Fréttablaðið - 16.11.2007, Side 2
2 16. nóvember 2007 FÖSTUDAGUR
VINNUMARKAÐUR Til þess að hægt
sé að ætlast til þess að fyrir tækin
beri þann launakostnað sem
atvinnulífið hefur tekið á sig og
mun taka á sig er nauðsynlegt að
breyta samkomulagi ríkis stjórnar-
innar við Seðlabanka Íslands um
verðbólgumarkmið, segir Vil-
hjálmur Egilsson, formaður Sam-
taka atvinnulífsins (SA).
Það hefur lengi verið krafa sam-
takanna að þessu fyrirkomulagi
verði breytt og hafa samtökin sagt
hátt vaxtastig standa atvinnulíf-
inu fyrir þrifum. Nú setja þau
þessa kröfu sína fram í tengslum
við komandi kjarasamninga.
„Stemningin hér [innan SA] er
sú að það verði ekki samið nema
þetta sé komið í lag,“ segir Vil-
hjálmur. Spurður hvort það muni
setja kjarasamninga í uppnám
bregðist stjórnvöld ekki við þess-
um óskum segir Vilhjálmur að
það myndi setja „verulegt strik í
reikninginn“ fyrir SA.
„Seðlabankinn hefur verið að
reiða mjög hátt til höggs á mjög
veikum grunni,“ segir Vilhjálmur.
„Við sjáum ekki að vaxtatækið
hafi áhrif á verðbólguna, en
ofbeiting þess hefur valdið
miklum skaða í atvinnulífinu.“
Hann tekur fram að ekki hafi
verið tekin endanleg ákvörðun
innan SA um að gera þessar
kröfur, en eins og staðan sé í dag
sé afar líklegt að það verði.
SA sendu forsætisráðherra tvö
bréf með svipuðum óskum í
sumar, en Vilhjálmur segir ekk-
ert hafa gerst í kjölfar þeirra og
viðbrögð Seðlabankans verið
afar neikvæð.
„Ég sé ekki hvernig mönnum
dettur í hug að Alþýðusambandið
eða verkalýðshreyfingin muni
samþykkja þetta,“ segir Gylfi
Arnbjörnsson, framkvæmda-
stjóri ASÍ, sem sagðist í gær ekki
hafa heyrt af þessum kröfum
SA.
Hann segir þessa kröfu
atvinnurekenda um verðbólgu-
markmiðið leiða af sér vaxta-
lækkun, sem aftur muni leiða af
sér gengisfellingu með tilheyr-
andi verðbólgu í kjölfarið. Sér sé
fyrirmunað að átta sig á því
hvernig verkalýðshreyfingin
eigi að sætta sig við þetta nema
launahækkanir vegi upp á móti
þessu.
brjann@frettabladid.is
LÖGREGLUMÁL Rúmlega tvítug
stúlka kærði í gær nauðgun til
kynferðisbrotadeildar lögregl-
unnar á höfuðborgarsvæðinu.
Eins og Fréttablaðið hefur
greint frá var stúlkan, sem er
rúmlega tvítug, á leið heim af
skemmtistað aðfaranótt laugar-
dagsins þegar maður réðst að
henni í Grófinni í Reykjavík og
nauðgaði henni. Hún hlaut nokkra
áverka við ofbeldið. Hún hefur
gefið nokkuð greinargóða lýsingu
á gerandanum, sem lögreglan
leitar nú. Meðal annars er verið
að fara í gegnum gögn úr
eftirlitsmyndavélum á svæðinu.
- jss
Stúlka kærir nauðgun:
Lögregla leitar
að nauðgara
FJÖLMIÐLAR Ræða hefði átt samning Ríkisútvarpsins
við Björgólf Guðmundsson um styrki við innlenda
dagskrárgerð í stjórn RÚV áður en hann var undirrit-
aður, segir Svanhildur Kaaber, fulltrúi Vinstri grænna
í stjórn RÚV.
Málið verður á dagskrá stjórnarfundar í dag og
mun Páll Magnússon útvarpsstjóri kynna samninginn.
Svanhildur segir það óeðlilegt að stjórnarmenn hafi
ekki fengið upplýsingar um samninginn fyrr.
„Ég hef mjög miklar efasemdir um þetta samkomu-
lag,“ segir Svanhildur. Hún tekur fram að hún hafi
ekki fengið að sjá samninginn en byggi skoðun sína að
svo komnu máli á því sem komið hafi fram í fjölmiðl-
um. „Ég tel hættu á að hér sé auðmaðurinn að skapa
sér aðstöðu innan Ríkisútvarpsins, en ég endurtek að
ég hef ekki séð þetta samkomulag,“ segir Svanhildur.
„Ég hef mjög miklar efasemdir um það að einn
auðmaður eða eitt fyrirtæki leggi fram svo mikið fé.
Ég veit að það er sagt að þetta eigi ekki að hafa áhrif á
dagskrá og að það hefur verið sagt að það fari ekki
króna af þessu til Sjónvarpsins, en ég hef samt
efasemdir,“ segir Svanhildur.
Ekki náðist í Ómar Benediktsson, formann stjórnar
RÚV, við vinnslu fréttarinnar í gær. - bj
Ræða hefði átt samning við Björgólf Guðmundsson í stjórn RÚV segir fulltrúi VG:
Auðmaður skapar sér aðstöðu
RÍKISÚTVARPIÐ Vika er síðan samningur Ríkisútvarpsins við
Björgólf Guðmundsson var kynntur. Í honum felst að Björg-
ólfur mun jafna þá upphæð sem RÚV ver til leikins íslensks
sjónvarpsefnis á næstu árum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Grétar, hver er sætasti þing-
maðurinn?
„Ég er á þeirri skoðun að það sé
ég en hins vegar mældist lítill blóð-
sykur í mér.“
Alþingismenn og starfsmenn Alþingis
fóru í sykurmælingu á miðvikudag
og létu mæla blóðsykur sinn. Grétar
Mar Jónsson er þingmaður Frjálslynda
flokksins.
SELTJARNARNES Bæjarstjórn
Seltjarnarness hefur ákveðið að
kennarar og ófaglært starfsfólk
sem sinnir kennslu í leik-, grunn-
og tónlistarskólum í bænum fái
fartölvu og háhraða nettengingu.
Í tilkynningu frá bænum segir
að notkun tölva í skólastarfi hafi
vaxið gríðarlega á undanförnum
árum.
Þar segir enn fremur að rík
áhersla sé lögð á nýtingu upplýs-
ingatækni í bæjarfélaginu;
skjávarpar og smarttöflur séu
staðalbúnaður í stofum. Mark-
miðið sé að auðvelda kennurum
faglega vinnu heima og að
heiman. - bj
Kennarar á Seltjarnarnesi:
Fá fartölvur og
nettengingu
Ekki samið nema
stjórnvöld gefi eftir
Samtök atvinnulífsins krefjast breytinga á samkomulagi ríkisstjórnarinnar og
Seðlabankans um verðbólgumarkmið í komandi kjarasamningum. Óskiljanlegt
að mönnum detti í hug að verkalýðshreyfingin samþykki þetta, segir ASÍ.
GYLFI ARN-
BJÖRNSSON
Ég sé ekki hvernig
mönnum dettur í hug
að Alþýðusambandið eða
verkalýðshreyfingin muni
samþykkja þetta.
GYLFI ARNBJÖRNSSON
FRAMKVÆMDASTJÓRI ASÍ
ORKUMÁL Lagt var til að Dagur B.
Eggertsson borgarstjóri fengi
umboð til að staðfesta ákvarðanir
stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur
(OR) á eigendafundi Orkuveitunn-
ar á fundi borgarráðs í gær. Eig-
endafundurinn fer fram í dag.
Um er að ræða þá ákvörðun
borgarráðs og síðar stjórnar OR
að hafna samruna Reykjavik
Energy Invest (REI) og Geysis
Green Energy (GGE). Borgarráð
frestaði tillögunni, en hún verður
rædd á aukafundi ráðsins í dag.
Svandís Svavarsdóttir, for-
maður stýrihóps sem kannað
hefur samruna REI og GGE, segir
að borgarstjóri muni fara með
fyrir fram skilgreint
umboð inn á eigendafund
OR í dag.
Í bókun Vilhjálms Þ.
Vilhjálmssonar, oddvita
Sjálf stæðis flokksins í
borgar stjórn, óskar hann
eftir því að „tillaga um
niðurstöðu í REI/GGE
málum, sem lögð hefur
verið fyrir stýrihóp um
málefni OR“, verði lögð
fram á aukafundi borgarráðs í
dag.
Svandís segir enga slíka tillögu
fram komna, þó stýrihópurinn sé
vonandi að færast nær lausn. Hún
gerir ekki ráð fyrir því að slík nið-
urstaða náist á fundum í
dag.
Til stendur að veita
borgar stjóra umboð til að
leita sátta í dómsmáli sem
Svandís höfðaði til að ógilda
eigendafund OR. Svandís
segir að með nýjum eig-
endafundi og ógildingu
ákvarðana fyrri fundar sé
dómsmálið óþarft.
Þá verður borgarstjóra
falið að beita sér fyrir viðræðum
ríkis, sveitarfélaga og meðeig-
enda í Hitaveitu Suðurnesja til að
tryggja að auðlindir og almenn-
ingsveitur verði í eigu almenn-
ings. - bj
Rætt um að veita borgarstjóra umboð fyrir eigendafund Orkuveitunnar í dag:
Stýrihópur færist nær lausn
SVANDÍS
SVAVARSDÓTTIR
FÓLK Framleiðslufyrirtækið Zik
Zak hefur keypt kvikmyndarétt-
inn að fyrstu glæpasögu Óttars
M. Norðfjörð, „Hnífur Abra-
hams“, sem kom út í byrjun
mánaðarins. Sögusvið bókarinnar
er New York og myndin verður að
líkindum á ensku. „Við höfum
fulla trú á því að kvikmyndin
verði einn af sumarsmellum
kvikmyndahúsanna innan
nokkurra ára,“ segir Þórir Snær
Sigurjónsson, framleiðandi hjá
Zik Zak. Myndin er fyrst og
fremst ætluð fyrir erlendan
markað. - sók/ sjá síðu 58
Bók Óttars M. Norðfjörð:
Hnífurinn á
hvíta tjaldið
ATVINNULÍFIÐ Krafa SA mun leiða af sér gengisfellingu og verðbólgu sem verka-
lýðshreyfingin getur ekki sætt sig við, segir framkvæmdastjóri ASÍ.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
VILHJÁLMUR
EGILSSON
REYKJAVÍK Útsvar, holræsagjald og
fasteignagjöld verða óbreytt í
Reykjavík á næsta ári. Tillaga
Dags B. Eggertssonar borgar-
stjóra þessa efnis var samþykkt í
borgarráði í gær, og vísað til
lokaafgreiðslu borgarstjórnar.
Útsvarið verður áfram það
hæsta sem heimilt er, 13,03
prósent. Holræsagjaldið verður
0,105 prósent eins og verið hefur.
Lóðaleiga fyrir íbúðarhúsnæði
verður áfram 0,08 prósent af
fasteignamatsverði, en lóðaleiga
fyrir verslunar- og iðnaðarhús-
næði verður 1 prósent. Fasteigna-
gjöld á íbúðarhús verða áfram
0,225 prósent og önnur fasteigna-
gjöld 1,32 prósent. - bj
Óbreytt gjöld í Reykjavík:
Útsvarið áfram
í hámarki
ÍBÚÐARHÚSNÆÐI Fasteignagjöld og
lóðaleiga verða óbreytt á næsta ári.
BÖRN Geir H. Haarde forsætisráð-
herra afhenti í gær börnum í
Leikskólanum Laufásborg í
Reykjavík og forráðamönnum
þeirra segulspjald með tíu
heilræðum, undir yfirskriftinni
Verndum bernskuna. Karl
Sigurbjörnsson biskup var
viðstaddur og liðsinnti forsætis-
ráðherra við útdeilinguna.
Stefnt er að því að gefa
foreldrum eða forsjármönnum
allra leikskólabarna segulspjöld
með heilræðum á næstunni. - sh
Verkefnið Verndum börnin:
Geir og biskup
gáfu heilræði
RÁÐIÐ HEILT Börn jafnt sem foreldrar
tóku segulspjöldunum fagnandi.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SPURNING DAGSINS