Fréttablaðið - 16.11.2007, Side 40

Fréttablaðið - 16.11.2007, Side 40
BLS. 6 | sirkus | 16. NÓVEMBER 2007 „Ég er veikust fyrir kjólum og hælaskóm. Ef aðstæður og veður leyfðu, væri ég í fallegum kjólum og háum hælum alla daga vikunnar,“ Segir Erna Berg- mann Björnsdóttir sem myndi sóma sér vel í 1001 nótt. Erna er á öðru ári í fatahönnun við Listaháskóla Íslands og vinnur meðfram náminu í Kronkron, einni flottustu fata- búð landsins. „Ég var búin að velta því lengi fyrir mér að læra fatahönnun áður en ég lét af því verða að sækja um í Lista- háskólanum. Áhugasvið mitt liggur að miklu leyti í tískuheiminum og ég hef unnið í kringum föt í nokkur ár. Það gaf því gaf augaleið að þetta væri nám fyrir mig. Ég hvet alla þá sem hafa bakteríuna að sækja um í fatahönnun, það á enginn eftir að sjá eftir því. Þetta er skemmtilegt og krefjandi nám,“ segir Erna um nám sitt í Listaháskólanum. Erna hefur einnig gert garðinn frægan sem plötusnúður í tvíeykinu „Ellen og Erna“ en þær stöllur, hún og Ellen Lofts- dóttir, voru með sjónvarpsþáttinn Bak við böndin, sem sýndur var á Sirkus árið 2006. „Ég og Ellen vorum sjúklega heitir og hressir diskótekarar á tímabili, en duttum úr tísku,“ segir Erna og hlær við þegar hún er spurð út í ferilinn á skjánum. Erna vekur víða athygli fyrir óvenjulegan og skemmtilegan klæðaburð. Sjálf lýsir hún fatastíl sínum sem til- raunakenndum kvenlegum stíl í öllum litum regnbogans, sem einkennist af andstæðum og klassík en er á sama tíma töff. Sirkus lék forvitni á að vita hvar Erna fær öll þessi fallegu föt? „Ég versla mikið í versluninni Kronkron þar sem ég vinn og í skób- úðinni Kron. Enda eru þær uppáhaldsbúðirnar mínar og luma alltaf á einhverju sem freistar mín. Ég elska að versla í Kis- unni og er sömu leiðis rosa- lega spennt fyrir nær- fataversluninni Systurnar á Lauga- veginum sem var að opna, en þær selja flottustu nærföt sem ég hef augum litið.“ Erna vill þó meina að hún snobbi ekki fyrir ákveðnum merkjum og búðum þegar komi að fata- vali. Hún kaupi sér einungis það sem henni finnst vera fallegt þó að það gildi aðeins aðrar regl- ur þegar kemur að skókaupum. „Ég æfi með stúdenta- dansflokknum ásamt því að dansa „contemporary“ dans í Kram- húsinu þess vegna legg ég mikið upp úr að ganga í vönduðum og vel hönnuðum skóm sem fara vel með fæturna og auðvitað þurfa þeir líka að vera flottir,“ bætir Erna við, sem getur eflaust dansað þar til dagur rís öll kvöld ársins án þess að finna fyrir því miðað við allan þann vandaða og fagra skó búnað sem að hún á. bergthora@frettabladid.is Ævintýraheimur Ernu í 101 ERNA BERGMANN BJÖRNSDÓTTIR NEMI Í FATAHÖNNUN ERNA BERGMANN Aldur: 24 ára Nauðsynlegt: Hlý klassísk ullarkápa eða slá sem passar við allt, því þá verður manni aldrei kalt þrátt fyrir að vera smart. Verstu kaupin: Klárlega Buffalo-skórnir á sínum tíma. Bestu kaupin: Fjólubláa ullarkápan mín. Ég get ekki ímyndað mér lífið án hennar. Uppáhaldsflíkin í fataskápnum: Köflótti Bernhard Wilhelm-kjóllinn minn. Uppáhaldsfatahönnuðir: Nicolas Ghes- quière, Vivienne Westwood, Marc Jacobs, Bernhard Wilhelm, Rei Kawakubo, Marjan Pejoski, Eley Kishimoto, Hussein Chalayan, Sonia Rykiel, Peter Jensen, Roks anda Ilincic, Martin Margiela og Viktor & Rolf.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.