Fréttablaðið - 16.11.2007, Síða 8
16. nóvember 2007 FÖSTUDAGUR
HEILL LÍTRI AF FERSKUM
FRISSA FRÍSKA
Hvernig getum við tryggt svo góð lífskjör á Íslandi, að ungt og framtakssamt fólk
vilji vera hér um kyrrt?
Hvaða áhrif hafa skattalækkanir á verðmætasköpun þjóðarinnar?
Getur Ísland orðið að fjármálamiðstöð með því að lækka skatta á fyrirtæki?
Geta skatttekjur ríkisins hækkað, þótt skattar lækki?
Dagskrá:
Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra: Setningarávarp
Prófessor Arthur Laffer: The Benefits of Tax Cuts
Prófessor Guðmundur Magnússon: Umsögn
Spurningar og svör
Ágúst Ólafur Ágústsson, varaform. Samfylkingarinnar: Lokaorð
Öllum opið – ókeypis aðgangur
Nánari upplýsingar: www.skattamal.is, www.sa.is
Guðmundur Magnússon Ágúst Ólafur Ágútsson Árni M. Mathiesen Arthur Laffer
Íslenska efnahagsundrið?
Hvernig verður því haldið áfram?
Hádegiserindi Samtaka atvinnulífsins og Félagsvísindastofnunar Háskóla
Íslands með einum frægasta hagfræðingi heims, Arthur Laffer, sem Laffer-boginn
er kenndur við, í Þjóðmenningarhúsinu föstudaginn 16. nóvember kl. 12.00
Sjálfsmyndin skiptir máli. Þú nærð
aldrei að uppfylla drauma þína ef þú
byrjar að drekka of snemma. Það er
töff að segja nei.
DÓMSMÁL „Það er viðvarandi
vandamál að sakborningar mæti
ekki fyrir dóm þegar á að birta
þeim ákærur og þingfesta mál.
En það er ekki að færast í vöxt.“
Þetta segir Jón H. B. Snorrason
aðstoðarlögreglustjóri og sak-
sóknari hjá lögreglustjóraemb-
ættinu á höfuðborgarsvæðinu.
„Stundum eru fleiri mál, heldur
en í annan tíma, sem erfiðlega
gengur að þingfesta af því að sak-
borningar mæta ekki,“ útskýrir
Jón. „Þar er miklu fremur um
sveiflur að ræða heldur en
fjölgun.“
Spurður hvaða úrræði séu fyrir
hendi til að fá sakborninga til að
mæta fyrir dóm segir Jón að í
þeim tilvikum gefi dómari út
handtökuskipun. Lögreglu sé þá
skylt að handtaka viðkomandi og
færa hann í dómsal.
„Það er talsvert um að dómari
grípi til þessa ráðs,“ segir Jón.
Hann bætir við að þegar um
minni háttar afbrot sé að ræða sé
hægt að dæma í máli sakborn-
ings að honum fjarstöddum. Þá
gangi svokallaður útivistar-
dómur.
„Hafi manni verið birt fyrir-
kall um það að búið sé að gefa út
ákæru, hann eigi að mæta fyrir
dóm og dómari telur fyrirliggj-
andi gögn í málinu nægjanleg, þá
getur dómari dæmt manninn,
þótt hann hafi aldrei komið fyrir
dóminn. En brotin mega þá ekki
varða þyngri viðurlögum en sekt,
upptöku eigna eða sviptingu öku-
réttar.“ - jss
Viðvarandi
vandamál
Talsvert er um að dómarar þurfi að gefa út hand-
tökuskipanir á sakborninga sem mæta ekki fyrir
dóm þegar birta á þeim ákærur, segir saksóknari.
DÓMSTÓLAR Hægt er að dæma sakborning til refsingar að honum fjarstöddum.
Brotin mega þá ekki varða þyngri viðurlögum en sekt, upptöku eigna eða sviptingu
ökuréttar. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
ORKUMÁL Landsvirkjun og Þeista-
reykir ehf. hafa samið við Jarð-
boranir hf. um að bora fimm
nýjar rannsóknarholur á Norð-
austurlandi á næsta ári. Boran-
irnar munu hefjast í janúar og
verður borað á Kröflusvæðinu, í
Bjarnarflagi og Gjástykki fyrir
Landsvirkjun. Fyrir Þeistareyki
verður boruð rannsóknarhola á
jarðhitasvæðinu við Þeistareyki.
Gert er ráð fyrir að holurnar
verði allar stefnuboraðar og hver
um sig verður um 2.300 metrar að
dýpt. Boranirnar eru liður í
könnun á stærð þessara jarðhita-
svæða og miða að orkuöflun fyrir
mögulega stóriðju við Húsavík.
Stefnt er að því að hefja sölu á
rafmagni frá háhitasvæðum á
Norðausturlandi 2012-2015, segir
í tilkynningu frá fyrirtækjunum.
- ghs
Orka á Norðausturlandi:
Fimm nýjar holur boraðar
ÞEISTAREYKIR Rannsóknarhola verður
boruð á jarðhitasvæðinu við Þeistareyki
á næsta ári. FRÉTTABLAÐIÐ/KRISTJÁN
FRAKKLAND, AP Mestöll umferð
járnbrautarlesta í Frakklandi var
í lamasessi í gær, annan daginn í
röð. Útlit var fyrir að verkfallið
héldi áfram í dag eftir að starfs-
menn jarðlestanna í París sam-
þykktu að halda því áfram.
En útlit var þó fyrir að hlé yrði
síðan gert á aðgerðum eftir að
Nicolas Sarkozy forseti féllst á til-
boð verkalýðsfélaga um viðræður.
Sarkozy lýsti því þó yfir um leið
að hann myndi ekki bakka með hin
umdeildu áform sín um að afnema
viss sérréttindi opinberra starfs-
manna.
Í Þýskalandi varð einnig mikil
truflun á lestarsamgöngum vegna
verkfalls lestarstjóra í gær. - aa
Verkföll í Frakklandi:
Samgöngur enn í lamasessi
ALLT STOPP Milljónir Frakka áttu í miklum
erfiðleikum með að komast í og úr vinnu
vegna verkfallsins. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
JÓN H. B.
SNORRASON