Fréttablaðið - 16.11.2007, Side 24
24 16. nóvember 2007 FÖSTUDAGUR
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
OMX ÍSLAND 15 Fjöldi viðskipta: 527
7.326 -1,53% Velta: 6.924 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Atorka 10,30 -2,65% ... Bakkavör
59,00 -1,34% ... Eimskipafélagið 38,75 -1,15% ... Exista 29,60 -2,31%
... FL Group 22,15 -1,56% ... Glitnir 25,85 -1,34% ... Icelandair 24,25
+0,21% ... Kaupþing 983,00 -1,70% ... Landsbankinn 39,50 -1,25%
... Straumur-Burðarás 17,15 -1,44% ... Össur 101,00 -1,94% ... Teymi
6,48 -6,48%
MESTA HÆKKUN
365 1,61%
ICELANDAIR 0,21%
EIK BANKI 0,16%
MESTA LÆKKUN
FØROYA BANKI 2,93%
ATLANTIC PETROL. 2,87%
ATORKA 2,65%
Forráðamenn Stillu og tengdra
félaga, sem eiga um þriðung í
Vinnslustöð Vestmannaeyja
(VSV), hafa beðið um hluthafa-
fund í VSV. Í yfirlýsingu stjórnar
VSV kemur fram að forráðamenn
Stillu óski meðal annars eftir
rannsókn á viðskiptum félagsins
og einstakra stjórnenda, samn-
ingum við fyrirtæki og viðskipta-
banka.
Forráðamenn Stillu eru á móti
afskráningu VSV úr Kauphöll
Íslands sem samþykkt var með 60
prósentum hlutafjár á hluthafa-
fundi fyrir helgi. Forsvarsmenn
Eyjamanna, sem eiga rétt rúman
helming í VSV, gagnrýna að fundar-
beiðnin hafi ekki náð til allra
stjórnarmanna VSV áður en hún
var komin til fjölmiðla. „Augljóst
er að aðstandendur erindisins
birta það á þennan hátt í þeim til-
gangi að gera stjórnendur og
meirihlutaeigendur Vinnslu-
stöðvar innar tortryggilega með
tilhæfulausum dylgjum sem felast
í bréfinu til stjórnar félagsins,“
segir í yfirlýsingunni. Þar kemur
fram að erindi Stillu verði tekið
fyrir í stjórn VSV „og því verður
síðan svarað á réttum vettvangi“.
Hróbjartur Jónatansson, lög-
maður Stillu, segir stjórn VSV
hafa fjórtán daga til að boða til
fundarins. „En það getur margt
gerst í viðskiptum á hálfum mán-
uði,“ segir hann. - óká
Vilja nýjan hluthafafund
Stjórn Skipta, sem keypti
Landssíma Íslands af ríkinu
í ágúst 2005, hefur óskað
eftir því við fjármálaráðu-
neytið að fresta skráningu
félagsins í Kauphöll Íslands
fram yfir áramót.
Baldur Guðlaugsson, ráðuneytis-
stjóri í fjármálaráðuneytinu, segir
beiðnina til skoðunar. Tekin verði
afstaða til málsins eins fljótt og
kostur er. Samkvæmt kaupsamn-
ingi átti að skrá Símann í kauphöll-
ina fyrir áramót og selja þrjátíu
prósent til almennings og annarra
fjárfesta.
Pétur Þ. Óskarsson, fram-
kvæmdastjóri samskiptasviðs
Skipta, segir félagið búið að gera
óbindandi tilboð í tæpan helmings-
hlut í slóvenska símafyrirtækið
Telekom Slovenije. Ekki verði ljóst
fyrr en í árslok hvort af þessum
kaupum verði. Þetta skapi ákveðna
óvissu sem stjórnendur Kauphallar-
innar hafa vakið athygli á.
Þórður Friðjónsson, forstjóri
Kauphallar Íslands, segir það í
þágu markaðarins og fjárfesta að
fresta söluferlinu fram yfir ára-
mótin. Slóvenska símafélagið sé
stórt og hyggilegt að niðurstaðan
liggi fyrir þegar hafin verði við-
skipti með hlutabréf Skiptis. Þá
muni fjárfestar hafa góða mynd af
stöðu félagsins og framtíðar-
myndin verði skýrari. Þetta séu
sömu áherslur og viðhafðar séu við
skráningu allra annarra félaga í
Kauphöll.
Í fréttatilkynningu frá Skipti
segir að Kauphöllin hafi lýst efa-
semdum sínum um að haldið verði
áfram með skráningu Skipta á
markað á meðan óvissa ríki í
rekstri félagsins og framtíðar-
horfum. „Fyrir liggur, að vegna
ákvæða í samkomulagi við sló-
venska ríkið, er Skiptum hf. og
ráðgjöfum þess óheimilt að upp-
lýsa um hvaðeina sem varðar
möguleg kaup á Telekom Slovenije,
þar með talið nánari upplýsingar
úr rekstri félagsins, sem ekki hafa
þegar verið gerðar opinberar,“
segir í tilkynningunni. Þetta geti
verið bagalegt fyrir fjárfesta sem
hyggist leggja mat á verðmæti
hlutabréfa félagsins.
bjorgvin@frettabladid.is
Vilja fresta skráningu
Símans fram yfir áramótin
HREPPTU SÍMANN Árni Guðmundsson, framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðsins Gildis,
Þorgeir Eyjólfsson, hjá Lífeyrissjóði VR, og Erlendur Hjaltason, forstjóri Exista, fagna
því að hafa átt hæsta tilboð í Símann í júlí 2005. Þeir voru í forsvari fyrir stærstu
hluthafana í gamla ríkisfyrirtækinu ásamt Kaupþingi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Uppstokkun varð á eignarhalds-
félaginu Runnum ehf., fjórða
stærsta hluthafa í 365 í gær, og
skiptu bréf í Teymi og 365 um
hendur í kjölfarið. Runnar skipt-
ast eftir þetta í Runna og fjögur
óstofnuð félög. Ekkert liggur fyrir
um ástæðu uppstokkunarinnar að
öðru leyti en því að hún hafi lengi
staðið fyrir dyrum og fær hver
aðili bréf í félögum Runna í sam-
ræmi við eignahlut sinn.
Að Runnum stóðu félög í eigu
Magnúsar Ármanns, Þorsteins
Jónssonar og Kevins Stanford,
Bygg Invest og Primus ehf., sem
er í eigu Hannesar Smárasonar.
- jab
Stokka bréfin upp
„Það er óeðlilegt að gefa
ekki þennan kost,“ segir
Gísli Tryggvason, tals-
maður neytenda, um að
ekki sé hægt að gera ráð
fyrir verðbólgu í íbúða-
lánareiknivél Kaupþings.
Í reiknivélum annarra
banka er hægt að gera
ráð fyrir verðbólgu. Tólf
mánaða verðbólga er nú
5,2 prósent. Við endurgreiðslu og
mat á heildarkostnaði af verð-
tryggðu láni til áratuga getur
munað mjög miklu um verð-
bólguna.
„Við gerum þetta til þess að gera
viðskiptavinum kleift að meta
áhrif verðbólgunnar á lánin,“ segir
Kristinn Óskarsson, framkvæmda-
stjóri útibúasviðs Glitnis, en á vef
bankans er hægt að gera
ráð fyrir verðbólgu þegar
lán er reiknað út.
Friðrik Halldórsson,
framkvæmdastjóri við-
skiptasviðs Kaupþings,
segir hins vegar að mynd-
in sem fólk fái af endur-
greiðslum skekkist sé
gert ráð fyrir verðbólgu
við útreikning lána. „Þá
haldast verðbólga og laun nokkurn
veginn í hendur. Það eru engar
líkur á því að það verði einhver
föst verðbólga út allan lánstím-
ann,“ segir Friðrik og bætir því við
að það sé vandasamt að finna hver
sé besta leiðin í þessum efnum.
Um ummæli talsmanns neytenda
segir hann að Kaupþing muni
skoða málið. - ikh
Óeðlilegt að sleppa
verðbólgunni
Stærri en Síminn
Skipti hf. eru þátttakandi í sölu-
ferli á hlut í slóvenska símanum,
Telekom Slovenije. Til stendur að
selja 49,13 prósenta hlut í félag-
inu í þessari umferð til kjölfestu-
fjárfestis, sem mun í kjölfarið
þurfa að gera öðrum hluthöfum
í félaginu yfirtökutilboð, að
undanskildu slóvenska ríkinu
sem halda mun eftir 25 pró-
senta hlut. Samtals er því um
að ræða allt að 75 prósenta
hlut í Telekom Slovenije.
Ekki verður ljóst fyrr
en í árslok hvort af
kaupum Skipta verður.
Telekom Slovenije er skráð í
kauphöllina í Slóveníu og hjá því
starfa um 2.200 starfsmenn.
Markaðsvirði félagsins í fyrra-
dag var rúmir 2,5 milljarðar
evra. Það jafngildir um 220
milljörðum íslenskra króna.
Miðað við þetta verð kostar
helmingshlutur um 110
milljarða króna og 75 pró-
sent í fyrirtækinu rúma 165
milljarða króna. Til saman-
burðar greiddi Skipti 66,7
milljarða fyrir Lands-
síma Íslands árið
2005. - bg
GÍSLI TRYGGVASON
Bláminn á braut
Á haustráðstefnu Matís um ný tækifæri í mat-
vælarannsóknum sem fram fór í gær var Stefán
Pálsson sagnfræðingur fundarstjóri, sá hinn
sami og getið hefur sér gott orð fyrir vasklega
framgöngu í þágu friðar og fyrir að semja spurn-
ingar og dæma í Spurningakeppni framhalds-
skólann. Við fundarsetningu sagðist hann enda
ekki mikið þekkja til launhelga matvælavís-
indanna, utan að þar starfaði
fólk með megnustu andúð á
bláum lit og bláum matvæl-
um. „Einu sinni var smartísinn
blár. Matvælamenn komust
í það og breyttu. Svo var einu
sinni hægt að fá bláan Opal,
einu fíkniefnin sem voru í
almennri sölu án nokkurra
aldurstakmarkana. Það var
líka stoppað,“ sagði hann og
kvað helstu framfarir matvælavísinda hafa orðið
til að ýta ástsælum vörum út af markaði. „En hér
sýnist mér fólk framsæknara og ekki talað um
að banna neitt,“ bætti hann við.
Að stækka eða ekki
Álver Alcan/Rio Tinto í Straumsvík breytti
skipuriti sínu um síðustu mánaðamót. Það
vekur athygli að þar er enn að finna sérstakt
stækkunarsvið. Rannveig Rist, forstjóri álversins,
hefur sagt að stækkunaráform fyrirtækisins séu
í uppnámi, en forstjórar orkufyrirtækja hafa
verið með yfirlýsingar um takmarkaða orkusölu
þangað. Hermt er að
starfsmenn stækk-
unarsviðsins velti
því fyrir sér daglega
hvort þeir þurfi
að mæta til vinnu
næsta morgun.
Peningaskápurinn ... MARKAÐSPUNKTARNorthern Travel Holding hefur keypt
allt hlutafé í flugfélaginu Astraeus
Limited. Fyrir kaupin átti Northern
Travel 51 prósent af hlutafé félagsins,
en á það nú að fullu. Northern Travel
Holding er eignarhaldsfélag í eigu
Fons, FL Group og Sunds.
Fimmti stærsti hluthafi AMR, móður-
félags American Airlines, leggst á árar
með FL Group í frétt Bloomberg í gær
og vill skilja vildarklúbb félagsins frá
öðrum rekstri. Haft er eftir Morgan
Stanley að vildarklúbburinn kunni
að vera 5,7 milljarða dala virði, nærri
jafnverðmætur flugfélaginu.
Breski stórbankinn Barclays upplýsti í
gær að tap vegna amerískra undirmáls-
lána væri heldur minna en spáð hafði
verið, ekki nema 1,3 milljarðar punda,
eða tæplega 161 milljarður króna.