Fréttablaðið - 16.11.2007, Síða 44
● tíska&fegurð2
Falleg fataefni kveikja alltaf í þeim sem fást við vélsaum. Í versluninni
Seymu við Linnetstíg í Hafnarfirði er úrval slíkra efna.
„Náttúruefnin ull og silki eru ljúf og úr þeim er hægt að sauma flest.
Fólki líður líka vel í þeim því þau anda,“ segir Helga Sigurðardóttir í
Seymu í Hafnarfirði en Seyma er ein fárra verslana sem sinna þörfum
saumakvenna. Helga segir áhugann á saumaskap enn fyrir hendi í
þjóðfélaginu. „Ungu stelpurnar eru duglegar að sauma,
sniðugar og kjarkmiklar,“ segir hún. „Þær láta sig ekki
bara dreyma um flikurnar heldur skella sér í hlutina,“
bætir hún við.
Tíu best klæddu konur fyrstu vikuna í nóvember eru
flestar leikkonur og fyrirsætur sem margir
þekkja. Enda ekki að furða þar sem stjörnurnar
þurfa að koma reglulega fram á góðgerðasam-
komum, frumsýningum og verðlaunaafhending-
um þar sem dugar ekki minna en galakjóll og
fínar greiðslur.
Þær sem nefndar voru til leiks í þetta
skipti voru þessar: leikkonurnar Cate
Blanchett og Jennifer Connelly, fyrir-
sæturnar Lauren Bush og Devon Aoki,
stórstjarnan Kate Moss var sem oftar
á listanum auk Liv Tyler og Helenu
Christensen. Minna þekktar eru lík-
lega Diana Taylor, Natalia Vodianova
og Marion Cotillard.
Þær best
klæddu
● Vefsíða tímaritsins Vogue velur í hverri viku
tíu best klæddu konurnar.
Leikkonan Jennifer Connelly var
í dressi frá Oscar de la Renta á
„Glamour Women of the year“ verð-
launahátíðinni í New York.
Fyrirsætan
Lauren Bush
klæddist fötum
frá Ralph Laur-
en á góðgerða-
samkomu í NY.
Helena Christen-
sen var klædd
fögrum kjól
frá Marc Jac-
obs á ACE
verðlauna-
hátíðinni
í New
York.
Liv Tyler í
hversdagsfatn-
aði frá Derek
Lam en hún er
hér mynduð
við heimili sitt í
New York.
Leikkonan Cate
Blanchett skartaði
fallegum kjól eftir
Jil Sander á frum-
sýningu Elizabeth:
The Golden
Age í Sydney í
Ástralíu.
N
O
RD
ICPH
O
TO
S/G
ETTY
Undraveröld franskra ilmvatna er tælandi, eftir-
sóknarverð og dularfull. Nú má nálgast lykla að
þeim undraheimi á námskeiðum í nóvember.
„Frakkar taka allt sitt alvarlega og hafa haldið sig við
upprunalegar framleiðsluaðferðir og innihaldsefni
öldum saman,“ segir Guðrún Edda Haraldsdóttir, sér-
fræðingur hjá Forvali, sem kenna mun á námskeiðinu
„Undraveröld franskra ilmvatna“ í samvinnu við
Alliance Francaise fimmtudagskvöldin 22. og 29.
nóvember.
„Á námskeiðinu förum við í sögu franskra ilmvatna,
hvernig þau eru uppsett, hvað þarf til að skapa ilm-
vatn, hvernig ilmur er unninn úr hráefnum og hvað að-
greinir ilmvötn því þau skiptast í hópa,“ segi Guðrún
Edda um ilmtegundir frönsku þjóðarinnar, sem fyrst
komu fram fyrir 300 árum.
„Upphaflega voru ilmvötn gerð af hreinlætis-
ástæðum því þá var ekki eins auðvelt að komast í bað,
og kannski þannig sem máltækið „franskt bað“ varð
til. En um leið og komin var 20. öldin þótti fínt að klæð-
ast ilmum. Það einkennir frönsk ilmvötn að vera mun-
úðarfyllri en ilmvötn annarra þjóða, en ilmurinn sem
slíkur er ekki allt, heldur vinnuferlið sem gerir þau
frábrugðin,“ segir Guðrún Edda og líkir frönskum ilm-
vötnum við frönsk vín.
„Víngerð í Frakklandi hefur sína sögu og hefðir, og
þar af leiðandi ákveðinn staðal í vínmenningu heims-
ins. Eins er um frönsk ilmvötn og er Frakkland það
land sem oftast framleiðir ekta „parfum“ í sínum
línum. Guerlain er nú elsta starfandi ilmvatnsgerð
Frakklands og öðlaðist heimsfrægð með hinu sigur-
sæla „Jicky“ árið 1888,“ segir Guðrún Edda, sem ólst
upp við dýrindis ilmvötn í Forvali, fyrirtæki foreldra
hennar.
„Forval er eldra en ég sjálf, en þegar ég fór að
vinna í fyrirtækinu gafst mér tækifæri að fara til
Frakklands og læra allt um sögu og gerð franskra ilm-
vatna hjá Chanel þótt ekki sé ég ilmvatnsgerðarkona
enn,“ segir Guðrún Edda hlæjandi, en eftirlætis ilmur-
inn hennar nú um stundir er Delices frá Cartier.
„Öll ilmvötnin í skápnum eru frönsk, en ég hef
dálæti á ilmi margra landa og finnst Ítalir til dæmis
mjög snjallir ilmvatnsgerðarmenn. Ilmur er svo til-
finningatengdur og þegar við upplifum ilm í and-
rúmsloftinu minnumst við gjarnan manneskju vegna
þess hve hún ilmaði vel.“ - tl
Frönsk, munúðarfull angan
Guðrún Edda Haraldsdóttir kennir á spennandi og vellyktandi námskeiðum um undraveröld franskra ilmvatna í lok nóvember.
FRÉTTA
BLA
Ð
IÐ
/G
VA
Ullarefnin eru góð í allan
fatnað.
Gráa efnið er ullartveed, gott í jakka,
pils og buxur og efnið við hliðina er líka
ullarefni sem fallegt er í kjóla, pilsbuxur,
jakka og hvað sem er.
Ekta ullar-
efni í jakka, pils og
dragtir.
Taísilkið er létt og þægilegt efni
sem hentar vel í kjóla, jakka og
pils. Blómin í þessu efni eru bród-
eruð. Flott skal það vera.
FRÉTTABLAÐIÐ/VÖLUNDUR
Efni í einstakar flíkur
16. NÓVEMBER 2007 FÖSTUDAGUR