Fréttablaðið - 16.11.2007, Page 55
desember og hafa kannski engan tíma
til að pæla í hvað er skemmtilegt að
gefa hverjum og einum. Svo getur
maður dúllað sér við að pakka inn í
rólegheitum og haft gaman í desem-
ber.“ Og nú er hún farin að huga að
smákökunum.
„Við Máni Freyr eldri sonur minn
bökum þó engar tíu sortir, heldur
meira til að fá fílinginn og lyktina í
húsið. Þetta eru skemmtilegar stundir
og eldhúsið hverfur í hveiti og deig-
klessur. Svo búum við til karla og kerl-
ingar úr piparkökudeigi að hætti Jóa
Fel en eyðum þeim mun meiri orku í að
skreyta þær. Við Aui, maðurinn minn,
búum til piparkökuhús sem allir
skreyta og vorum svo hrikalega ánægð
með húsið í fyrra að það var látið
standa þar til í apríl, en þá var svipurinn
á gestum farinn að vera eitthvað pínu
skrýtinn og húsfrúin gaf formlegt leyfi
til að mölva dýrðina.“
Hvernig sérðu sjálfa þig fyrir þér
eftir tíu ár?
„Að vera áfram sátt í eigin skinni og
ánægð með þær ákvarðanir sem ég hef
tekið. Mér finnst mikilvægt að eiga gott
samband við drengina og fólkið mitt
og mun leggja mig fram við að rækta
það eins vel og ég get. Að tíu árum
liðnum hef ég líka heitið sjálfri mér að
vera búin að fara til vanþróaðs lands
og leggja fram starfskrafta mína. Ég
veit að þetta hljómar klisjulega en
þetta langar mig. Markmiðið er nefni-
lega ekki bara að gera eitthvað gott
fyrir aðra, heldur líka fyrir mig. Ég held
að með þessu tækist mér að núllstilla
sjálfa mig, ná fókus á lífsgildin og
hægja á huganum. Öðlast meiri hugar-
ró og kyrrð,“ segir hún sæl í sínu.
martamaria@365.is
Heimilið mitt ... endurspeglar mig og mitt
fólk
Hvað gerir þú ef þú ætlar virkilega að
dekra við þig? Skríð upp í sófa með tímarit
og lakkrísreimar innan seilingar. Annars er
dekurdagur í Laugum í góðra og skemmti-
legra kvenna hópi þvílíkur orkugjafi sem
dugar lengi. Hlátur er vanmetið dekur.
Draumurinn: Að verða hrikalega góð í golfi
en ég hef ekkert rosalega þolinmæði. Myndi
helst vilja vakna upp einn daginn með tíu í
forgjöf.
16. NÓVEMBER 2007 | SIRKUS | BLS. 9