Fréttablaðið - 27.10.2007, Page 64

Fréttablaðið - 27.10.2007, Page 64
Vandræðalegasta augnablikið? Þau hafa nú verið nokkur en núna síðast var það þegar Geiri 3D spil- aði Supergirl-diskinn minn í keilu þar sem allt starfsfólk Skjás eins var statt á starfsmannadegi. Eftirlætissundlaug og af hverju? Ég er voða lítið í sundi en mér finnst rosalega gott að fara í pottinn. Reyndar fæ ég oft gesti frá Englandi og þá er yfirleitt farið í Bláa lónið. Hefðirðu þjón til umráða – hvernig morgunmat myndirðu láta hann færa þér í rúmið? Þá yrði það að vera eitthvað sér- stakt eins og Eggs Benedikts, sjúklega sóðalegt. Ef þú værir húsgagn – hvað mynd- irðu vilja vera? Sjónvarp. Gáfulegustu orð sem þú hefur heyrt? Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur. Værirðu ofurhetja, í hvernig bún- ingi myndirðu vilja vera? Ég er ofurhetja og skipti um bún- ing á hverjum degi. Hvernig finnst ykkur búningurinn minn í dag? Bækur hvaða íslenska rithöfund- ar finnst þér skemmtilegast að lesa? Upp á síðkastið hefur hausinn mest verið í námsbókum. Mæjónes er best með.. tómatsósu – svo það verði kokteil- sósa. Hvað er það fyndnasta? Maðurinn minn fær mig alltaf til að brosa, sama í hversu fúlu skapi ég er. Í hvaða stjörnumerki ertu og hvernig passar það við þig? Vog, nokkuð vel. Hver er þín mesta nautn? Súkkulaðikaka, súkkulaðiís, súkkulaðivöflur, heitt súkkulaði, jarðarber með súkkulaði. Ef ég hefði daginn út af fyrir mig myndi ég... sofa út, fara á spa í nudd og dekur, horfa á skemmtilegt sjónvarp og slappa vel af. Hvaða kæki ertu með? Enga svo ég viti, ég reyndar geri oft ballettspor á meðan ég er í sím- anum. Hvaða frasa ofnotar þú? Nota ekki mikið af frösum en á það til að beinþýða úr ensku í íslensku sem kemur ávallt mjög asnalega út. Botnaðu: Ef ég endurfæðist á jörð- inni vona ég að ég verði... svartur köttur. Hefurðu einhvern tíman fengið ógeð af eftirlætisdrykk/mat/sæl- gæti og hverju þá? Ég tók upp á því að taka þátt í fitn- ess keppni í Malasíu eitt sumarið. Það var alveg einstök upplifun, bæði að taka þátt í keppninni og að ferðast um Malasíu en á þessum tíma fékk ég alveg nóg af skyri og kjúklingabringum. Árrisul eða náttugla? Bæði, allavega þessa dagana. Hvaða bíómynd geturðu horft á aftur og aftur og aftur ...? Goodfellas. Ef þú sæir blauta steypu – hvaða orð myndirðu skrifa í steypuna? Ég myndi setja báðar hendurnar í steypuna eins og stjörnurnar í Hollywood og kvitta undir. Frægasti ættinginn þinn? Langafi minn Brynjólfur Jóhann- esson og amma mín Helga Valtýs- dóttir. Hver er þín eftirlætistegund af osti? Philadelphia-smurosturinn með hrökkbrauði og gúrkum. Og að lokum – hvernig sjónvarps- þátt myndirðu vilja framleiða fengir þú frjálsar hendur og ótæm- andi gullkistu? Þið fáið að sjá það í vetur. Dansar ballett þegar hún er í símanum Kristjana Thors Brynjólfsdóttir tók nýlega við stöðu dagskrárstjóra á Skjá einum en áður hafði hún meðal annars unnið í Latabæ, dansað í Bretlandi og borðað súkkulaði á góðum stundum. Kristjana var tekin í Þriðju gráðu yfirheyrslu helgarinnar.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.