Fréttablaðið - 16.11.2007, Side 46
Daníel Þorsteinsson, betur þekktur
sem Danni í hljómsveitinni
Sometime, fetar ekki troðnar
slóðir í fatavali og er sérstaklega
mikið fyrir óvenjulegar buxur.
Síðastliðið ár hefur hann að eigin
sögn verið með „crazy pants“ æði.
Danni segist ekki endilega ginn-
keyptur fyrir frægum hönnuðum
en heldur þó mikið upp á hönnuðinn
Jeremy Scott og eru buxur eftir
hann í sérstöku uppáhaldi. Þær
eru líka mjög óvenjulegar, alsettar
litríkum bókstöfum.
Danni segist vera búinn að
kaupa sér fullt af fríkuðum
buxum að undanförnu. Hann segir
þó ekki mikið úrval hér á landi og
á meira að segja einar Sometime-
buxur sem hann myndaðist við
að gera sjálfur en Jeremy Scott-
buxurnar keypti hann í verslun-
inni Liborius. Hann á líka jakka og
buxur eftir sama hönnuð og segist
helst nota fötin við hátíðleg tæki-
færi. „Ég var úti í Póllandi um dag-
inn og komst að því að fötin kosta
meira en mánaðarleiga á íbúð þar
í landi,“ segir hann kíminn.
Danni, sem hefur starfað á leik-
skóla síðan 2001, stofnaði hljóm-
sveitina Sometime fyrir tveimur
árum en lék áður á trommur með
Maus. Í Sometime eru í fjórir
hljómsveitarmeðlimir og Danni,
sem spilar á trommur og hljóm-
borð, semur tónlistina ásamt söng-
konunni Rósu Birgittu Ísfeld.
Fyrsta breiðskífa sveitarinnar
kom út fyrir nokkrum vikum en
hún ber hið sérstaka heiti Su-
percalifragilisticexpialidocious.
Þá voru haldnir útgáfutónleikar
á skemmtistaðnum Organ síðast-
liðinn fimmtudag. Platan hefur
fengið góðar viðtökur og segist
Danni búast við því að spila mikið
á næstunni. - ve
Veikur fyrir klikkuðum buxum
● Danni í Sometime er með æði fyrir óvenjulegum buxum þótt úrvalið hér á landi sé minna
en hann myndi óska sér.
Buxurnar eru alsettar litríkum bókstöfum og eru eftir hönnuðinn Jeremy Scott. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Glæsilegustu konur veraldar eru ekki endilega þær yngstu og fegurstu. Í desemberhefti
breska tískuritsins Vogue eru taldar upp þær konur sem teljast glæsilegastar í landinu.
Við valið var ekki stuðst við aldur, menntun eða ytri fegurð heldur þetta „eitthvað“ sem
erfitt er að skilgreina en kona þarf að hafa til að bera til að teljast töfrandi eða heillandi.
Meðal þeirra kvenna sem nefndar voru til leiks voru leikkonan Helen Mirren, kanadíska
fyrirsætan Coco Rocha, fatahönnuðurinn Stella McCartney, fyrirsætan Naomi Campbell,
Elísabet Englandsdrottning, fyrirsætan Claudia Schiffer og fyrirsætan og rithöfundurinn
Sophie Dahl.
Naomi Campbell er
glæsileg að vanda.
Coco Rocha hefur
þetta „eitthvað“.
Claudia Schiffer þykir
ekki bara falleg.
Þótt Stella McCartney
sé sjálf ekki mjög smart
hannar hún falleg föt og
hefur eitthvað heillandi
við sig.
Sophie Dahl er fyrirsæta
og rithöfundur.
Elísabet Englandsdrottn-
ing er glæsileg kona.
Heillandi glæsikvendi
Peysurnar
eru
komnar
Sigurboginn - Laugaveg 80 - Sími 561 1330 - www.sigurboginn.is
16. NÓVEMBER 2007 FÖSTUDAGUR