Fréttablaðið - 16.11.2007, Blaðsíða 4
4 16. nóvember 2007 FÖSTUDAGUR
VÍN, AP Í nýrri skýrslu Alþjóða
kjarnorkumálastofnunarinnar,
IAEA, um kjarnorkumál Írans,
segir að írönsk stjórnvöld hafi að
mestu verið samvinnuþýð
varðandi upplýsingagjöf. Þó er
varað við því að vitneskja
stofnunarinnar um framvindu
áætlunarinnar sé að minnka.
Stofnunin staðfestir jafnframt
að Íransstjórn þverskallist enn
við að fara að kröfu öryggisráðs
Sameinuðu þjóðanna um að hætta
auðgun úrans. SÞ-erindreki sagði
skýrsluna vera „hálffullt eða
hálftómt glas“. - aa
Kjarnorkumál Írans:
Gagnrýni í
skýrslu IAEA
SPÁNN, AP Spænsk stjórnvöld
freistuðu þess í gær að binda
enda á harða deilu við valdhafa í
Venesúela, sem upphófst með
reiðilegum orðaskiptum á
leiðtogafundi spænskumælandi
ríkja um síðustu helgi. Þá sagði
Spánarkonungur Hugo Chavez
Venesúelaforseta að „halda
kjafti“.
Spænski utanríkisráðherrann
Miguel Angel Moratinos sagði að
„færri stóryrða og meiri athafna“
væri þörf til að draga úr spennu.
Áður hafði Chavez sagt í hótunar-
tón að hann fylgdist grannt með
athöfnum spænskra fyrirtækja í
landi sínu. - aa
Spænsk-venesúelsk deila:
Reynt að bera
klæði á vopnin
REYKJAVÍK „Þessir lögfræðingar
komast bara upp með þetta því það
þorir enginn að mótmæla,“ segir
Elías Rúnar Sveinsson, skuldarinn
sem í blaðinu í gær vakti athygli á
miklum kostnaði við innheimtu
vangoldinna fasteignagjalda.
Elías samdi að lokum við borg-
ina um að með því að greiða sam-
dægurs fengi hann að komast hjá
innheimtukostnaði.
„Þetta var alls sextíu þúsund
króna skuld sem lögfræðingarnir
voru búnir að hækka í hundrað
þúsund krónur með öllum þessum
bréfum,“ segir Elías. Hann samdi
um að greiða 69.000 krónur beint
til borgarinnar.
„Það er alltaf samningsmögu-
leiki, til dæmis ef fólk greiðir upp
skuldir sínar samdægurs,“ segir
Helgi Þór Jónasson, innheimtu-
stjóri fjármálaskrifstofu Reykja-
víkurborgar. Betra sé að fá gjöldin
strax en að bíða og auka kostnað.
Elías sá fram á að þurfa að
greiða um 55 prósentum meira í
fasteignagjöld en hann skuldaði,
að mestu vegna innheimtukostnað-
ar einkafyrirtækis.
Upphæðin sem hann samdi um
er hins vegar svipuð þeirri og hann
hefði greitt Tollstjóranum, sem
áður sá um innheimtu fasteigna-
gjalda fyrir borgina, með höfuð-
stóli og dráttarvöxtum. - kóþ
Skuldari hvetur Reykvíkinga til að mótmæla dýrri innheimtu einkafyrirtækja:
Samdi framhjá lögfræðingum
Í BANKANUM Með því að semja beint
við lánardrottin má komast hjá því að
greiða innheimtukostnað einkafyrir-
tækja, í það minnsta í sumum tilfellum.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SVEITARSTJÓRNIR Bæjarfulltrúar á
Akranesi segja forsvarsmenn
knattspyrnufélagsins ÍA hafa
brotið reglur bæjarins með því að
halda almennan dansleik með vín-
veitingum í íþróttahúsinu á
Jaðars bökkum.
Árleg uppskeruhátíð knatt-
spyrnudeilda ÍA var haldin á
Jaðars bökkum 6. október síðast-
liðinn. Selt var í mat og á dansleik
og voru vínveitingar í boði. Í sam-
þykkt bæjarstjórnar er kveðið á
um að öll notkun íþróttamann-
virkja til almenns dansleikja-
halds þar sem áfengi sé haft um
hönd sé bönnuð.
„Auglýsingar varðandi
umrædda hátíð fóru í bága við
reglur og framkvæmdin einnig
þar sem framkvæmdin var sem
um almennan dansleik væri að
ræða,“ segir Gísli S. Einarsson
bæjarstjóri í bréfi sem hann rit-
aði rekstrarfélagi ÍA með óskum
um skýringar.
Formaður Rekstrarfélags
Knattspyrnufélags ÍA er fyrrver-
andi bæjarstjóri á Akranesi, Gísli
Gíslason. Í svari til bæjarstjórans
segir formaðurinn að þegar ÍA
hafi sótt um leyfi fyrir lokahófinu
hafi verið fullljóst með hvað hætti
það yrði haldið. Bæjarráði hefði
verið í lófa lagið að hafna erind-
inu teldi það reglur mundu verða
brotnar.
Gísli Gíslason segist ekki efast
um staðfestu og vilja Akranes-
kaupstaðar að berjast gegn
áfengis notkun með því að banna
almennt dansleikjahald í íþrótta-
húsum en bendir á að slíkt tíðkist
í öllum sveitarfélögum sem hann
þekki til. Það sé „lágmarks kurt-
eisi“ af hálfu ÍA að halda lokahóf
með þeim hætti að leikmenn og
stuðningsmenn geti fagnað góðum
árangri saman. Engin hús á Akra-
nesi dugi undir samkomu af þeirri
stærðargráðu nema íþróttahúsin
sem fáist afnot af með velvilja
bæjaryfirvalda:
„Án þess velvilja er um tvennt
að ræða: Annað hvort halda mun
minni samkomu fyrir leikmenn,
stjórn og fáa útvalda velunnara
eða halda lokahófið í Borgarnesi,
Mosfellsbæ eða Reykjavík,“ segir
formaður ÍA sem telur þó hvor-
ugan þessara kosta góðan. Hann
vilji sátt um að lokahófið fari að
ári fram á sama hátt og verið
hefur.
„Má eflaust velta vöngum yfir
gildi þeirrar stefnu að beina ungu
fólki almennt til nágrannasveitar-
félaganna eða höfuðborgarinnar í
leit að dansleik eða skemmtun á
meðan blandaðar samkomur ungs
fólks og þeirra sem eldri eru
ganga prýðilega fyrir sig annars
staðar,“ segir Gísli Gíslason.
gar@frettabladid.is
ÍA-menn brutu reglur
með balli á Akranesi
Knattspyrnufélagið ÍA braut reglur Akraneskaupstaðar með því að veita vín á
almennum dansleik í íþróttahúsi bæjarins. Formaður ÍA segir félagið leita út
fyrir bæinn með lokahóf sín fáist ekki áframhaldandi leyfi fyrir samkomunum.
FASTEIGNIR Ríkiskaup hafa nú sett
á sölu fasteignir fyrrverandi
grunnskólans í Nesjum við
Hornafjörð. Heildarflatarmál
bygginganna er 2.492 femetrar.
„Um er að ræða einbýlishús,
heimavistarskólahúsnæði,
kennslustofur, mötuneyti, fjórar
íbúðir og geymslur“, segir á
vefsetri Ríkiskaupa, þar sem
óskað er eftir tilboðum í Nesja-
skóla fyrir klukkan tíu hinn 11.
desember næstkomandi. Þess má
geta að 7.700 fermetra leigulóð
fylgir með Nesjaskóla. Fasteigna-
mat skólans er 54 milljónir króna
en brunabóta matið sexfalt hærra,
eða 325 milljónir. - gar
Ríkiskaup óska tilboða:
Selja Nesjaskóla
við Hornafjörð
NESJASKÓLI Seldur ef viðunandi boð
fæst.
MENNING Menningarráði Vest-
fjarða bárust 104 umsóknir um
styrki úr menningarsjóði ráðsins,
en umsóknarfrestur rann út
snemma í nóvembermánuði.
Umsóknir voru fjölbreyttar, sem
er að mati ráðsins til marks um
grósku í uppbyggingu og þróun
vestfirsks menningarlífs.
Sótt var um styrki að upphæð
72,5 milljónir króna sem er
umtalsvert meira en sjóðurinn
hefur úr að spila. Menningarráð
hefur hafist handa við að skoða
umsóknir og mun niðurstöðu að
vænta um næstu mánaðamót. - shá
Menningarráð Vestfjarða:
Sótt var um 104
menningarstyrki
BELGÍA, AP Þegar 158 dagar eru
liðnir frá þingkosningum án
þess að hilli undir að takist að
mynda nýja ríkisstjórn gerast
kröfur æ háværari um aðskilnað
flæmsku- og frönskumælandi
hluta Belgíu, Flandurs og
Vallóníu.
Þegar Filippus krónprins gekk
upp tröppurnar á dómkirkjunni í
Brussel í gær til að mæta í
hátíðarguðsþjónustu í tilefni af
konungsdeginum stukku
flæmskir aðskilnaðarsinnar að
honum og hrópuðu „Niður með
Belgíu!“. - aa
Stjórnarkreppan í Belgíu:
Aðskilnaðaróp
á konungsdegi
FILIPPUS KRÓNPRINS Flæmskir aðskiln-
aðarsinnar gerðu hróp að honum í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
GÍSLI S.
EINARSSON GÍSLI GÍSLASON
LOKAHÓF ÍA
AUGLÝST Knatt-
spyrnumenn á
Akranesi máttu
ekki halda
almennan
dansleik með
vínveitingum á
Jaðarsbökkum.
GENGIÐ 15.11.2007
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
117,2779
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
60,45 60,73
123,65 124,25
88,33 88,83
11,85 11,92
11,072 11,138
9,542 9,598
0,5466 0,5498
95,61 96,17
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR