Fréttablaðið - 27.10.2007, Side 42
hús&heimili
„Mamma og pabbi fluttu inn þegar ég var
í maganum fyrir tuttugu og átta árum. Þá
var þetta gamall hjalli byggður árið 1954 úr
gömlum bjórkössum úr ríkinu og ein fyrsta
vinnustofan hennar mömmu. Maðurinn sem
átti þetta var húsabraskari sem vildi losna
við þetta og þess vegna keyptu foreldrar
mínir þetta fyrir slikk á sínum tíma,“ segir
Elsa Björg Magnúsdóttir um heimili sitt á
Laugarnestanganum, þar sem hún ólst upp
með foreldrum sínum, Kolbrúnu Björgólfs-
dóttur leirlistakonu, eða Koggu, og Magn-
úsi Kjartanssyni myndlistarmanni, sem lést
í fyrra, og yngri bróður, Guðbrandi Magn-
ússyni.
Fjölskyldan bjó í gamla húsinu og gerði
það upp hægt og sígandi. Árið 1994 var
síðan reist viðbygging á tveimur hæðum
sem gengur undir nafninu húsið. „Foreldr-
ar mínir tóku engin brjáluð lán til að byggja
sér heimili, heldur hafa fengist við þetta
sjálf í gegnum tíðina. Gamla húsið var svo
illa farið þegar við fluttum inn að þegar
ég var í vöggu féll veggur og það fennti
yfir mig. Kötturinn á heimilinu bjargaði þá
nánast lífi mínu með því að hringa sig yfir
mig,“ segir Elsa sem er ekki frá því að sá
atburður sé einkennandi fyrir fjölskyld-
una. „Við erum mjög harðgerð fjölskylda,
það er mikil þrautseigja í okkur og við gef-
umst ekki upp heldur höldum alltaf áfram
uppbyggingu,“ útskýrir Elsa sem segir það
einnig eiga við húsin. „Húsin eru hönnuð og
byggð af foreldrum mínum og þegar faðir
minn lést var hann búin að vera að klæða
gamla húsið. Við erum enn að bæta við og
byggja.“ Í dag er eldra húsið, sem í daglegu
tali er nefnt „gamla húsið“ í fínu ásigkomu-
lagi og að sögn Elsu heldur fjölskyldan sig
mest þeim megin. „Við tölum um að fara út
í hús, þegar við meinum nýja húsið,“ segir
Elsa sem hefur ekki hugmynd hvað þau eru
stór í fermetrum. „Húsið eru mjög kaotískt
svo það er erfitt að segja hversu margra
herbergja það er. Stíllinn er bæði hlýleg-
ur og kaldranalegur. Þetta er allt mjög per-
sónulegt, skakkir veggir, listrænt og svolítið
bóhemlegt,“ segir Elsa sem er umvafin lista-
verkum foreldra sinna. „Listin setur mikinn
svip á heimilið okkar og heimilishaldið allt.
Við borðum af diskum og drekkum úr glös-
um sem mamma hefur gert og pabbi mynd-
Sálin býr í rokinu
við hafið
Elsa Magnúsdóttir ólst upp í miðri borg með hafið sem barði á gluggann
og Snæfellsjökul við sjónarrönd á Laugarnestanganum.
Hafið er næsti nágranninn og á glugganum skellur bæði salt og þari í þegar stormurinn herjar á miðum við strendur Íslands. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
„Kisur hafa alltaf verið hluti af heimilinu okkar. Þær
eru svo leyndardómsfullar og skemmtilegar,“ segir
Elsa.
Framhald á bls. 8
Stíllinn er bæði hlýlegur og kaldranalegur, að sögn Elsu, sem býður til stofu í nýja húsinu sem er á tveimur
hæðum og var byggt árið 1994.
Heimilið er byggt og hannað af foreldrum Elsu og fjölskyldan er enn að byggja og bæta.
Listaverk Kolbrúnar Björgólfsdóttur og Magnúsar
Kjartanssonar, foreldra Elsu, setja sterkan svip á
heimilið.
27. OKTÓBER 2007 LAUGARDAGUR6