Fréttablaðið - 16.11.2007, Side 38
BLS. 4 | sirkus | 16. NÓVEMBER 2007
Hönnunarþríeykið Dotdesign,
sem er skipað þeim Frosta Gnarr
Gunnarsyni, Högna Val Högna-
syni og Brynjari Sigurðssyni, er
að gera góða hluti. Veskjalína
sem strákarnir hönnuðu fyrir
bandaríska fyrirtækið Timo
Wallets kom í verslunina
Kronkron á dögunum.
Veskin verða einnig seld í
stórborgunum New York,
Amsterdam og Tókýó. „Við
erum allir á öðru ári í graf-
ískri hönnun í Listaháskóla
Íslands og höfum unnið mikið
saman. Okkur langaði að ganga
skrefinu lengra í samstarfinu og
stofnuðum hönnunarfyrirtækið
Dotdesign í lok sumarsins,“ segir
Frosti Gnarr, en Frosti er fóstur-
sonur leikarans góðkunna Jón
Gnarrs og sonur Jógu töfra-
nuddara. Dotdesign er
hugsuð sem lítil aug-
lýsingastofa sem
sinnir skapandi við-
skiptavinum. Þeir
félagarnir hafa meðal
annars unnið fyrir
tónlistarmenn og
fatahönnuði auk þess
sem þeir hafa starfað
sem hönnunarteymi
fyrir RÚV.
„Við vorum í verk-
efnaleit þegar okkur
varð hugsað til vinar
okkar í New York,
Timo Weiland, en
hann rekur fyrirtæk-
ið Timo Wallets. Við
höfðum samband við Timo og
hann fól okkur það verkefni að
hanna lógó fyrir fyrirtækið,” segir
Frosti um tildrög samstarfsins
við Timo. Frosti kynntist Timo
fyrir tilviljun árið 2004 í Kaup-
mannahöfn og hefur haldið sam-
bandi við hann síðan. Auk fyrir-
tækjarekstursins starfar Timo
sem viðskiptaráðgjáfi hjá bank-
anum Deutsche Bank í New York.
Timo Wallets sérhæfir sig í fylgi-
hlutum eins og nafnið gefur til
kynna og hefur mest selt á sölu-
sýningum þar ytra með góðum
árangri. „Timo var mjög ánægð-
ur með lógóið sem við hönnuð-
um fyrir hann og í kjölfarið bað
hann okkur um að hanna heila
veskjalínu fyrir sig. Við unnum
með andlitsteikningar á óhefð-
bundinn hátt út frá andlitsmynd-
um af okkur sjálfum og vinum
okkar,“ segir Frosti um veskjalín-
una sem er afar fjölbreytt og lit-
rík þannig að flestir ættu að geta
fundið eitthvað við sitt hæfi.
bergthora@frettabladid.is
FROSTI GNARR OG FÉLAGAR HANNA FYRIR TIMO WALLETS
REYKJAVÍK, NEW YORK,
AMSTERDAM OG TÓKÝÓ
„Jón Gnarr er fósturpabbi minn og
hefur gengið mér í föðurstað. Mig
langaði að breyta föðurnafninu
mínu á sínum tíma en það var ekki
leyfilegt og því tók ég upp Gnarr-
nafnið.”
Frosti Gnarr, Timo, Brynjar og Högni.
Nældu þér í eintak
Li
st
in
n
g
ild
ir
1
6
-2
3.
n
ó
ve
m
b
er
2
00
7
VINSÆLASTA TÓNLISTIN
Skífulistinn er samantekt af mest seldu titlum í
Skífunni og verslunum BT út um allt land.
A N Lækkar frá síðustu viku Hækkar frá síðustu viku Stendur í staðNýtt á listaAftur á lista
Mugiboogie Mugison
Tímarnir okkar Sprengjuhöllin
Vivere: Best Of Bocelli CD+DVD Andrea Bocelli
Long Road Out Of Eden Eagles
Vivere:Best Of Bocelli Andrea Bocelli
Ferðasót Hjálmar
Pictures Katie Melua
Allt fyrir ástina Páll Óskar
1987-2007 2CD+DVD Nýdönsk
Ég skemmti mér um jólin Guðrún og Friðrik
100 Íslensk barnalög Ýmsir
Hold er mold Megas og Senuþj.
Hvarf/Heima 2CD Sigur Rós
Sticky Situation Bloodgroup
The Hope Sign
Human Child/Mannab. 2CD SE Eivör
Complete Clapton Eric Clapton
Síðasta vetrardag CD+DVD Síðan skein sól
Bara Hara Hara
Benny Crespo´s Gang Benny Crespo´s Gang
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
N
N
N
N
Mýrin
Harry Potter & the order of Ph.
Die Hard 4
Desperate Housewives 3
Deck The Halls
Skoppa og Skrítla í Þjóðleikh.
Köld Slóð
Fantastic Four (2Disc)
Family Guy Sería 6
Ocean´s Thirteen
Spiderman 3 (2Disc)
Simpsons Sería 10
Latibær 5
Arthur og Minimóarnir
Latibær
Shortbus
Fóstbræður Sería 2
Live of Others
Fóstbræður Sería 1
Sigtið Sería 2 (3Disc)
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
Call Of Duty 4 : Modern Warfare
Simpsons The Game
Assassins Creed
Football Manager 2008
Hellgate London
Sims 2 Teen Style Stuff
Pro Evolution Soccer 2008
Gears of War
Glói Geimvera 1&2
Witcher
VINSÆLUSTU DVD
VINSÆLUSTU LEIKIRNIR
N
N
N
N
VESKI EFTIR FROSTA GNARR
Það fæst í Kronkron MYND/ANTON