Fréttablaðið - 31.10.2007, Blaðsíða 28
Tvisvar sinnum á ári
missi ég svefn af
spenningi við til-
hugsunina um póst-
lúguna mína. Ég
lendi iðulega í rök-
ræðum við sjálfa
mig um hvort það sé
réttlætanlegt að sitja
fyrir bréfberum á nátt-
sloppnum. Sem betur fer tekst
mér oftast að tala sjálfa mig ofan
af því, enda fer geðveikisglampi
ekkert sérstaklega vel við augnlit
minn.
Í annað skiptið er von á Ikea-bæk-
lingi ársins inn um lúguna, sem ég
tek galopnum örmum. Ég áttaði
mig á því um daginn að íbúðin mín
er eins og síða 219 í bæklingnum,
sem varpar bara ljósi á það hversu
vel ég og sænska vöruhúsið náum
saman. Ég reiddist því að vísu
fyrir að hafa skipt út sprittkertun-
um sem ég kaupi í tonnatali, en
það er önnur og meiri sorgarsaga.
Í hitt skiptið er hver taug spennt
til hins ítrasta, því þá er von á
mínu klámi inn um lúguna. Hver
þarf Playboy þegar Bókatíðindi
eru innan seilingar? Þau eru að
koma, þau eru að koma.
Frá því að ég man eftir mér hef ég
beðið í ofvæni eftir að fá þetta
dásamlega bókmenntaverk í hend-
ur. Fyrst fletti ég beint í barna-
bækurnar, nú ligg ég í bæði
íslenskum og þýddum skáldsögum
og ég er viss um að þegar fram
líða stundir mun ég háma í mig
ævisögusíðurnar af sömu áfergju.
Ég hef fimm sinnum á ævinni
orðið af þeim unaði sem fylgir
Bókatíðindum jafn fast á hæla og
jólalykt fylgir piparkökum. Í eitt
skiptið var ég í staðinn umlukin
Guinness-gufum á eyjunni grænu,
og hin fjögur staulaðist ég um
menntaveginn í heimalandi Ikea.
Að vera án Bókatíðinda var verra
en að missa af Þorláksmessu-
stemningunni á Laugaveginum,
verra en ónýtur jólamatur, og
meira að segja verra en sá stór-
furðulegi siður Ikealandsbúa að
horfa á Andrés Önd á aðfangadag.
Jólin mín hefjast ekki í sænska
vöruhúsinu. Þau hefjast með
Bókatíðindum, og þau eru að
koma, þau eru að koma.
Alltaf á mi›vikudögum!
110
260
1. vinningur
MILLJÓNIR
Fá›u flér mi›a fy
rir kl. 17
í dag e›a taktu s
éns á
a› missa af fless
u!
Bónus-vinningur
36
milljónir
150
LANGLANG
STÆRSTI
BÓNUSPOTTUR
FRÁ UPPHAFI
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
3
0
5
11
Potturinn stefnir í 110 milljónir. Ofurpotturinn stefnir í
150 milljónir og bónusvinningurinn í 36 milljónir.
Ekki gleyma að vera með, nældu þér í áskrift.
Tvöfaldur
pottur2