Fréttablaðið - 27.10.2007, Side 72
Tónlistardagar
Dómkirkjunnar
standa nú yfir. Í
dag kl. 16 er
frumflutningur
á messu eftir
Þóru Marteins-
dóttur tónskáld.
Hún er endur-
flutt í hátíðar-
messu á vígslu-
degi kirkjunnar.
á morgun. Dómkórinn hefur lengi
pantað tónverk og frumflutt það á
Tónlistardögum. Dómkórinn
syngur verk Þóru undir stjórn
föður hennar, Marteins H. Frið-
rikssonar dómorganista.
Þóra Marteinsdóttir er fædd
1978 og stundaði nám í píanóleik.
Hún lauk námi í tónfræðadeild
Tónlistarskólans í Reykjavík og
meistaranámi í tónsmíðum frá
Tónlistarháskólanum í Gautaborg
og starfar sem tónlistarkennari.
Ný messa frumflutt
Jo Strömgren er norskur dansari
og danshöfundur sem hefur á
liðnum áratug getið sér gott orð
víða um lönd fyrir samsetningu á
sýningum, bæði fyrir sitt eigið
kompaní, sem er í Bergen, og fyrir
dansflokka víða um lönd. Hann
hefur yfir tuttugu sýningar á
verkaskrá sinni sem allar byggja á
sömu prinsippunum: absúrdhúmor,
grófleika, samhæfðri hreyfingar-
hefð sem er mitt milli dans og
mímu og tilbúnum eða afbyggðum
tungumálum. Jo er sýnilega afar
flinkur maður á sínu sviði sem
skarar margar afmarkaðar deildir
sviðslitanna, hann beitir brúðum
ekki síður en lifandi leikurum eða
flytjendum. Í mörgum sýninga
sinna skautar hann framhjá merk-
ingarbæru lifandi tungumáli og
smíðar nýtt á jaðrinum: einhvers-
konar hljóðlíkingu og velur sér þá
málsvæði sem honum þykja henta
söguefninu hverju sinni. Ekki
verður séð annað en Ræðismanns-
skrifstofan, sem frumsýnd var á
Nýja sviði Borgarleikhússins á
vegum Leikfélags Reykjavíkur, sé
nýtt verk, ólíkt til dæmis Sjúkra-
húsinu sem leikið var hér í vor
sem er á fastri verkefnaskrá Jo.
Ræðismannsskrifstofan er frum-
smíð og lýsir nokkrum metnaði
bæði af hálfu leikflokksins og
höfundarins.
Ræðismannsskrifstofan byggir
á tungumáli sem er hljóðlega séð
náskylt slavneskum málum. Það
hefur lengi verið fastur hlutur af
rasískri gamansemi vesturálfu-
búa að leika sér á rússnesku bull-
máli. Örn Árnason hefur lagt sig
eftir slíku, rétt eins og Hilmir
Snær. Ætli það sé arfur frá
hingaðkomum listamanna frá
Eystrasaltslöndunum sem unnu í
Þjóðleikhúsinu á rússnesku?
Gamansemin við rússneskt bull-
mál er í grunninn byggð á djúpri
vanþekkingu á þeim menningar-
heimi og leyndum ótta á öllu sem
slavneskt er. Þetta er spaug um
útlendinginn – hina – eins og
fyrirbærið er gjarna kallað nú um
stundir.
Nú mætti ætla að maður sem
vinnur á þennan hátt hafi áhuga á
að frelsa okkur frá fordómum, en
ekkert slíkt er á hans agenda:
Ræðismannsstofan gerist í niður-
níddri skrifstofu í nær yfirgefnu
sendiráði. Þar ræður ríkjum
Andrei sem selur ýmsa þjónustu:
konum sem starfa undir hans
ábyrgð í húsinu selur hann kynlíf
af köldum leiða, utanafkomandi
selur hann aðra þjónustu: kemur
fyrir í húsinu kjarnaúrgangi.
Þetta er lokaður heimur karls sem
byggir vald sitt á miskunnarleysi
og hörku.
Inn í þennan heim kemur nýr
maður og tekur völdin, snoppu-
fríður yngri maður sem er ekki
allur þar sem hann er séður en
nýtir sér tækifærið til að hrinda
Andrei úr stalli, auðmýkja hann
og taka hans stöðu sem telpnagull
og gagn kvennanna á staðnum.
Tökum fram strax að þessi sýn-
ing er gamanefni - spaug - fífla-
skapur - til skemmtunar gerð. Sem
slík er hún feikilega vel útfærð í
tóni, hljómfalli, hraða og hreyfing-
um. Nær allir fara á kostum í sínu
og vinna verk sín af ljómandi
öryggi og snerpu. Frumsýningar-
gestir Borgarleikhússins eru
reyndar einhver meðvirkasti
hópur sem saman kemur á Stór-
Reykjavíkursvæðinu. Það var
hlegið mikið og oft dátt, þótt það
slumaði í skaranum og viðtökur í
leikslok væru einhverjar þær
daufustu sem heyrst hafa þar í
langan tíma. Brandarinn varð
þynnri og þynnri og þótt skipt væri
um stíl og undið sér í spæjarasögu
dugði það ekki til að hressa upp á
söguþráðinn. Var fólk orðið þreytt
á Rússabullinu eða búið að fá nóg
af rasískum grunni gamansins?
Eða var gestunum farið að ofbjóða
hin grímulausa misbeiting kvenna
í verkinu? Leikkonurnar fjórar
eru sannkallaðar hetjur að komast
í gegnum þann þykka mökk lág-
kúru sem kvenpersónur leiksins
ganga í gegnum. Er það kannski
erindið?
Sýn Jo á Slava er gegnheil í
sínum rasisma. Væru líkur á að
hann setti slíka sýningu upp og
byggði hana á norsku bullmáli?
Ekki held ég það. En Ræðismanns-
skrifstofan leiðir í ljós stöðuna á
leikhópnum hjá LR um þessar
mundir sem er feikisterkur. Sá
styrkur er þó meiri ef merkingar-
laus bullflaumur lendir í munni
þeirra en orð sem hafa merkingu
– þá verður hikað – enda hugsunin
flóknari og merkingin margræð-
ari.
Er þessi sýning tímanna tákn nú
þegar við þiggjum viðvik af þús-
undum slavneskra og pólskra
handa? Þá aðstoð getum við fegin
þegið ef á að vinna verst launuðu
störfin hér á landi og er okkur þá
sæmst að gera bara grín að þeim?
Eru ekki vænni skotspónar nær?
Hlegið svolítið að Rússum
Myndlistarkonurnar Monica
Schokkenbroek og Soffía Sæmunds-
dóttir opna sýninguna IS/NL í Gra-
fíksafni, Tryggvagötu 17 hafnar-
megin, kl. 17 í dag.
Leiðir listakvennanna lágu saman
við vinnustofudvöl í Banff í Kanada
í árslok 2004. Löngun í hið óvænta
dró þær að Klettafjöllunum þegar
nóttin er lengst og kuldinn mestur,
en þar dvelja tugir listamanna víðs
vegar að úr heiminum ár hvert.
Afsprengi þeirra kynna er sam-
sýningin IS/NL, en hún er eins konar
samtal tveggja einstaklinga hvorum
frá sínu landi sem eiga það sameig-
inlegt að vera heillaðir af ferðum og
því sem gerist á hreyfingu.
Ljósmyndir og skúlptúrar hinnar
hollensku Monicu Schokkenbroek
eru mitt á milli raunveruleika og
væntinga en útkoman eins fáguð og
frekast er unnt án endanlegrar nið-
urstöðu.
Teikningar og smáverk Soffíu
Sæmundsdóttur eru sprottin úr ljós-
myndum af ferðum hennar um land-
ið, eins konar upplifun af landslagi
jafnvel fjarlæg minning. Monica
Schokkenbroek hefur tekið þátt í
fjölmörgum sýningum og hlotið
margvíslegar viðurkenningar fyrir
verk sín frá því hún lauk námi í
Gerrit Rietveld Academy í Amster-
dam. Hún dvaldi í gestavinnustof-
unni á Akureyri í október og í nóv-
ember er hún gestalistamaður hjá
SÍM.
Soffía Sæmundsdóttir hefur tekið
þátt í fjölmörgum einka og samsýn-
ingum undanfarinn áratug síðast á
Nord-Art, stórri alþjóðlegri sýningu
í Rendsburg í Þýskalandi. Henni
hafa hlotnast margvíslegar viður-
kenningar fyrir myndlist sína.
Sýningin er opin alla fimmtudaga
til sunnudaga frá 14-18. Henni lýkur
11. nóvember.
Ferðir og hreyfing
uppsprettur verka
Camerarctica flytur Kvartett
fyrir endalok tímans eftir Oliver
Messiaen í Laugarborg í Eyja-
fjarðarsveit á morgun. Árið 1940
var orgel- og píanóleikarinn Oli-
vier Messiaen tekinn til fanga af
Þjóðverjum og færður til Stalag-
fangabúðanna í Görlitz. Í fanga-
búðunum, þar sem tíminn hætti
næstum að vera til, dróst
Messiaen að andstæðunum tíma
og eilífð og samdi út frá þeim
Kvartett fyrir endalok tímans.
Tónverkið var frumflutt í
fangabúðunum 15. janúar 1941.
Áheyrendur voru úr öllum
stéttum þjóðfélagsins og margir
höfðu aldrei hlustað á kammer-
tónlist fyrr. Messiaen sagði
sjálfur seinna meir að aldrei hefði
verið hlustað á tónlist sína með
svo mikilli athygli og skilningi
sem þá.
Tónlistarhópurinn Camerarctica
hefur starfað frá árinu 1992 og
hafa félagar hópsins á þessum
fimmtán árum einnig komið víða
fram sem einleikarar, leikið í Sin-
fóníuhljómsveit Íslands og kennt
hljóðfæraleik við tónlistarskólana
á höfuðborgarsvæðinu.
Camerarctica hefur vakið
athygli og hlotið lofsamlega dóma
fyrir flutning sinn á verkum
Mozarts á árlegum kertaljósa-
tónleikum. Hópurinn hefur enn
fremur staðið að og tekið þátt í
tónlistarhátíðum í minningu tón-
skáldanna Hindemith og Fauré,
og Schubert og Brahms. Einnig
hefur hópurinn leikið á Myrkum
músíkdögum, Listahátíð í Reykja-
vík, Norrænum músíkdögum og
Salisbury-hátíðinni í Bretlandi og
gefið út geisladisk með verkum
eftir Mozart.
Tónleikarnir hefjast kl. 15 og er
miðaverð 2.000 kr.
Sýningar eru opnar virka daga kl. 11 - 17
og um helgar kl. 13 - 16 • sími 575 7700
GERÐUBERG
www.gerduberg.is
Handverkshefð í hönnun
Leiðsögn á hverjum sunnudegi
kl. 14 Boðið er upp á leiðsögn
fyrir hópa, s. 575 7700
Úr ríki náttúrunnar
Guðmunda S. Gunnarsdóttir
sýnir málverk og myndverk úr
rekaviði og steinum
Vissir þú af...
góðri aðstöðu fyrir veislur,
námskeið, fundi o.fl.
Nánar á www.gerduberg.is