Fréttablaðið - 16.11.2007, Qupperneq 80
44 16. nóvember 2007 FÖSTUDAGUR
folk@frettabladid.is
Fréttir herma að söngkonan Britney Spears hafi nýverið
farið í fitusog á rassi og mjöðmum. Stjarnan var að leita sér
að húsnæði í spilavítaborginni Las Vegas um helgina en
sagt er að hún hafi nýtt tækifærið og farið í aðgerð í
leiðinni.
Þetta mun ekki vera í fyrsta skipti sem hún lætur lappa
upp á sig því í síðasta mánuði lét hún setja sílíkon í
varirnar. Auk þess herma kunnugir að Britney hafi einnig
farið í fitusog í Las Vegas í apríl síðastliðnum en því hefur
stelpan neitað staðfastlega.
Enn einn heimildarmaður hefur látið hafa eftir sér að það
sé ekki nema von að Britney ætli að eyða jafngildi tæplega
10 milljóna íslenskra króna í lýtaaðgerðir á næstunni.
„Britney rífur blaðsíður úr tímaritum þar sem sjá má
myndir af þeim fullkomnu líkamspörtum sem hún vill.
Þegar hún sér svona margar myndir af sjálfri sér í tímarit-
um er gjörsamlega ómögulegt fyrir hana að gagnrýna ekki
hvert einasta smáatriði á líkama sínum.“
Britney í lýtaaðgerðir
FÓR Í FITUSOG Britney Spears er sögð ætla að eyða um tíu milljónum
króna í lýtaaðgerðir á næstunni.
Amy Winehouse ýtti nýrri
tónleikaferð sinni um
Bretland úr vör með því að
standa sig svo illa á sviðinu
að hundrað áhorfendur yfir-
gáfu svæðið.
Tónleikaferð Amy Winehouse
hófst í Birmingham á miðviku-
dagskvöldið. Margir höfðu velt
því fyrir sér hvort söngkonan
myndi aflýsa tónleikunum eftir
allt sem hefur gengið á í lífi hennar
síðustu daga. Eiginmaður hennar,
Blake Fielder-Civil, situr í fang-
elsi þessa dagana og á þriðjudag
kölluðu foreldrar Amy á sjúkrabíl
vegna áhyggna af heilsu dóttur-
innar.
Hún lét sig þó hafa það að stíga
upp á svið á miðvikudagskvöldið,
en tónleikagestir voru sumir á því
máli að hún hefði betur haldið sig
heima. Einn þeirra segir við Perez
Hilton að Winehouse hafi verið
afar, afar drukkin. „Í eitt skiptið
kallaði hún okkur [tónleikagesti]
apapíkur og hún gleymdi textan-
um við flest lögin. Ég er mjög hrif-
inn af Amy, en þetta var skelfilegt.
Ég vildi geta sagt að röddin hefði
bjargað henni, en hún var líka
hryllileg,“ segir heimildamaður-
inn. James Dyas, annar tónleika-
gestur sem lét sig hverfa, sagði í
samtali við The Sun að Winehouse
hefði verið hálftíma of sein á svið.
„Hún datt á gítarinn og missti
hljóðnemann, þetta var skelfilegt.
Lagið sem hún tileinkaði eigin-
manni sínum var svo slæmt að það
hljómaði eins og einhver væri að
sveifla ketti yfir höfði sér,“ sagði
hann.
The Sun og BBC greina líka frá
því að Winehouse hafi litið út fyrir
að vera drukkin á tónleikunum.
Hún grét, talaði óskýrt og tileink-
aði eiginmanni sínum mörg lag-
anna. Þá breytti hún texta í sumum
lögum og bætti nafninu „Blakey“
inn í þá. Áheyrendur tóku ekki vel
í það og púuðu á söngkonuna. Þá
fauk í Winehouse, sem svaraði
fyrir sig. „Í fyrsta lagi, ef þið eruð
að púa eruð þið hálfvitar að hafa
keypt miða. Í öðru lagi, bíðið þið
bara þangað til maðurinn minn
losnar,“ sagði hún.
Ellefu tónleikar eru enn eftir af
tónleikaferð Winehouse, sem
lýkur í London 17. desember næst-
komandi.
Púað á Amy Winehouse
DRUKKIN Á SVIÐI Flestir virðast sam-
mála um að Amy Winehouse hafi verið
afar drukkin á tónleikunum í Birming-
ham og varla í standi til að syngja.
NORDICPHOTOS/GETTY
Leikstjórinn Steven Spielberg fær
heiðursverðlaun Cecil B. DeMille
þegar Golden
Globe-verðlaunin
verða afhent 13.
janúar. Vanalega fá
leikarar og
leik konur verð-
launin fyrir
framlag sitt til
skemmtanaiðnað-
arins og er
Spielberg fyrsti
leikstjórinn á
þessari öld sem fær verðlaunin.
Þeir sem hafa fengið verðlaunin á
þessum áratug eru: Warren
Beatty, Anthony Hopkins, Robin
Williams, Michael Douglas, Gene
Hackman, Harrison Ford, Al
Pacino og Barbra Streisand.
Tilkynnt verður um tilnefning-
arnar til Golden Globe-verðlaun-
anna 13. desember.
Spielberg
heiðraður
STEVEN
SPIELBERG
> MARCO ANTHONY?
Veðbankar eru farnir að spá fyrir
um nafn á barn hjónanna syngj-
andi, J-Lo og Marc Anthony.
Flestir veðja á Marco, en
Maria, Antonio og Rosario
koma líka sterk inn. Á listan-
um er einnig að finna nafnið
Ben. Líkurnar á því að Anth-
ony fallist á að skíra eftir
fyrrverandi kærasta konu
sinnar hljóta hins vegar að
teljast hverfandi.
ASKJA · Laugavegi 170 · 105 Reykjavík · Sími 590 2100 · www.askja.is · ASKJA er eini viðurkenndi sölu- og þjónustuaðili Mercedes-Benz á Íslandi.
KOMDU VEL ÚT
Í Mercedes-Benz B-Class situr þú hátt, hefur góða yfirsýn og hönnunin
á innanrými tryggir hámarksþægindi og frábært aðgengi.
Takmarkað magn Mercedes-Benz B-Class er til afgreiðslu
strax á góðu verði. Innifalin eru vetrardekk og Íslandspakki.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
0
7