Fréttablaðið - 27.10.2007, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 27.10.2007, Blaðsíða 32
Á veturna er í raun engum fjallvegum lokað en þeir eru á hinn bóginn merktir ófærir og þá er fólk á ferð á eigin ábyrgð. Einu skiptin sem þeim er lokað er við sérstakar aðstæður eins og í leysingum. „Þegar vegum er lokað í leysing- um þá eru það yfirleitt allir vegir sem byrja á f-i. F-vegir á Íslandi eru vegir sem falla undir flokkinn fjallvegir og þeir eru ekki í þjón- ustu eftir að sumri lýkur. Hins vegar er ein undantekning og það er Kjölur sem er ekki f-vegur en er í sama þjónustuflokki og hálend- isvegirnir,“ segir Valdís Eiríks- dóttir, þjónustufulltrúi hjá Vega- gerðinni, og bætir við að þótt Kjölur sé vissulega hálendisvegur þá sé hann orðinn það góður að búið er að taka hann úr þessum flokki. Ef vegur er merktur með f- i þá þýðir það líka að vegurinn er einungis fær bílum með drif á öllum hjólum og jeppum. „Þá er ekki verið að tala um minnstu 4x4-bílana því að á hálend- isvegum er oft farið yfir vöð og jökulár og þær geta vaxið á nokkr- um klukkutímum,“ útskýrir Val- dís. Þjónustu á fjallvegum lýkur í kringum 15. september en þeir hafa orðið ófærir við fyrsta snjó. Þá eru þeir oft merktir sem ófærir til öryggis svo fólk sé ekki að byggja á þeim upplýsingum að vegirnir séu í lagi þegar sú er ekki raunin. „Eitt það skemmtilegasta sem jeppamenn gera er að fara vegina þegar það er snjór og það er ein ástæðan fyrir því að þeir eru ekki lokaðir. Flestir jeppaáhugamenn eru með tryggingar fyrir akstur utan sumartíma og eru oftast vel búnir,“ segir Valdís og bætir við að gagnlegar upplýsingar um jeppaakstur megi finna á heima- síðu ferðaklúbbsins 4x4. Annars merkir vegagerðin alla vegi með skilti á íslensku og ensku ef þeir eru ófærir og því ætti ekki að fara fram hjá neinum hvers kyns er. En hverjar eru helstu hætturnar á fjallvegum? „Helstu hætturnar eru þegar fólk er að keyra utan vegar. Maður veit aldrei hvað er þar og síðan geta vöðin og jökulárnar verið varasamar. Ég hef séð Ísland verða nánast ófært á klukkutíma og korteri og það á þjóðvegum þannig að það er ástæða til að fara varlega,“ segir Valdís og bætir við að auk þess sé þetta mjög stórt svæði og því erfitt að halda þjón- ustu úti lengur en yfir mesta ferðamannatímann. Vinsælustu leiðirnar eru Sprengisandur og Askja en auk þess eru Landmanna- laugar og Þórsmörk alltaf vinsæl- ar. „Við erum jafnvel farin að fá fyrirspurnir fyrir næsta sumar erlendis frá,“ segir Valdís og finnst gott þegar fólk undirbýr sig vel. Nauðsynlegt er að fólk láti vita af ferðum sínum og ferðaá- ætlun áður en lagt er í hann til að gæta fyllsta öryggis. Ófært á rétt rúmum tíma Nýtt! Gras.is beint á skjáborðið þitt! Gras.is hefur sett upp vefþjónustu (Gagdet) sem t engir þig beint við fréttirnar, án þess að þurfa opna vafrann þinn!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.