Fréttablaðið - 16.11.2007, Side 22
22 16. nóvember 2007 FÖSTUDAGUR
taekni@frettabladid.is
TÆKNIHEIMURINN
Vefurinn: FlickrVision
Skoðaðu á korti hvaða myndir
fólk er að senda inn á Flickr-
ljósmyndavefinn og hvaðan í
heiminum þær koma.
www.flickrvision.com
Uppfærsla fyrir Tiger-notendur
Þó að ný útgáfa stýrikerfisins Mac OS X, Leopard, sé komin út hefur Apple ekki
gleymt þeim sem ákváðu að kaupa nýja stýrikerfið ekki. Á miðvikudaginn gaf
fyrirtækið út uppfærslu fyrir eldri útgáfu Mac OS X, Tiger, sem inniheldur meðal
annars vafrann Safari 3, betri stuðning við utanáliggjandi USB-drif og nýjustu
öryggisuppfærslurnar.
YouTube eykur gæðin
Myndbönd á YouTube-vefnum fræga verður brátt hægt að horfa á í hærri upp-
lausn. Einn stofnenda fyrirtækisins, Steve Chen, staðfesti þetta á NewTeeVee-
ráðstefnunni í San Francisco í Bandaríkjunum á miðvikudag. Til að byrja með mun
vefurinn nema hraða nettengingar notandans og bjóða þeim myndbönd í hærri
upplausn sem ráða við að streyma þeim yfir netið.
Veiða regnboga í gildru
Vísindamenn við Surrey-háskóla í Bretlandi hafa fundið leið til að stöðva ljósgeisla
inni í efni sem aðskilur ljósgeislann í grunnliti sína — og búa þannig til regnboga
sem veiddur hefur verið í gildru. Til þess að stöðva ljósið nota þeir sérstakt efni
sem hefur neikvæðan ljósbrotsstuðul. Það þýðir að í stað þess að ljósið ferðist á
nokkurn veginn sama hraða í gegnum efnið hægir það stöðugt á sér þangað til
það stöðvast.
PlayStation 3 selst betur eftir verðlækkun
Sala á PlayStation 3 leikjatölvunni í Bandaríkjunum hefur rúmlega
tvöfaldast eftir að útsöluverð tölvunnar var lækkað um sem
samsvarar sex þúsund krónum. Eftir að verðið lækkaði18. október
hefur vikuleg sala náð yfir hundrað þúsund eintök samkvæmt
Sony, sem framleiðir tölvuna.
Engin leikjatölva frá Nin-
tendo getur verið án við-
eigandi Mario-leiks og Wii
er engin undantekning.
Nýjasti kaflinn í sögunni
um feita ítalska píparann
og ævintýri hans kemur út í
Evrópu í dag, og hefur hann
hlotið frábærar viðtökur
gagnrýnenda.
Tölvuleikirnir um Mario eru meðal
þeirra vinsælustu í heimi, og hafa
verið það síðan fyrsti leikurinn
fyrir sjónvarpsleikjatölvu kom út
árið 1983. Grunnurinn í leikjunum
hefur haldist nokkurn veginn sá
sami í þessi 24 ár — Mario reynir
að ná prinsessunni úr klóm Bowser
með því að leysa þrautir og drepa
óvini á leiðinni — en í hverjum leik
hefur einhverju nýju verið bætt
við. Í Super Mario Galaxy er mark-
miðið hið sama og venjulega en nú
fer leikurinn fram í geimnum.
Mario leysir hverja þrautina af
annarri á leið sinni gegnum stjörnu-
þokur og sólkerfi, og þarf til þess
meðal annars að nýta sér mismun-
andi þyngdarafl pláneta.
Mario er stjórnað með stýripinn-
anum á Nunchuk-viðbót Wii-fjar-
stýringarinnar, og er hægt að láta
hann gera sérstakar hreyfingar
með því að hrista sjálfa fjarstýr-
inguna. Tveir geta spilað leikinn
saman, þannig að annar stýrir
Mario en hinn kastar stjörnum í
óvini með því að benda á þær á
skjánum.
Leikurinn var fyrst sýndur á E3-
leikjaráðstefnunni í fyrra og hlaut
mikla athygli sýningargesta. Tölvu-
verslanir í Japan pöntuðu sjö
hundruð þúsund eintök af leiknum
nokkrum mánuðum fyrir útgáfu-
dag, og fjögur hundruð þúsund
leikjaunnendur tóku leikinn frá í
verslunum GameStop í Bandaríkj-
unum löngu áður en hann kom út.
Síðan hann kom út í Bandaríkjun-
um fyrir nokkrum dögum hafa
gagnrýnendur tekið Super Mario
Galaxy fagnandi og gefið honum
einkunnir sem hafa sjaldan sést
áður. Vefurinn Gamerankings.com
tekur saman leikjagagnrýni margra
mismunandi tölvuleikjablaða og -
vefja, og er meðaleinkunn Super
Mario Galaxy 97,5 prósent úr 24
leikjadómum þegar þetta er skrifað.
Hann situr í öðru sæti yfir leiki
með hæstu meðaleinkunn allra
tíma, einum tíunda úr prósenti á
eftir The Legend of Zelda: Occarina
of Time. salvar@frettabladid.is
Stjörnum prýddur Mario
SUPER MARIO GALAXY Í leiknum ferðast píparinn knái um stjörnuþokur og sólkerfi í
leit að prinsessunni, sem Bowser hefur rænt.
Sautján ára gamall Hollendingur
hefur verið handtekinn, grunaður
um að hafa stolið sýndarhúsgögn-
um úr herbergi í tölvuleiknum
Habbo Hotel. Þó að húsgögnin
séu óáþreifanleg eru þau metin á
um 350 þúsund krónur.
Fimm fimmtán ára drengir
hafa einnig verið yfirheyrðir
vegna málsins, en þeir eru grun-
aðir um að hafa flutt húsgögnin
yfir í sín eigin herbergi í leikn-
um.
Á fréttavef BBC segir tals-
maður Sulake, fyrirtækisins sem
gerir leikinn, að hinir grunuðu
hafi platað fórnarlambið til að
gefa upp lykilorðið sitt og notað
það til að stela öllu steini léttara
úr herbergi þess í leiknum. „Þetta
er þjófnaður því húsgögnin eru
keypt með alvöru peningum.“ - sþs
Einn handtekinn og fimm yfirheyrðir í Hollandi:
Stálu sýndarhús-
gögnum í tölvuleik
Skortur er á starfsfólki í upplýsingatæknigeiranum. Fjall-
að verður um vandann á ráðstefnu Skýrslutæknifélags
Íslands, sem nefnist Hugbúnaðargerð á krossgötum,
næsta þriðjudag. Sturla Hreinsson, starfsmannastjóri
Nýherja, segir erfiðara en áður að finna fólk í sérfræði-
störf hjá fyrirtækinu.
„Já, við höfum fundið fyrir þessum skorti, því er ekki
að leyna. Það tekur töluvert lengri tíma að finna fólk en
fyrir tveimur árum. Samkeppnin er greinilega hörð um
fólkið sem er með þessa tilteknu menntun og þjálfun
sem við erum að leita að.“
Spurður hver sú menntun sé segir Sturla starfsfólk
vanta í nær alla flóruna. „Við erum að ráða fólk með
þekkingu á rekstri tölvukerfa, símkerfum, netkerfum og
fleira. Fólkið sem sinnir þessum störfum hefur marg-
víslegan bakgrunn; rafeindavirkjun, verkfræði, tölvunar-
fræði, allt frá því að vera með iðnmenntun og upp í
hærri háskólagráður.“
En hvers vegna ætli þessi mannekla sé í atvinnugeira
sem hingað til hefur verið þekktur fyrir tiltölulega
góð laun? „Ætli við getum ekki sagt að það sé
svo margt annað spennandi í boði núna sem
var kannski ekki komið til um aldamótin
þegar ástandið var betra. Vöxturinn í fjár-
málageiranum er mannfrekur og hefur tekið
stóran hluta af verkfræði- og viðskipta-
fræðimenntuðu fólki. Vöxtur í atvinnulífinu
tekur til sín fólk og vel menntað fólk er
eftirsótt.“
Hann segir Nýherja ekki hafa þurft
að fresta verkefnum vegna skorts á
starfsfólki. „Ég myndi frekar segja að það
starfsfólk sem við höfum hafi lagt harðar
að sér við að leysa þau verkefni sem
við erum að glíma við hverju sinni. Við
höfum sem betur fer ekki þurft að fresta
áformum vegna manneklu og munum
ekki gera það.“
TÆKNISPJALL: SKORTUR Á STARFSFÓLKI Í UPPLÝSINGATÆKNIGEIRANUM
Hart barist um fólk með rétta menntun
Miele CAT&DOG
Ryksuga fyrir kröfuharða
gæludýraeigendur
AFSLÁTTUR
20%
Tilboðsverð:
Kr. 30.720
Miele CAT&DOG 5000