Fréttablaðið - 27.10.2007, Page 38

Fréttablaðið - 27.10.2007, Page 38
hús&heimili „Ég tíni fjörugrjót hér og þar um landið. Alveg frá Langanesi og norður á firði og hérna um kring, á höfuðborgarsvæðinu. Síðan bý ég til þjóðlega karla og kerling- ar, ýmist í upphlut eða lopapeysu. Auk þess geri ég brúðhjón í öllum stærðum og uglur eða sveppi,“ segir Berglind Káradóttir, sem hefur búið til skemmtilegar fígúr- ur úr fjörugrjóti síðastliðin tíu ár. „Þetta byrjaði þegar ég eign- aðist stóran og fallegan garð sem ég vann mjög mikið í. Mig lang- aði að setja eitthvað skemmti- legt í hann og þá byrjaði ég á því að skreyta garðinn með sveppum sem ég bjó til úr fjörugrjóti og málaði á,“ segir Berglind sem er bæði menntuð sem leikskólakenn- ari og hönnuður frá Iðnskólanum í Hafnarfirði. Í byrjun var þetta mikil til- raunastarfsemi en að sögn Berg- lindar er hún í dag komin upp á lagið með grjótið. „Ég kunni ekk- ert með þetta að fara svo ég byrj- aði á því að steypa þetta saman með múr. Núna bora ég í grjótið og nota járnteina og steinlím,“ segir Berglind. Fígúrurnar eru mjög vinsæl- ar meðal sumarbústaðaeigenda að sögn Berglindar sem fékk nóg að gera þegar lopapeysurnar komust aftur í tísku. „Ég er í stórum vina- hópi og þetta hefur svona spurst manna á milli þrátt fyrir að ég hafi ekkert verið að auglýsa mig. Þetta er mjög vinsælt í tækifærisgjaf- ir. Bæði fyrir heimagarðinn og við sumarbústaðinn, ýmist fyrir utan til skrauts en svo hef ég líka séð þær við arna í bústöðum,“ segir Berglind og heldur áfram: „Þetta veðrast úti eins og allt annað og hárið sem er úr gæru, upplitast með tímanum. Hins vegar set ég glæru yfir þetta og flestir eru með þetta undir skyggni.“ Dagsdaglega starfar Berglind í menntamálaráðuneytinu og fíg- úrurnar því aðeins aukabúgrein. „Hugmyndirnar hlaðast upp og nú hef ég fengið að minnka aðeins við mig vinnu svo ég geti sinnt þessu betur en ég hanna líka og smíða úr tré og járni. Síðan verður tím- inn bara að leiða í ljós hvert þetta stefnir, en eins og er hef ég mjög gaman af þessu,“ segir Berglind. rh@frettabladid.is Fólkið úr fjörunni Berglind Káradóttir skreytir garða með fígúrum úr fjörugrjóti frá öllum landshornum. Fjörukona komin inn í garð. Brúðhjónin fín og sæt. Berglind Káradóttir tínir fjörugrjót við strendur landsins og breytir því í fígúrur sem setja skemmtilegan svip á umhverfið. LJÓS ÚR SWAROVSKI-KRISTÖLLUM Michael Anastassiades hannaði þessi sérstæðu og fallegu ljós fyrr Swarovski sem er þekkt um allan heim fyrir kristalla sína. Anastass- iades fékk hugmyndina að ljósakrónunum frá náttúrunni enda eru kristallarnir eins og skýstrokkar í laginu. ROKKAÐIR PÚÐAR líkt og þessir fást í ýmsum útgáfum í versluninni Ego dekor í Bæj- arlind. Púðarnir eru íslensk hönnun og saumaðir af Erlu Ásgeirsdóttur. Báðir eru púðarnir úr leðri, annar skreyttur með sebraefni en hinn með silfruðum pallíettum. Þeir eru ekki beint klassískir en tilvaldir til að rokka aðeins upp á stofu eða svefnherbergi. Forsíðumynd: Valgarður Gíslason tók þessa mynd af Elsu Björg Magnúsdóttur á heimili hennar. Útgáfufélag: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, s. 512 5000 Ritstjórar: Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is og Emilía Örlygsdóttir emilia@frettabladid.is. Auglýsingar: Ámundi Ámundason s. 517 5724 Útlitshönnuður: Kristín Agnarsdóttir kristina@frettabladid.is. lýsing Danfoss stjórnbúnaður fyrir hitakerfi fæst í öllum helstu lagnaverslunum landsins Vörn gegn brunaslysum • Tvöfalt brunaöryggi Termix hitastýring fyrir setlaugar frá Danfoss Rafeindastýring nemur hitastig í setlauginni Lokar fyrir innrennsli þegar óskuðu hitastigi er náð Ódýr og hagkvæm lausn Vönduð vara, lítill viðhaldskostnaður Áralöng reynsla stjórnbúnaðar við íslenskar hitaveituaðstæður Auðveld í uppsetningu • • • • • • www.stillumhitann.is 27. OKTÓBER 2007 LAUGARDAGUR2

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.