Fréttablaðið - 31.10.2007, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 31.10.2007, Blaðsíða 40
Litlu hugvekjurnar sem birtast þegar síst varir eru stundum nógu góðar til að halda upp á sannleikann sem í þeim felst. Þá á ég ekki bara við skemmtilegar uppgötvanir eins og snjallt og frumlegt sjónarhorn sem til dæmis lítil börn hafa á tilveruna og maður lofar sjálfum sér að skrifa í minningabókina... eftir smástund. Man það svo næst þremur dögum síðar en er þá bæði búinn að gleyma tilefninu og hinni óviðjafnanlegu niður- stöðu. sinnum fæðist samt hugljómun sem stekkur fullsköp- uð fram og hefur lengri líftíma en tíu sekúndur svo það er freistandi að trúa því að maður hafi höndlað einhverskonar sannleika. ár hef ég stund- um verið styrktaraðili á líkams- ræktarstöðvum, átt kort en næst- um aldrei mætt. Ástæðan er aðallega sérhlífni og sá ógnar- langi tími sem ferðin tekur í hvert sinn því fólk sem ber ábyrgð á vinnu, heimili og barnafjöld hefur sjaldnast tvær klukkustundir aukreitis til annars en að liggja í leti. Hinsvegar uppgötvaði ég fyrir ári að það er fljótlegt að fara út að hlaupa. Vissulega leið- inlegt já, en upplagt ef maður hefur lítinn tíma. Fyrst í stað var það næstum óbærilegt en vegna heitstrenginga um árangur gafst ég ekki upp alveg strax. Og líka vegna þess að ég á einstaklega leiðinlegan mann sem þreyttist ekki á að nudda mér af stað. var það aðallega ég sem var leiðinleg. Svona fyrstu tuttugu skiptin tuðaði ég frá upp- hafi til enda yfir því hvað þetta væri nú erfitt, ég væri með hlaupasting, sinadrátt og harð- sperrur, væri móð, þreytt, óglatt og þyrst. Samt lét ég alltaf undan pressunni og hunskaðist af stað en hóf ræðuhöldin hátt og í hljóði strax við garðshliðið. Þar til hinn þrautseigi þjálfari hitti á töfrastundina. Einmitt þegar ég var á hlaupum alveg að deyja úr mæði og sjálfsvorkunn átti hann þessa ágætu línu: Hættu að þrauka. alveg eins og í ævintýrunum rann upp fyrir mér ljósið sem ein- hverjum er ef til vill augljóst. Lífið er of stutt til að þrauka. Ef maður ætlar að taka þátt í þessu hlaupi þá verður maður að gera það með ánægju. Það á fjanda- kornið við um allt lífið, það er ekkert skemmtilegt nema það sé gaman. Það er svo einfalt. Dálítil hugvekja KeppinauturinnDótabúðin Leikbær Við pökkum inn fyrir viðskiptavini Við veitum ráðleggingar við gjafainnkaup Við sendum í póstkröfu hvert á land sem er Við tölum og skiljum íslensku Póstkröfusími: 568-4860 www.leikbaer.is Við fengum öll sjálfstæði árið 1944 Erum við með verslun í Þínu hverfi? Faxafen KringlanSmáralind MjóddLaugavegur Mosfellsbær Selfoss

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.