Fréttablaðið - 27.10.2007, Page 44
hús&heimili
skreytt og þetta er allt eftir okkar
höfði hér, það eru engar regl-
ur,“ segir Elsa sem á góðar æsku-
minningar frá Laugarnestangan-
um. „Þetta var eins og að alast upp
í sveit, þó í miðri borg. Ég mátti
aldrei fara ein yfir Kleppsveg-
inn enda engin umferðarljós, svo
krakkarnir urðu að koma hingað en
það var mjög vinsælt. Ég er mikið
hippabarn og hérna var eini stað-
urinn sem krakkar gátu leikið sér
eins og þeim lysti. Við gerðum leir-
muni og brenndum úti í garði og
nutum frelsisins,“ segir Elsa sem
getur ekki hugsað sér lífið án hafs-
ins. „Ég var í námi í Feneyjum í ár
og bjó þá nánast í sjónum. Þegar ég
flutti til London var ég hins vegar
að kafna, svo það var gott að koma
heim,“ segir Elsa sem lauk nýlega
mastersnámi í umhverfissiðfræði.
„Ég er alin upp við sjóinn þar sem
þari og salt barði rúðurnar í stormi
og Snæfellsjökull blasti við út um
gluggann á barnaherberginu alla
tíð. Ég vil búa nálægt náttúrunni,
er mikið hippabarn og umhverfis-
sinni,“ segir Elsa sem kann ákaf-
lega vel við sig með móður sinni og
bróður.„Þetta er ekki æskuheimili
sem er hægt að yfirgefa auðveld-
lega. Hérne liggur sálin og okkur
í fjölskyldunni líður best þegar
við erum saman,“ segir Elsa sem
nýlega stóð fyrir sýningu ásamt
móður sinni og bróður tileinkaða
minningu föður síns, myndlistar-
mannsins Magnúsar Kjartansson-
ar, í Grafarvogskirkju. Sjálf er
Elsa að feta sig inn í heim listarinn-
ar og stefnir á ljósmyndun og býst
við að prýða veggi heimilisins með
ljósmyndum úr eigin smiðju. Meira
um Elsu má sjá á: www.flickr.com/
photos/elsaprinsessa rh@frettabladid.is
Framhald af bls. 6
Fótboltaskórnir hennar
Elsu eru mikið stofustáss.
Enn hafa þeir þó ekki
látið sjá sig á vellinum.
Heimilið er kaótískt, persónulegt og hlítur engum sérstökum reglum. „Þetta er bara allt eftir okkar höfði,“ segir Elsa.
Swopper
vinnustóllinn
• Bylting fyrir bakið
• Styrkir magavöðvana
• Frelsi í hreyfingum
• Ánægja við leik og störf
• Fæst í ýmsum litum
www.eirberg.is • 569 3100
www.airfree.com • www.eirberg.is • 569 3100
Airfree lofthreinsitækið
• Byggir á nýrri tækni sem eyðir
ryki, frjókornum og gæludýraflösu
• Eyðir ólykt, bakteríum, vírusum, myglu og öðrum örverum
• Er hljóðlaust og viðhaldsfrítt – tilvalið í svefnherbergið og á skrifstofuna
Betra
loft
betri
líðan
27. OKTÓBER 2007 LAUGARDAGUR8