Fréttablaðið - 16.11.2007, Side 58

Fréttablaðið - 16.11.2007, Side 58
BLS. 12 | sirkus | 16. NÓVEMBER 2007 Skór skipta höfuðmáli þegar hugað er að heildarútlitinu. Í hausttískunni hefur sjaldan verið eins sterk stígvélatíska. Danska skómerkið Billi Bi hefur komið mjög sterkt inn upp á síðkastið en það er eitt af fáum sem bjóða upp á stígvél í fjórum víddum, allt frá XS upp í XL. Þetta er sérlega hentugt þegar tískan fer fram á að buxur eða leggings séu girtar ofan í stígvélin. En þetta er líka heppilegt fyrir íslenskar konur sem fá að skarta sínu fegursta hvort sem leggurinn er visinn eða sterklega byggður. Helstu nýjungarnar eru stígvél og skór með lakkáferð, veglegir hælar og skemmtileg smáatriði sem setja svip sinn á stígvélin. Þar má nefna sylgjur og annað skóskraut sem gerir stígvélin ennþá flottari. Tærnar eru bæði rúnnaðar og mjóar en það fer eftir stemn- ingu hverju sinni hvort verður fyrir valinu, gæti jafnvel verið best að eiga til skiptanna. Nú er ekkert annað í stöðunni en að vera vel stígvélaður fyrir jólin svo hægt sé að vaða inn í aðventu- partíin áhyggjulaus. martamaria@365.is BILLI BI STÍGVÉL Þessi eru með millibreiðum hæl og rúnnaðri tá og sóma sér vel utan yfir buxur. Þessi stígvél koma í nokkrum víddum þannig að konur með breiða kálfa eða spóaleggi ættu að geta glaðst. Billi Bi stígvélin fást í GS skóm. DÖMULEG Pinnahælar og mjóar tær eru ennþá málið. Þessi stígvél eru mjög dömuleg og eru fín fyrir þær sem elska háhælaða skó og kunna að ganga á þeim. Aðventuboðin verða örugglega mun ánægjulegri ef gengið er á þessum. Þau fást í GS skóm. ÖKKLAHÁ STÍGVÉL HAFA SJALDAN ÞÓTT FLOTTARI Þau er hægt að nota við öll tækifæri, við buxur en líka pils, kjóla og hnébuxur. En þá er málið að vera í sokkabuxum í sama lit til að stytta ekki leggina. Fást í GS skóm. HÆLAR Lakkstígvél og veglegir Það var margt um manninn á Ölstofu Kormáks og Skjaldar á föstudagskvöld og útlit er fyrir að fræga fólkið sé að endurheimta staðinn úr klóm pöpulsins. Þar knúsaði Kastljósskyntröllið Þórhallur Gunnarsson konu sína Brynju Nordquist flugfreyju. Á meðan Kastljóssljóskan Helgi Seljan tók púlsinn á alþjóðastjórnmálafræðingnum og fyrrverandi fréttastjóra DV, Kristjáni Guy Burgess. Helgi Hjörvar var ekki langt undan og gaf aðstoðarmanni borgarstjóra Guðmundi Steingrímssyni góð ráð þetta kvöld, en Guðmundur ræddi borgarmálin við almannatengilinn fjölfróða Örn Úlfar. Tónlistarfólkið lét sig ekki vanta í gleðina sem ríkti á Ölstofunni þetta kvöld, Baggalútsbræðurnir síkátu tóku sér frí frá stífum æfingum fyrir Laugardagslögin og voru hressir við barinn. Borgar- og blúsdrottingin Andrea Gylfadóttir skartaði sínu fegursta og lagði á ráðin með útvarpsmanninum Óla Palla. Kvikmyndagerðarfólk hitaði upp fyrir Edduna í reykskýli Ölsins, þar var leikstjórinn Árni Óli Ásgeirsson, Lísa Kristjánsdóttir framkvæmdastjóri, gervahönnuðurinn Ásta Hafþórs og Astrópíuprinsinn Óttar Geir Borg handritshöfundur. Ölstofukóngarnir og spjátrungarnir Kormákur og Skjöldur settu óneitanlega skemmtilegan brag á samkomuna með klæðaburði sínum sem bar anda liðinna tíma með sér. Að loknu heljarinnar föstudags- kvöldi hélt sirkusstjórinn heim ölvaður af gleði og gat samviskulaust eytt laugardagskvöldinu yfir sjónvarpinu. ■ Hverjir voru hvar SPENNAN SETUR SVIP SINN Á ÞESSI Þessi Billi Bi stígvél eru æðisleg og henta vel fyrir hávaxnar sem vilja ekki of háan hæl. Spennan utan um ökklann gerir mikið fyrir þessi stígvél. Þau fást í GS skóm. ALGER SKÍVSA Hilary Duff er alveg með þetta. Hún mætti á þessum í Hollywood-partí og var elt á röndum. MYND/GETTYIMAGES LEIKKONAN HALLE BERRY er þekkt fyrir glæsilegan fatasmekk. MYND/GETTYIMAGES LAUGAVEGUR 86-94, S: 511-2007 REYKJAVIK STORE opið föstudaga 11.-18.30 laugardaga 11-17

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.