Fréttablaðið - 16.11.2007, Blaðsíða 72
16. nóvember 2007 FÖSTUDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Í kvöld í Extreme Make-
over! Fær Maríanna nefið
sem hún óskar sér? Fylgist
með!
Í kvöld í Extreme Make-
over! Er hægt að laga
andlitið á Jóa? Fylgist með!
Þú værir fullkomin í þetta!
Þú gætir látið taka til í and-
litinu á þér og farið í fitusog,
alveg ókeypis!
Þú ættir kannski
að athuga þetta,
fröken!
Treystu mér.
Hvernig geturðu verið viss
um að Palli komi ekki heim
upp úr þurru?
Pabbi þinn var að tala um
að taka til í bílskúrnum í
kvöld. Hann vill tala aðeins
við þig.
Hvað nú?
Þarna ertu þá,
Palli.
Krassss
VÍDEÓLEIGAN
Úps.
Og Lindu líður örugglega
ekki heldur vel.
Heldur
betur.
Það er agalegt!
En hryllilegt!
Jább. Tuttugu
og sjö tímar og
ennþá að.
Er hún
ennþá með
hríðir?
Ég rakst á Mikka í kaffiterí-
unni. Hann sagði að Linda
væri ekki búin að fæða.
Ég sofnaði
yfir þessari
kvikmynd, ég
býst við því að
sektin verði
ansi há...
Hin ágæta vefsíða
Frelsi og franskar
greindi í gær frá
nýrri könnun sem
gerð var meðal nem-
enda í New York-
háskóla í Bandaríkj-
unum. Þar kom í ljós
að 20 prósent nemenda
skólans myndu selja
atkvæði sitt í komandi forsetakosn-
ingum í skiptum fyrir iPod-tónlist-
arspilara. Í umfjöllun hinnar amer-
ísku vefsíðu Politico um sama mál
virðast þessar fréttir koma grein-
arhöfundi lítið á óvart. Helst að
hægt sé að lesa út úr orðum hans
að hlutfallið sé lægra en búast
hefði mátt við.
Það sem mér þykir alvarlegast
við fréttirnar er að þarna er ekki
um að ræða fáfróða Bandaríkja-
menn eins og við sjáum þá í bíó-
myndunum. Þarna er um að ræða
landsins björtu framtíð, ungt fólk í
háskóla.
Nemendur háskólans voru einnig
spurðir út í aðra hluti sem þeir
gætu skipt á fyrir atkvæði sitt og
voru til að mynda 66 prósent til í að
láta atkvæði sitt af hendi gegn
niður fellingu skólagjalda. Kannski
eru fátækir námsmenn auðkeyptir,
en engu síður skín þarna í gegn að
þetta unga fólk ber ekki virðingu
fyrir lýðræðinu – sama lýðræði og
Bandaríkjamenn hafa boðað um
allan heim með vopnaskaki.
Staðreyndin er nefnilega sú að
stjórn völd í Bandaríkjunum hafa
áratugum saman ráðskast með inn-
anríkismál þjóða um víða veröld og
oft hafa aðgerðir þeirra verið í
hrópandi ósamræmi við þau vanda-
mál sem bíða þeirra heima fyrir.
Amerískir lifnaðarhættir og hið
ameríska frelsi eru fagnaðarerindi
21. aldarinnar. Bandaríkjamenn
hafa með vopnum innleitt sína
útgáfu af lýðræði í löndum sem
fæstir Bandaríkjamenn kunna að
staðsetja á korti. Nú kemur í ljós
að heima fyrir er hægt að kaupa
lýðræðið fyrir einn iPod. Ætti
alheimslöggan kannski að líta sér
nær, núna þegar hún er komin á
útsölu?
Kann að vera að frelsi Banda-
ríkja manna sé farið að hljóma
falskt?
STUÐ MILLI STRÍÐA Alheimslögga á útsölu
ÖRLYGUR HNEFILL ÖRLYGSSON VILL AÐ BANDARÍKJAMENN LÍTI SÉR NÆR
er komin í
verslanir okkar
er kominn á íslensku
2.890.-
TILBOÐ
1.290.-
TILBOÐ
...um land allt!Office 1
Skeifunni17 • Smáralind • Akureyri • Ísafirði • Egilsstöðum
Vestmannaeyjum • Selfossi • Hafnarfirði (Bókabúð Böðvars)
10 litlir Kenjakrakkar
ÓTRÚLEGTVERÐ
ÓTRÚLEGTVERÐ