Fréttablaðið - 16.11.2007, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 16.11.2007, Blaðsíða 28
greinar@frettabladid.is Ástkæra ylhýra máliðog allri rödd fegra! Svo kvað Jónas Hallgrímsson, og sá sem les kvæði hans þarf ekki að efast um að íslenskt mál sé fagurt. Málið er orðauðugt og blæbrigða- ríkt, og það á sér merka ritmáls- hefð sem gefur því dýpri hljóm. Tungan er auðvitað umfram allt merkileg og fögur fyrir okkur sem eigum hana að móðurmáli, og margt fólk sem kynnist henni sem erlendu máli er sama sinnis. En tungumálin eru ekki í fegurðar- samkeppni. Jónas er að tala um hvernig íslensk rödd getur hljómað í eyrum þess sem ann henni. Umræður um stöðu tungunnar á þessu hausti hafa borið keim af þeim uppþotum sem öðru hverju verða í fjölmiðlaumræðu okkar. Þá er stutt í einfaldanir og heimsenda- spár. Svo er málið tekið af dagskrá. En íslensk tunga er verðugt umhugsunar- og umræðuefni á öllum tímum. Nokkrar spurningar leita á hugann þegar málið ber á góma: Er tungunni hætta búin, og ef svo er, er það þá lífshætta? Eru breytingar tungunni hættulegar eða etv. óhjákvæmilegar og jafnvel til góðs? Getum við gert eitthvað til að tryggja að íslensk tunga verði áfram öflugt og alhliða tæki til tjáningar og vaxandi fjársjóður listar og sögu, eins og hún hefur lengi verið, megnug að verða allri rödd fegri í eyrum hlustanda? Allt er í heiminum hverfult og stund þíns fegursta frama lýsir sem leiftur um nótt, langt fram á horfinni öld Svo kvað Jónas fyrir rösklega 170 árum. Þá var tungan talin í hættu, og hættumerkin voru reyndar augljós. Þjóðin var fátæk og tungutak margra fátæklegt og dönskuskotið. Sjálfur var Jónas því sem næst tvítyngdur. Danskan sem hann skrifar í bréfum og skýrslum er enn lifandi mál, og hann orti fullgild ljóð á dönsku. Dönsku- kunnáttan kom ekki í veg fyrir að Jónas legði manna drýgstan skerf til að endurnýja íslenskt ritmál, ekki fremur en málakunnátta Hall- dórs Laxness og fjölmargra ann- arra síðari manna hindraði þá í sköpun tungunnar. Þarf að skapa lifandi íslensku? Er hún þá dauð? Þetta er mergur málsins: Tungumál sem ekki er verið að skapa með því að nota það, tjá nýjar hugmyndir og tilfinningar, gefa gömlu nýjan búning, bregðast við nýjum aðstæðum og tengja við gamlar, slíkt tungumál deyr. Það er svo bágt að standa í stað, og mönnunum munar annaðhvort aftur á bak ellegar nokkuð á leið Tungan er að breytast og hlýtur að gera það á breytingatímum. Á gullöld íslenskra bókmennta, tólftu og þrettándu öld, einfaldaðist og breyttist sérhljóðakerfi íslensku til muna, og orðaforðinn breyttist vegna ytri áhrifa, en þetta gekk ekki af tungunni dauðri; þvert á móti urðu þá til bókmenntir sem enn lifa. Ætli það hafi ekki einmitt verið sá sköpunarmáttur, sem leystist úr læðingi á breytingatím- um, sem gaf tungunni og þjóðinni þrótt til að lifa af erfiða tíma sem í hönd fóru? Íslensku stafar ekki ógn af erlendum málum ef við sem höfum drukkið hana í okkur með móður- mjólkinni leggjum okkur fram um að rækta hana í sjálfum okkur, kappkostum að nota hana vel og sýna henni virðingu. Við þurfum að eiga metnað fyrir hennar hönd. Margt kemur af sjálfu sér, en annað þarf árvekni við. Þess vegna eru rannsóknir á tungunni nauð- synlegar. Við þurfum að þekkja hana út í æsar. Við þurfum líka að leggja rækt við að kenna hana, bæði sem móðurmál og annað mál. Það er hlægileg hugsunarvilla að halda að Íslendingar yrðu gjald- gengari í veröldinni ef þeir leyfðu tungu sinni og menningu að verða hornkerling heima fyrir. Veit þá engi að eyjan hvíta á sér enn vor, ef fólkið þorir Íslenskt þjóðlíf einkennist nú af fjöri fólks sem þorir. Ekki af því að það hafi svo mikið þor í erfðavísun- um, heldur af sérstökum – að hluta tilviljanakenndum – aðstæðum sem hér hafa skapast. Þeim sem mesta trú hafa á víkingseðlinu mætti benda á að ekki eru nema tvö hundruð ár síðan Íslendingar voru alræmdir fyrir deyfð og framtaks- leysi, sljóleika og andóf gegn breytingum. Brýningar Jónasar voru viðbragð við þeirri deyfð. Nú er öldin önnur, og nýjungagirninni og dirfskunni mætti stilla betur í hóf. En öllu skiptir að gleyma ekki upprunanum og varðveita þann fjársjóð sem menning og tunga eru. Við verðum að þora að vera Íslend- ingar og skilja að dauði tungu og menningar yrði slys í heimi nútím- ans. Hvert sinn sem tunga hverfur verður mannkynið fátækara, þeir sem áttu hana örsnauðir. Margir hafa á orði um þessar mundir að einatt sé hraksmánar- lega farið með íslenska tungu í ræðu og riti. Það er dagsatt. Samt er hægt að færa gild rök fyrir því að íslenska sé nú öflugra mál og líf- vænlegra en nokkru sinni fyrr. Hún hefur reynst fær um að laga sig að ótrúlegum og skjótum breytingum mannlífsins og leggja undir sig ný svið. Þótt margir beygi vitlaust, sletti og noti framandlega orðskip- an eru líka margir sem tala og rita gott og fjölbreytilegt mál. Gleym- um ekki að oft er skapandi kraftur í ögrandi og óreglulegu málfari æskufólks. Vandað ritmál er oft fjarlægt töluðu máli, og þar hafa rithöfundar verk að vinna, sem ég held að þeim takist oft vel, að endur- nýja ritmálið með krafti og fjöl- breytileika talaðs máls. siglir særokinn, sólbitinn slær, stjörnuskininn stritar Sjósókn og annað strit var lengi forsenda lífs í landinu. Sjósókn fylgir áhætta en líka ávinningur. Við sækjum nú á framandi menn- ingarmið sem aldrei fyrr. Einhverjar fórnir kann það að kosta, en ávinningurinn er meiri, aflinn tryggir framtíð lifandi menn- ingar. Íslensk menning og tunga geta átt bjarta framtíð, en hún verð- ur ekki til af sjálfu sér. Þessum bjartsýnisorðum er ekki ætlað að ýta undir andvaraleysi, hvetja til að látið sé reka á reiðanum. Íslenskt samfélag og íslensk tunga eru nú í straumiðu örra breytinga, jafnvel í brimgarði. Við verðum að stýra og taka á saman. Dirfska sjómannanna sem reru gegnum brimgarðinn var ekki fífldirfska heldur hnitmiðað samhæft átak. En launin, þegar að landi var komið, voru lífið sjálft. Höfundur er forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Í minningu Jónasar Margir hafa á orði um þessar mundir að einatt sé hrak- smánarlega farið með íslenska tungu í ræðu og riti. Það er dagsatt. Samt er hægt að færa gild rök fyrir því að íslenska sé nú öflugra mál og lífvænlegra en nokkru sinni fyrr. Á ég að syngja Íslenska tungu?“ spurði leikskólanemi á fimmta ári í vikunni. Hann beið ekki boðanna heldur hóf upp raust sína og söng allt fyrsta erindi Vísna Íslendinga, eða Hvað er svo glatt … Seinna upplýsti pilturinn að Íslensk tunga væri eftir gamlan mann sem héti Jónas og væri dáinn. Dagur íslenskrar tungu er haldinn hátíðlegur í dag og minning Jónasar Hallgrímssonar heiðruð í tilefni þess að tvö hundruð ár eru liðin frá fæðingu hans. Þeir eru áreiðanlega margir leik- og grunnskólanemarnir sem undanfarna daga hafa kynnst ljóðum og sögum Jónasar Hall- grímssonar í fyrsta sinn eða rifjað upp kynni sín af þeim. Þetta starf er ánægjulegt fyrir alla sem að því koma. Á degi íslenskrar tungu er hvort tveggja gert að líta um öxl og horfa fram á veginn. Hvernig höfum við umgengist móðurmálið okkar? Hver er staða íslenskunnar á árinu 2007 og hvernig er lík- legt að henni muni heilsast eftir tíu ár, eða fimmtíu? Hvað getum við og viljum gera til að hafa áhrif á þróun íslenskunnar? Þessum spurningum verður áreiðanlega víða velt upp í dag og svörin verða margbreytileg. Ljóst er að skólar gegna lykilhlutverki, og stöðugt vaxandi, í þroska móðurmáls hvers barns og miðlun menningararfsins. Hugtakið móðurmál vísar vissulega til þess að málið er numið af móður og vitanlega einnig föður. Hitt er staðreynd að leik- skólinn gegnir sífellt veigameira hlutverki við örvun málþroska ungra barna. Ekki þýðir annað en að horfast í augu við að upplestur og söngur er ekki lengur það sem fólk styttir sér stundir við á heimilum á 21. öldinni. Sjónvarp hefur tekið við af útvarpi, sem áður tók við af húslestri og söng. Það er því orðið verkefni skól- anna að kynna menningararfinn fyrir æskunni; ljóðin og lögin, fyrir utan lesturinn, ritunina og allar aðrar hliðar á formlegu og óformlegu móðurmálsnámi. Allt ber að sama brunni. Það verður að gefa verulega í þegar kemur að íslenskukennslu. Allir kennarar eru móðurmáls- kennarar, og er þá ekki síst átt við leikskólakennara. Því verður móðurmálsnám að skipa veglegan sess í öllu kennaranámi. Áform um að draga úr móðurmálsnámi í Kennaraháskóla Íslands verða vonandi að engu. Nær væri að auka það. Góð íslenskukennsla barna og unglinga skiptir sköpum. Þar er bæði átt við miðlun menningararfsins og kennslu til aukins skilnings á formgerð málsins. Á þeirri þekkingu byggist nám í erlendum málum. Því má ekki gleyma þegar rætt er um mikil- vægi kunnáttu í erlendum tungumálum. Loks er ljóst að verk er fyrir höndum að kenna með markvissum hætti erlendu fólki sem hér er að setjast að íslensku. Það er lykill þess að samfélaginu. Enn í dag njótum við kvæða Jónasar Hallgrímssonar. Full ástæða er einnig til að tileinka sér ástríðu hans fyrir íslenskri tungu og þá baráttugleði og sköpun sem hann viðhafði henni til varnar. Móðurmálið í höndum kennara
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.