þeir
hafi ekki heldur farið út fyrir mörk
tjáningarfrelsis með ummælunum.
Sýknudómur í
meiðyrðamáli
Ásgeir Friðgeirs-
son, talsmaður Björgólfs Thors
Björgólfssonar, segir hann ein-
göngu vilja tryggja aðgengi að Frí-
kirkjuvegi 11 en ekki eignast
hálfan Hallargarðinn.
Í Fréttablaðinu á fimmtudag er
greint frá því að embættismenn á
vegum borgarinnar hafi náð sam-
komulagi við Björgólf Thor um að
taka frávikstilboði hans í húsið. Í
því felst að hann greiðir 200 milljón-
ir króna ofan á þær 600 milljónir
sem hann bauð að óbreyttu. Í stað-
inn á Björgólfur að fá lóðaleigu-
samning um 3.567 fermetra
umhverfis húsið en ekki aðeins 900
fermetra eins og útboðið kvað á um.
Ásgeir segist ekki vilja stað-
festa að samningur upp á þessa
lóðarstækkun liggi fyrir en segir
þó þann möguleika hafa verið
upp á borðinu eins og fleiri.
Samkvæmt útboðsgögnunum
er aðgengi að Fríkirkjuvegi 11
frá Laufásvegi. Ásgeir segir enga
tryggingu fyrir því.
„Viðaukatilboðið er sett fram
til að tryggja eðlilegt aðgengi að
húsinu í ljósi þeirrar starfsemi
sem er fyrirhuguð í því,“ segir
Ásgeir og ítrekar það sem fram
hefur komið að Hallargarðurinn
verði áfram almenningsgarður.
„Björgólfur er ekki að falast eftir
þessari lóð fyrir sig heldur er
verið að breyta til að bæta
aðgengi.“
Vildi aðeins tryggja aðgengið
Borgarráð leggst gegn
því að nektardans verði heimilaður
á veitingastöðunum Bóhem, Vegas
og Club Óðal í tillögu sinni að
umsögn um rekstrarleyfi staðanna.
Ráðið leggur hins vegar til að þeim
verði veitt rekstrarleyfi að öðru
leyti. Afgreiðslu tillögunnar var
frestað um tvær vikur á borgar-
ráðsfundi í gær vegna andmæla-
réttar eigenda staðanna.
Í lögum er lagt bann við að boðið
sé upp á nektardans eða að gert sé
út á nekt starfsmanna veitinga-
staða nema með undanþágu. Slíka
undanþágu hafa staðirnir þrír sótt
um.
Leggst gegn
nektardansi
Bandarísk og evrópsk
mannréttindasamtök hafa lagt
fram stefnu í Frakklandi gegn
Donald Rums-
feld, fyrrver-
andi varnar-
málaráðherra
Bandaríkjanna,
þar sem hann er
sakaður um að
bera ábyrgð á
pyntingum í
Írak og í
bandaríska
herfangelsinu
við Guantánamo-
flóa á Kúbu.
Samtökin sem að stefnunni
standa, ein í New York, ein í
Berlín og tvenn í París, lögðu
fram stefnuna hjá saksóknara í
París er Rumsfeld kom til
Frakklands í heimsókn. Talsmenn
stefnenda sögðu að taka ætti
stefnuna fyrir þar sem frönsk lög
gera ráð fyrir að hægt sé að
sækja menn sem staddir eru í
Frakklandi til saka fyrir
pyntingar.
Rumsfeld stefnt
fyrir pyntingar