Fréttablaðið - 16.11.2007, Side 76
40 16. nóvember 2007 FÖSTUDAGUR
Leikritið Konan áður verður
frumsýnt á Smíðaverkstæði
Þjóðleikhússins í kvöld kl.
21. Höfundur verksins er
þýska leikskáldið Roland
Schimmelpfennig.
Verkið fjallar um venjulega fjöl-
skyldu sem stendur í búferlaflutn-
ingum. Áform hennar komast þó í
uppnám þegar fortíð fjölskyldu-
föðurins, Franks, bankar upp á.
Gesturinn er kona sem komin er
til að krefja Frank um gamalt lof-
orð: 24 árum áður hafði hann lofað
að elska hana að eilífu og hún
endur goldið loforðið.
Hafliði Arngrímsson, leikstjóri
sýningarinnar, segir leikritið tak-
ast á við óvenjulegar aðstæður.
„Konan sem birtist skyndilega í
lífi þessarar fjölskyldu er sann-
kallaður draugur úr fortíðinni og
setur fram fremur undarlega
kröfu. Það má í raun segja að
konan sé í orrustu við nútíðina og
reyni því að snúa tímanum til baka
með handafli. Hún þráir að endur-
upplifa hreina unglingsást á ný,
ást sem ekki hefur verið menguð
af framapoti og fjárhagsörðug-
leikum. Hún er í krossferð og
lætur ekkert stöðva sig í að ná
markmiði sínu.“ Að mati Hafliða
breytir framvinda leikritsins tóni
þess og áherslum. „Þetta er í
grunninn gamanleikrit, en það
verður erfiðara að horfa á það
eftir því sem á líður og má því
segja að það endi sem drama-
verk.“
Frásagnarmáti leikritsins er um
margt óvenjulegur og sækir inn-
blástur til annarra miðla en leik-
hússins. „Þetta er nýlegt leikrit
sem fjallar um samtíma okkar.
Leikritið stekkur dálítið fram og
aftur í tíma og minnir þannig á
frásagnarmáta sem hefur mikið
sést í kvikmyndum. Leikhús er
náttúrlega miðill augnabliksins og
því ekki auðvelt að framkvæma
svona tímaflakk. Slíkar tilraunir
hafa gjarnan orðið þunglamalegar,
en Schimmelpfennig beitir mjög
forvitnilegum aðferðum til að
koma tímaflakki til skila sem
ganga vel upp.“
Konan áður er fyrsta erlenda
nútímaleikritið af þremur sem
sýnd verða á Smíðaverkstæði
Þjóðleikhússins í vetur. Höfundur
verksins, Roland Schimmel-
pfennig, hefur vakið mikla athygli
fyrir leikrit sín, bæði í heimalandi
sínu Þýskalandi sem og víðar.
„Schimmelpfennig er afar áhuga-
vert leikskáld. Hann er um fertugt
og ég tel það nokkuð öruggt að
segja að hann er mest leikni höf-
undur af sinni kynslóð, ekki aðeins
í Evrópu heldur í heiminum. Höf-
undareinkenni hans eru tilraunir
með tímann og með endurtekningu
og hefur hann gert nokkuð af því
að færa miðlunar- og frásagnar-
aðferðir sjónvarps og kvikmynda
inn í leikhúsið. Hann er sem sagt
afar nútímalegur höfundur sem
hefur náð langt með nálgun sinni á
leikhúsið,“ segir Hafliði.
Leikarar í verkinu Konan áður
eru Baldur Trausti Hreinsson,
Edda Arnljótsdóttir, Edda Björg
Eyjólfsdóttir, Þórunn Erna Clau-
sen og Vignir Rafn Valþórsson.
Leikmynd og búninga hannar
Stígur Steinþórsson en um lýsingu
sér Hörður Ágústsson.
vigdis@frettabladid.is
Kona bankar upp á
FORTÍÐARDRAUGUR Úr leikritinu Konan áður.