Fréttablaðið - 16.11.2007, Síða 6

Fréttablaðið - 16.11.2007, Síða 6
6 16. nóvember 2007 FÖSTUDAGUR LÖGREGLUMÁL Fulltrúar Samkeppnis- eftirlitsins með húsleitarheimild frá Héraðsdómi Reykjavíkur og í lögreglufylgd gerðu í gærmorgun húsleit á skrifstofum Haga, þar á meðal Bónuss, og Krónunnar. „Þetta er sú rannsókn sem við óskuðum eftir að yrði gerð. Þetta er bara það sem þurfti,“ sagði Guð- mundur Marteinsson, fram- kvæmdastjóri Bónuss, á skrifstofu sinni í Skútuvogi um klukkan ell- efu í gærmorgun. Hálfum öðrum tíma fyrr höfðu starfsmenn samkeppniseftirlitsins mætt á skrifstofuna. Einn þeirra var enn að störfum þegar Frétta- blaðið bar að garði en aðrir voru farnir. „Hér fóru þeir út með hálfan pappakassa af gögnum auk afrita af tölvugögnum. Þetta eru við- skiptasamningar og tölvupóstar,“ sagði Guðmundur. Starfsmenn eftirlitsins gerðu einnig húsleit á skrifstofum Haga við Hagasmára í Kópavogi. Eysteinn Helgason, forstjóri Kaupáss sem rekur Krónuna, sagð- ist taka rannsókn samkeppniseftir- litsins fagnandi. Rætt var við hann laust fyrir klukkan tólf á hádegi í skrifstofum Kaupáss í Húsgagna- höllinni. Þá voru enn að minnsta kosti þrír starfsmenn samkeppniseftirlitsins á staðnum og einn lögreglumaður. „Þegar þessi umræða fór í gang og það komu fram rakalausar dylgjur um við höfðum samráð af einhverju tagi við okkar keppi- nauta og samráð við birgja þá höfn- uðum við því og hvöttum til opin- berrar rannsóknar. Þetta er partur af þeirri rannsókn,“ sagði Eysteinn sem kvað samkeppniseftirlitið fá allt sem um væri beðið. „Við höfum lagt áherslu á við okkar starfsmenn að sýna sam- vinnu með rannsóknarmönnum og láti þá hafa öll gögn sem þeir biðja um,“ sagði Eysteinn sem kvað engin gögn mundu finnast hjá Kaupási um samskipti Bónuss og Krónunnar. „Samskiptin eru engin þannig að það er ekki nein hætta á því,“ sagði hann. Guðmundur Marteinsson sagðist engar upplýsingar hafa fengið um það hvenær niðurstöðu rannsóknar samkeppniseftirlitsins væri að vænta. Hann væri hins vegar alveg viss um það hver útkoman yrði. „Þetta hefur engin áhrif á Bónus. Við höfum ekkert að fela. Það er bara þannig,“ sagði framkvæmda- stjóri Bónuss. gar@frettabladid.is Húsleit vel fagnað í Bónus og Krónunni Samkeppniseftirlitið gerði í gær húsleit á skrifstofum Haga, Bónuss og Krónunn- ar í leit að gögnum um hugsanlegt ólöglegt samráð um verð. Forsvarsmenn Bón- uss og Krónunnar sögðu húsleitina þátt í rannsókn sem þeir sjálfir hafi hvatt til. EYSTEINN HELGASON Forstjóri Kaupáss segir fullyrðingar um verðsamráð Krónunnar og Bónuss vera rakalausar dylgjur. Á skrifstofunni aftan við forstjórann eru starfs- menn Samkeppniseftirlitsins í lögreglufylgd að afla gagna. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI GUÐMUNDUR MARTEINSSON Framkvæmdastjóri Bónuss á skrifstofu sinni þar sem starfsmenn samkeppniseftirlitsins lögðu hald á ýmsa pappíra og tölvugögn. Hann segir Bónus ekkert hafa að fela. LÖGREGLUMÁL Samkeppniseftirlitið (SE) segir húsleitir í gær hjá fyrir- tækjum á matvörumarkaði byggj- ast á upplýsingum frá einstakling- um og fyrirtækjum. Allmargir hafi brugðist við því þegar SE hvatti í byrjun nóvember þá sem töldu sig hafa upplýsingar um samkeppnislagabrot að koma þeim á framfæri við eftirlitið. Aðrar athuganir á þessum markaði standi einnig yfir. Páll Gunnar Pálsson, forstjóri SE, segir að í húsleitunum hjá birgj- unum þremur hafi ekki einungis verið lagt hald á gögn sem tengjast smásöluverslununum, heldur hafi verið farið í hús- leitirnar á grund- velli hugsanlegs samráðs verslana sem og birgja. Páll Gunnar segir að fjölmiðla- umfjöllun um sam- ráð matvöruversl- ana fyrir skömmu hafi ekki verið næg forsenda fyrir húsleit. „Okkur hafa hins vegar verið að berast upplýsingar frá einstaklingum og fyrirtækjum síðustu daga í framhaldinu af fjöl- miðlaumfjölluninni og þær leiddu til þess að við töldum óhjákvæmi- legt að fara í þessar húsleitir.“ Spurður um ummæli fram- kvæmdastjóra Bónus og forstjóra Kaupáss segir Páll Gunnar að SE fari ekki í húsleitir á grundvelli beiðna frá fyrirtækjum. „Þetta er vel undirbúin athugun sem er farið í að okkar frumkvæði, ekki ein- hverra annarra, og er sniðin að þeim atriðum sem við teljum nauð- synlegt að skoða.“ í tilkynningu frá eftirlitinu eru fyrirtæki hvött til að koma hreint fram og viðurkenna samráð ef um það er að ræða. Það geti leitt til vægari refsinga. - gar/- sh Samkeppniseftirlit segist hafa fjölda ábendinga um samráð á matvörumarkaði: Margar heimildir um samráð PÁLL GUNNAR PÁLSSON LÖGREGLUMÁL Heildsölufyrirtækin Innnes, Ó. Johnson & Kaaber og Íslensk-Ameríska fengu öll heimsókn í gær frá Samkeppnis- eftirlitinu. Gerð var húsleit hjá fyrirtækjunum vegna meints samráðs um verðlagningu á matvörumarkaði. „Við erum að blandast að ósekju inn í þetta mál,“ sagði Páll Hilmarsson, markaðsstjóri Innnes, sem kveður húsleitina hafa komið flatt upp á starfsfólk. Hvorki náðist tal af Ólafi Ó. Johnson, forstjóra Ó. Johnson og Kaaber, né Agli Ágústssyni, framkvæmdastjóra Íslensk- Ameríska. - gar Verðsamráð í matvöru: Þrír birgjar rannsakaðir Hin rómaða Þakkargjörðarveisla Hótel Cabin verður haldin dagana 22. og 23. nóvember. Í hádeginu 22. og 23. nóvember. Föstudagskvöldið 23. nóvember. Verð einungis: 1.850 kr 2.550 kr föstudagskvöld Léttir djazztónar verða leiknir yfir borðhaldi á föstudagskvöldinu. Borðapantanir í síma 511 6030 HOTEL CABIN ÞAKKARGJÖRÐAR KALKÚNN Á HÓTEL CABIN WWW.SVAR.IS - SÍÐUMÚLA 37 - SÍMI 510 6000 Týpa: PV70 VERÐLAUNAÐ SJÓNVARP 189.900- Glæsilegt tæki af nýjustu kynslóðinni sem fékk nýlega hin eftirsóttu EISA verðlaun. HDTV Ready / Upplausn1024x768 / Skerpa: 10.000:1 42” plasma ORKA „Mér finnst þetta verulega á mörkunum, svo ekki sé fastar að orði kveðið,“ segir Svandís Svavarsdóttir um samning sveitar félagsins Ölfuss og Orku- veitunnar, sem greint var frá í blaðinu í gær. Í fundargerð um samninginn, sem fjallar um virkjanir á Hellis- heiði og Hengilssvæðinu, skrif- aði bæjarstjórnin að svæðið verði „skipulagt af sveitarfélaginu til samræmis við þær framkvæmd- ir sem fyrirhugaðar eru“. Fyrir- vari var settur um að byggt skyldi á lögum um mat á umhverfis áhrifum. „Þetta finnst mér orka tvímælis,“ segir Svandís, sem fer fyrir stýrihópi um málefni REI og Orkuveitunnar. Skipulag eigi ekki að ákveða fyrir fram, eins og þarna virðist vera gert, heldur lúta lögbundnu ferli. Það sem hún hafi heyrt um samninginn virki illa á sig. Siðareglur Orkuveitunnar þurfi að öllum líkindum að herða. „Og það gefur auga leið að það þarf að skoða með hvaða hætti Orkuveitan kemur fram við sína samningsaðila,“ segir hún en býst við því að þetta verði tekið fyrir í stjórnsýsluúttekt á Orkuveitunni, sem nú stendur yfir. - kóþ Svandís Svavarsdóttir telur samning Orkuveitu og Ölfuss vafasaman: Skipulag lagað að framkvæmd SVANDÍS SVAVARSDÓTTIR Í samningnum var meðal annars kveðið á um að Orku- veitan veitti sveitarfélaginu 45 milljónir til að mæta auknu álagi á bæjarstjóra og bæjarstjórn. Hefur þú verslað í Fríhöfninni í Flugstöð Leifs Eiríkssonar á þessu ári? Já 72% Nei 28% SPURNING DAGSINS Í DAG: Ertu byrjuð/byrjaður að kaupa jólagjafir? Segðu skoðun þína á visir.is. KJÖRKASSINN
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.