Fréttablaðið - 27.10.2007, Side 32
Á veturna er í raun engum
fjallvegum lokað en þeir eru á
hinn bóginn merktir ófærir og
þá er fólk á ferð á eigin ábyrgð.
Einu skiptin sem þeim er lokað
er við sérstakar aðstæður eins
og í leysingum.
„Þegar vegum er lokað í leysing-
um þá eru það yfirleitt allir vegir
sem byrja á f-i. F-vegir á Íslandi
eru vegir sem falla undir flokkinn
fjallvegir og þeir eru ekki í þjón-
ustu eftir að sumri lýkur. Hins
vegar er ein undantekning og það
er Kjölur sem er ekki f-vegur en
er í sama þjónustuflokki og hálend-
isvegirnir,“ segir Valdís Eiríks-
dóttir, þjónustufulltrúi hjá Vega-
gerðinni, og bætir við að þótt
Kjölur sé vissulega hálendisvegur
þá sé hann orðinn það góður að
búið er að taka hann úr þessum
flokki. Ef vegur er merktur með f-
i þá þýðir það líka að vegurinn er
einungis fær bílum með drif á
öllum hjólum og jeppum.
„Þá er ekki verið að tala um
minnstu 4x4-bílana því að á hálend-
isvegum er oft farið yfir vöð og
jökulár og þær geta vaxið á nokkr-
um klukkutímum,“ útskýrir Val-
dís. Þjónustu á fjallvegum lýkur í
kringum 15. september en þeir
hafa orðið ófærir við fyrsta snjó.
Þá eru þeir oft merktir sem ófærir
til öryggis svo fólk sé ekki að
byggja á þeim upplýsingum að
vegirnir séu í lagi þegar sú er ekki
raunin.
„Eitt það skemmtilegasta sem
jeppamenn gera er að fara vegina
þegar það er snjór og það er ein
ástæðan fyrir því að þeir eru ekki
lokaðir. Flestir jeppaáhugamenn
eru með tryggingar fyrir akstur
utan sumartíma og eru oftast vel
búnir,“ segir Valdís og bætir við
að gagnlegar upplýsingar um
jeppaakstur megi finna á heima-
síðu ferðaklúbbsins 4x4. Annars
merkir vegagerðin alla vegi með
skilti á íslensku og ensku ef þeir
eru ófærir og því ætti ekki að fara
fram hjá neinum hvers kyns er. En
hverjar eru helstu hætturnar á
fjallvegum?
„Helstu hætturnar eru þegar
fólk er að keyra utan vegar. Maður
veit aldrei hvað er þar og síðan
geta vöðin og jökulárnar verið
varasamar. Ég hef séð Ísland
verða nánast ófært á klukkutíma
og korteri og það á þjóðvegum
þannig að það er ástæða til að fara
varlega,“ segir Valdís og bætir við
að auk þess sé þetta mjög stórt
svæði og því erfitt að halda þjón-
ustu úti lengur en yfir mesta
ferðamannatímann. Vinsælustu
leiðirnar eru Sprengisandur og
Askja en auk þess eru Landmanna-
laugar og Þórsmörk alltaf vinsæl-
ar.
„Við erum jafnvel farin að fá
fyrirspurnir fyrir næsta sumar
erlendis frá,“ segir Valdís og
finnst gott þegar fólk undirbýr sig
vel. Nauðsynlegt er að fólk láti
vita af ferðum sínum og ferðaá-
ætlun áður en lagt er í hann til að
gæta fyllsta öryggis.
Ófært á rétt rúmum tíma
Nýtt! Gras.is beint á skjáborðið þitt!
Gras.is hefur sett upp vefþjónustu (Gagdet) sem t
engir þig beint
við fréttirnar, án þess að þurfa opna vafrann þinn!