Fréttablaðið - 27.10.2007, Page 83
Mikil eftirvænting ríkir fyrir
leik NFL-liðanna New York Giants
og Miami Dolphins sem fram fer
á Wembley-leikvanginum í
London á sunnudag. Viðureign
liðanna er hluti af leiktímabilinu
en aldrei áður hefur verið spilað
utan Bandaríkjanna í deildinni.
Þetta uppátæki NFL-deildar-
innar hefur vakið gríðarlega
athygli og íþróttaáhugamenn hafa
hreinlega slegist um miða á leik-
inn. Wembley tekur 90 þúsund
manns í sæti en alls bárust um
milljón umsóknir um miða á
leikinn, þar af um hálf milljón
fyrsta daginn. Svo vel hefur
tekist til að NFL íhugar það alvar-
lega að spila sjálfan SuperBowl-
leikinn á Wembley á næstu árum.
Bæði lið komu til London í gær
en ekki er búist við sérstaklega
spennandi leik. Miami er búið að
tapa öllum sjö leikjum sínum það
sem af er og hefur aldrei byrjað
verr í sögu félagsins. Giants byrj-
aði tímabilið illa og tapaði tveim
fyrstu leikjum sínum. Síðan datt
liðið í gírinn og hefur nú unnið
fimm leiki í röð.
Helsta stjarna leiksins er Eli
Manning, leikstjórnandi Giants,
en hann er yngri bróðir Peyton
Manning sem er leikstjórnandi
meistara Indianapolis. Leikurinn
hefst klukkan 17 á sunnudag og
er í beinni útsendingu á Sýn.
NFL kemur til Wembley
Martin Jol var rekinn
sem stjóri Tottenham í kjölfar
taps gegn spænska liðinu Getafe í
UEFA-bikarnum í fyrrakvöld, en
Tottenham stendur einnig höllum
fæti í ensku úrvalsdeildinni og er
sem stendur í 18. sæti. „Ég mun
aldrei gleyma stuðningsmönnum
Tottenham,“ sagði í yfirlýsingu
frá Jol eftir að hann hafi fengið
að fjúka, en aðstoðarmaður hans,
Chris Hughton, fór einnig sömu
leið. „Þetta var erfið og leiðinleg
ákvörðun en því miður hafa
úrslitin undanfarið gert það að
verkum að þetta er niðurstaðan,“
sagði Daniel Levy, stjórnarfor-
maður Tottenham.
Allt bendir nú til þess að
Juande Ramos, stjóri Sevilla, taki
fljótlega við Tottenham-liðinu, en
sögusagnir eru á kreiki um að
félagið sé tilbúið að bjóða honum
fúlgur fjár og fjögurra ára
samning sem hann geti ekki
hafnað. Ramos játaði því í gær í
viðtölum við spænska fjölmiðla
að hann dreymdi um að stýra liði
í ensku úrvalsdeildinni.
Jol rekinn frá
Tottenham
Ítalska blaðið Corriere
dello sport hefur verið duglegt að
orða miðjumenn við Inter eftir að
Roberto Mancini, stjóri liðsins,
lét hafa eftir sér að hann væri
hræddur um breidd liðs síns.
Corriere dello sport birti í gær
grein þess efnis að Inter væri
þegar búið að ákveða að kaupa
Rafael van der Vaart frá
Hamburger SV þegar janúar-
glugginn opnast að nýju og svo
kaupi liðið Frank Lampard frá
Chelsea eftir tímabilið. Fyrir hjá
Inter eru miðjumennirnir Oliver
Dacourt, Esteban Cambiasso og
Patrick Vieira, en sá síðastnefndi
verður reyndar líklega frá vegna
meiðsla næstu tvo mánuði.
Van der Vaart á
leið til Inter?
Olíuríkið Katar við
Persaflóa sækist nú eftir því að fá
að halda ólympíuleikana eftir níu
ár en þeir færu þá fram í
höfuðborginni Doha.
Þetta yrði í fyrsta sinn sem
arabaríki héldi leikana en meðal
þeirra borga sem keppa um að
hljóta útnefningu Alþjóða
ólympíunefndarinnar eru
Chicago, Tókýó, Rio de Janeiro,
Madríd og Prag.
Það gæti reyndar orðið mikil
þolraun fyrir keppendur fari svo
að ólympíuleikarnir fari fram í
Katar því meðalhitinn yfir
sumartímann er um 44 gráður.
Ólympíuleikarnir fara fram í
Peking á næsta ári og í London
árið 2012.
Verða leikarnir
í Katar 2016?