Fréttablaðið - 16.11.2007, Side 12
12 16. nóvember 2007 FÖSTUDAGUR
Virði hávaðatakmarkanir
Bæjarráð Árborgar kveðst vera
jákvætt gagnvart starfsleyfi fyrir Sel-
fossflugvöll en vill takmarkanir til að
fyrirbyggja hávaða frá starfseminni.
Slíkar takmarkanir hafi verið í gildi en
ekki verið virtar. Lögð væri áhersla á
að það yrði gert.
SELFOSS
REYKJANESBÆR „Ég tók vel í þessa hugmynd
þeirra, en þetta er ennþá fyrst og fremst bara
hugmynd,“ segir Eiríkur Hermannsson,
fræðslustjóri Reykjanesbæjar, um áætlanir
Hjálpræðishersins um að opna frístundaskóla á
Miðnesheiði. Enn á eftir að bera upp formlegt
erindi.
„Þau eru að safna fyrir húsnæði upp frá, en
ég lít á þetta sem heppilegan valkost. Í
frístundaskólum bæjarfélagsins eru æfinga-
gjöld fyrir eina grein hjá íþróttafélagi inni-
falin. Ég lít á hugmyndir Hjálpræðishersins
sem valmöguleika fyrir foreldra barna sem
hafa ekki áhuga á íþróttaiðkun,“ segir Eiríkur.
Leikskóli Hjallastefnunnar sem starfræktur er
á Vellinum fær einnig að ráðstafa fé sem
eyrnamerkt er frístundum að eigin vild.
Markmið Hjálpræðishersins er að starf-
rækja frístundaskóla þar sem eru færri börn á
hvern starfsmann og hægt að sinna hverjum
einstaklingi betur. „Þau vilja ekki skilgreina
skólann sem úrræði fyrir börn með sértæk
vandamál, heldur verður þetta almennur
frístundaskóla og framlög bæjarins yrðu þau
sömu og annars staðar. Það getur vel verið að
það sé eftirspurn eftir því.“
Þetta yrði líklega í fyrsta sinn á Íslandi sem
frístundaskóli yrði rekinn af trúfélagi. Eiríkur
hefur litlar áhyggjur af trúarlegri tengingu
heimilisins.
„Hjálpræðisherinn starfar á línu Þjóðkirkj-
unnar og ég sé ekkert að því. Hann setur ekki
fyrir sig trú fólks, litarhátt eða kyn. Ég lít á
hann sem hjálparsamtök, sem vinna sam-
kvæmt kristilegu siðgæði og umburðarlyndi.“
- eb
Fræðslustjóra Reykjanesbæjar líst vel á hugmynd Hjálpræðishersins um frístundaskóla:
Fyrir þá sem hafa ekki áhuga á íþróttum
HJÁLPRÆÐISHERINN Fólk á vegum hans vill opna
frístundaskóla á Miðnesheiði. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
LÖGREGLUMÁL Íslendingurinn sem
situr í gæsluvarðhaldi í Þórshöfn
í Færeyjum vegna stóra fíkni-
efnamálsins sem upp kom á
Fáskrúðsfirði í september,
geymdi tæp tvö kíló af fíkni efnum
í skottinu á bíl sínum. Þar fann
lögreglan efnin, samkvæmt upp-
lýsingum Fréttablaðsins.
Gæsluvarðhald mannsins, sem
er 24 ára, rennur út 30. nóvem-
ber. Samkvæmt upplýsingum frá
Berglev Brimvik, yfirmanni
rannsóknardeildar lögreglunnar
í Þórshöfn, verður lögð fram
krafa um áframhaldandi gæslu-
varðhald.
Efnin sem lögreglan fann í bíl
mannsins voru tæpt kíló af e-
töfludufti og um það bil 800
grömm af amfetamíni, en rann-
sókn málsins er að mestu lokið, að
sögn Brimvik.
Maðurinn er grunaður um að
hafa aðstoðað Íslendingana sem
reyndu að smygla 40 kílóum af
amfetamíni, e-töfludufti og e-
töflum til landsins í september.
Skúta þeirra var tekin í Fáskrúðs-
fjarðarhöfn eins og kunnugt er,
en á leiðinni hingað til lands kom
skútan við í Færeyjum.
Maðurinn hefur tengsl bæði
hér á landi og í Færeyjum, þar
sem hann hefur búið um tíma og
haft þar mismunandi dvalarstaði.
Hann hefur verið við vinnu þar
en á ekki afbrotaferil að baki.
„Þetta er langstærsta fíkniefna-
mál sem upp hefur komið í Fær-
eyjum,“ segir Berglev Brimvik,
yfirmaður rannsóknardeildar.
Fjórir sitja enn í fangelsi hér á
landi vegna málsins.
jss@frettabladid.is
Með tvö kíló af fíkni-
efnum í bílskottinu
Rúmlega tvítugur Íslendingur sem situr í gæsluvarðhaldi í Færeyjum vegna
Pólstjörnumálsins var tekinn með tæp tvö kíló af fíkniefnum í skottinu á bíl
sínum. Rannsókninni er að mestu lokið, að sögn yfirmanns lögreglunnar.
ÞÓRSHÖFN Í FÆREYJUM Rúmlega tvítugur Íslendingur situr enn í gæsluvarðhaldi í Þórshöfn vegna Pólstjörnumálsins svonefnda.
Rannsókn á þætti mannsins í málinu er að mestu lokið. NORDICPHOTOS/AFP
Tvítug stúlka hefur verið ákærð fyrir
Héraðsdómi Norðurlands vestra
vegna aksturs undir áhrifum amfet-
amíns. Hún gat ekki stjórnað bifreið-
inni örugglega. Lögregla stöðvaði för
hennar.
LÖGREGLUMÁL
Ók undir áhrifum amfetamíns
GIRNILEGIR VEISLUBAKKAR
MEÐ LITLUM FYRIRVARA
5554 6999 | www.jumbo.is
BLANDAÐUR
BAKKI 3.580 kr.
SAMLOKU-
BAKKI 2.890 kr.
TORTILLA
& PÓLARBRAUÐ
3.480 kr. FONDU
SÚKKULAÐIBAKKI
2.950 kr.
32
BITAR
10
MANNS
36
BITAR
36
BITAR
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665
sala@rv.is • www.rv.is
Gólfþvottavélar
á rekstrarleigu
Engin útborgun, engin fjárbinding,
aðeins mánaðarlegar greiðslur.
TASKI Swingo 1250 B
RV
U
N
IQ
U
E
10
07
01
Leitið nánari upplýsinga hjá sölumönnum og ráðgjöfum RV
TASKI swingo XP
TASKI swingo 3500 B
TASKI swingo 1250 B
TASKI swingo 750 B
TASKI swingo gólfþvottavélar
Einfaldar í notkun - liprar og
leika í höndunum á þér
Bjarnþór Þorláksson,
bílstjóri hjá RV
ERKIKLERKS MINNST Íraskur maður
kyssir gröf erkiklerksins Mohammeds
Sadiq Al-Sadr í borginni Najaf, sem
er heilög í hugum sjía-múslima.
Fylgismenn hans komu saman í Najaf
í gær til að minnast þess að átta ár
voru liðin frá því að hann var myrtur.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP