Fréttablaðið - 31.10.2007, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 31.10.2007, Blaðsíða 4
Þingið í Írak sam- þykkti í gær frumvarp um að aflétta friðhelgi starfsmanna erlendra öryggisfyrirtækja gegn málssókn í Írak. Fyrr um daginn höfðu borist fréttir af því að bandaríska utan- ríkisráðuneytið hefði boðið örygg- isvörðum fyrirtækisins Blackwater friðhelgi gegn saksókn í Bandaríkj- unum í skiptum fyrir að þeir grndu frá blóðbaði sem þeir áttu hlut að í Írak 16. september síðastliðinn. Demókratar á Bandaríkjaþingi gagnrýndu Bandaríkjastjórn harð- lega fyrir tilboðið sem kemur í veg fyrir að liðsmenn Blackwater geti hlotið dóm fyrir drápin. Formaður dómsmálanefndar öld- ungadeildarinnar, sagði friðhelgina enn eitt dæmið um „náðunarstjórn“ George W. Bush, eða þá stefnu „að enginn úr liði hennar verði dreginn til ábyrgðar, sé hægt að forðast það“. Bandaríska utanríkisráðuneytið, sem hefur haft öryggisverði frá Blackwater í þjónustu sinni í Írak, hvorki játar né neitar að þeim hafi verið veitt friðhelgi. Embættismað- ur í ráðuneytinu sagði þó að ef sú ákvörðun hefði verið tekin væri það án nokkurra áhrifa og heimild- ar frá nokkrum háttsettum emb- ættismanni utanríkisráðuneytisins í Washington.“ Enginn dreginn til ábyrgðar Rauði krossinn stendur fyrir myntsöfnun í samstarfi við Sparisjóðina, Póstinn og Iceland Express. Sérhannað umslag fyrir afgangsmynt eða seðla hefur verið sent inn á öll heimili í land- inu. Það má láta ófrímerkt í póst eða skila því í næsta útibú Spari- sjóðanna. „Margir eiga mynt í krukkum eða skúffum sem þeir vita ekki hvað þeir eiga að gera við,“ segir Kristján Sturluson, framkvæmda- stjóri Rauða kross Íslands. Afraksturinn rennur tilverk- efna innalands. Setja má íslensk- ar krónur í umslögin. Safnar erlendri mynt í umslög Ragnar H. Hall, lögmað- ur Svandísar Svavarsdóttur, telur röksemdir lögmanna Orkuveitu Reykjavíkur (OR) fyrir frávísun á máli Svandísar fráleitar. Lögmenn OR krefjast frávísunar á málinu, meðal annars vegna þess að Svand- ís hafi ekki neinna lögvarinna hagsmuna að gæta. Svandís ákvað að fara í mál þar sem hún taldi ólöglega hafa verið boðað til eig- endafundar OR og krefst þess að hann verði úrskurðaður ólöglegur. „Að halda því fram að stjórnar- maður í OR, sem telur að fundur um mjög mikilvæg málefni fyrir- tækisins sé ólöglegur, hafi enga lögvarða hagsmuni af því að fara með málið fyrir dómstóla, er að mínu mati fráleitt. Mér finnst þetta endurspegla viðhorf OR um það, að það sem þeir [stjórnendur OR] ákveði komi ekki neinum öðrum við. Ég álít að það sé mesti misskilningur þegar opinber fyr- irtæki eiga í hlut.“ Lögmenn OR krefjast frávísun- ar á málinu og fer málflutningur vegna kröfunnar fram á mánudag- inn. Í rökstuðningi fyrir frávísun- arkröfunni kemur fram að stefna hefði þurft öllum þeim sem hefðu átt aðild að eigenda- og stjórnar- fundinum 3. október en samþykkt var að sameina Reykjavík Energy Invest (REI) og Geysi Green Energy (GGE) á fundinum. Ragn- ar segir þessi rök ekki tengjast álitaefninu sem sé uppi. „REI eða GGE áttu ekki aðild að fundinum. Það er gerð krafa um ógildingu ákvarðana þessa eigendafundar OR og þá er ekki neinum öðrum stefnt en OR. Ef að þessi röksemd- arfærsla stæðist, sem lögmenn OR beita, þá myndu menn lenda í alvarlegum vanda í mörgum málum. Ef það stæði til að fá hlut- hafafund í almenningshlutafélagi dæmdan ólöglegan, svo ég taki dæmi, væri þá rétt að stefna öllum hluthöfunum eða viðsemjendum fyrirtækisins? Þetta er röksemda- færsla sem stenst ekki skoðun,“ segir Ragnar. „Í greinargerð lög- manna OR segir að þar sem Svand- ís sé ekki eigandi þá beri að vísa þessu frá. Þetta stenst ekki skoð- un og er rökleysa. Hver er eigandi að OR? Enginn einstaklingur er eigandi að þessu fyrirtæki í laga- legum skilningi. Þetta er hins vegar opinbert fyrirtæki og um þau gilda sérstök lög. Það er kjarni málsins og honum má ekki gleyma.“ Segir rök OR ekki standast Ragnar H. Hall, lögmaður Svandísar Svavarsdóttur borgarfulltrúa, segir rök lögmanna OR fyrir frávís- unarkröfu á máli hennar ekki halda. Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur (OR) féllst í gær á málaleitan Farice og ríkisstjórn- ar Íslands um að taka þátt í fjár- mögnun nýs sæstrengs sem efli fjarskiptaöryggi landsins. OR mun leggja 500 milljónir króna sem hlutafé til verkefnisins og sama fjárhæð koma frá Lands- virkjun og Hitaveitu Suðurnesja. Ríkissjóður leggur einnig fram nýtt hlutafé til verkefnisins. Hagsmunir OR og annarra orkufyrirtækja sem að málinu koma felast í því að nýr sæstreng- ur mun auðvelda netþjónabúum, sem falast hafa eftir orkukaupum hér á landi, að hasla sér völl. Fyrirtæki setja fé í sæstreng Borgarbyggð segir stofnun Reykjavík Energy Invest (REI), dótturfélags Orkuveitu Reykjavíkur (OR) hvorki hafa verið samþykkta á eigenda- eða aðalfundi OR. Þetta kemur fram í svörum sem sveitarfélagið skilaði til umboðsmanns Alþingis í gær. Umboðsmaður spurði fulltrúa Reykjavíkurborgar, Akranesbæj- ar og Borgarbyggðar tólf spurn- inga um málefni REI og OR tæpri viku eftir að samruni REI og Geys- is Green Engery (GGE) var sam- þykktur á sameiginlegum stjórn- ar- og eigendafundi OR 3. október. Spurt var um hvort 500 milljóna hlutur Bjarna Ármannssonar, stjórnarformanns REI, hafi áður verið í eigu OR og hvort kaup hans hafi verið samþykkt á eigenda- fundi OR. Í svörum Borgarbyggð- ar kemur fram að sveitarstjórnin „hafi engar upplýsingar um hvort hlutur starfandi stjórnarformanns hafi áður verið í eigu OR“. Jafn- framt segir að „hafi starfandi stjórnarformaður keypt þennan hlut á þeim tíma sem rætt var um var það ekki samþykkt á eigenda- fundi OR því enginn slíkur fundur var haldinn á þeim tíma“. Ívar Pálsson, lögmaður hjá Landslögum, sem sá um að svara spurningunum fyrir hönd Akra- nesbæjar, segir í svörunum sínum að 500 milljóna króna hlutur Bjarna hafi verið í samræmi við samþykktir um aukningu á hluta- fé í REI og því hafi verið óþarft að samþykkja það á eigendafundi OR. Reykjavíkurborg og Akranes- bær báru saman bækur sínar þegar spurningum var svarað enda snúa spurningar með sama hætti að eigendum OR. Umboðsmaður óskaði eftir afriti af samþykkt á kaupum einstakl- inga í REI og spurði út í hverjir þeir væru sem hefðu fengið að kaupa, hvort hlutabréf OR hafi verið seld til þeirra eða einhver önnur. Sveitarstjórn Borgarbyggð- ar svarar því til að hún hafi engar upplýsingar um málið sem geti svarað spurningum umboðsmanns. „Sveitarstjórnin hefur ekki undir höndum afrit af samþykkt fulltrúa sveitarfélaganna um sölu á hlutafé í REI til einstaklinga og hefur ekki vitneskju um hvort þeir hlutir voru í eigu OR eða annarra aðila,“ segir í svörunum. Reykjavíkurborg sá sér ekki fært að afhenda svörin í gær, líkt og hin sveitarfélögin sem eru eig- endur OR, þar sem svörin bárust til umboðsmanns rétt fyrir lokun skrifstofu umboðsmanns. „Okkur þótti réttast að svörin kæmu til umfjöllunar hjá umboðsmanni áður en þau færu í fjölmiðla,“ sagði Kristbjörg Stephensen borg- arlögmaður í gærkvöld. Stofnun REI ósamþykkt Sveitarfélagið Borgarbyggð segir stofnun REI hvorki hafa verið samþykkta á eigenda- né aðalfundi OR. Reykjavíkurborg, Akranesbær og Borgarbyggð skiluðu svörum við spurningum umboðsmanns Alþingis í gær.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.