Fréttablaðið - 16.11.2007, Side 92
16. nóvember 2007 FÖSTUDAGUR56
EKKI MISSA AF
20.50 Útsvar SJÓNVARPIÐ
21.30 Melinda and Melinda
STÖÐ 2
16.00 Try Seventeen STÖÐ
2 BÍÓ
21.00 Survivor: China SKJÁR-
EINN
18.15 Freddie Mercury: A
Kind Of Magic SIRKUS
SJÓNVARPIÐ SKJÁREINN
OMEGA
Dagskrá allan sólarhringinn.
SJÓNVARP NORÐURLANDS
12.15 Samantekt helstu frétta vikunn-
ar á N4 . Endursýnt á klukkutíma fresti til
10.15 á sunnudag.
STÖÐ 2 BÍÓ
16.05 07/08 bíó leikhús e.
16.35 Leiðarljós
17.20 Táknmálsfréttir
17.30 Ungar ofurhetjur (53:65)
17.52 Villt dýr (24:26)
18.00 Snillingarnir (36:42)
18.24 Þessir grallaraspóar (5:26)
18.30 Svona var það (9:22)
19.00 Fréttir
19.30 Veður
19.35 Þar sem háir hólar... Bein útsend-
ing úr Þjóðleikhúsinu frá dagskrá í tilefni af
200 ára fæðingarafmælis Jónasar Hallgríms-
sonar. Fram koma m.a. Kór Menntaskólans
í Hamrahlíð, Drengjakór Reykjavíkur, söngv-
ararnir Gunnar Guðbjörnsson og Bergþór
Pálsson ásamt Jónasi Ingimundarsyni píanó-
leikara og leikararnir Gunnar Eyjólfsson,
Benedikt Erlingsson og Ingvar E. Sigurðsson.
20.50 Útsvar Að þessu sinni eigast við
Ísafjörður og Reykjanesbær og meðal kepp-
enda eru Ólína Þorvarðardóttir ritstjóri og
Ragnheiður Eiríksdóttir tónlistarmaður.
21.50 Skólasöngleikurinn 2 Ný banda-
rísk sjónvarpsmynd, framhald feikivinsællar
myndar sem sýnd var um jólin í fyrra. Hetj-
urnar úr fyrri myndinni vinna í klúbbi í
sumar leyfi sínu og taka þátt í hæfileika-
keppni þar.
23.35 Morðgátur Murdochs - Undir
drekahala Kanadísk sakamálamynd frá
2004 þar sem spæjarinn William Murdoch í
Toronto fæst við snúið mál.
01.05 Veronica Guerin e.
02.40 Útvarpsfréttir í dagskrárlok
07.00 Barnatími Stöðvar 2
08.10 Oprah
08.55 Í fínu formi
09.10 The Bold and the Beautiful
09.30 Wings of Love (65.120)
10.15 Numbers (16.24)
11.10 Veggfóður
12.00 Hádegisfréttir
12.45 Nágrannar
13.10 Forboðin fegurð (105.114)
13.55 Forboðin fegurð (106.114)
14.45 Lífsaugað III (e)
15.25 Bestu Strákarnir (2.50) (e)
15.55 Barnatími Stöðvar 2
17.28 The Bold and the Beautiful
17.53 Nágrannar
18.18 Ísland í dag og veður
18.30 Fréttir
19.35 The Simpsons (10.22) (e)
20.00 Logi í beinni (5.10) Edda Andrés-
dóttir fréttakona mætir í sjónvarpssal en
hún hefur verið fastagestur á skjám lands-
manna árum saman. Þorgrímur Þráinsson
lætur einnig sjá sig en hann gaf nýlega út
bók. 2007.
20.35 Tekinn 2 (10.14) Stuðmaðurinn
Jakob Frímann er ekki í miklu stuði þegar
hann mætir í myndatöku þar sem hann fær
engu að ráða um útlit myndanna. Í seinni
hrekknum lendir Björn Jörundur í uppá-
þrengjandi rótara. 2007.
21.05 Stelpurnar
21.30 Melinda and Melinda Gaman-
söm mynd eftir Woody Allen sem segir
sögu ungrar konu sem heitir Melinda. Það
óvenjulega er að áhorfandinn fær að sjá
sögu hennar frá tveim gjörólíkum sjónar-
hornum eftir því hvort líf hennar tekur sorg-
lega stefnu eða gamansama. Aðalhlutverk:
Wallace Shawn, Neil Pepe, Stephanie Roth
Haberle. 2004. Bönnuð börnum.
23.10 The Locals Hörkuspennandi tryll-
ir um tvo vini sem ætla í skemmtilegt ferða-
lag en gera þau skelfilegu mistök að stytta
sér leið yfir hættulegt svæði. Aðalhlutverk:
John Barker, Dwayne Cameron, Kate Elliott.
2003. Stranglega bönnuð börnum.
00.35 Run Ronnie Run!
01.55 Speed
03.50 Club Dread (Broken Lizard´s Club
Dread)
05.30 Fréttir og Ísland í dag
06.25 Tónlistarmyndbönd frá PoppTíVí
06.00 Home Room
08.10 Pelle Politibil
10.00 Try Seventeen
12.00 A Shot at Glory
14.00 Pelle Politibil
16.00 Try Seventeen
18.00 A Shot at Glory
20.00 Home Room
22.10 Grosse Point Blank (e) Martin
Blank er fyrsta flokks leigumorðingi en hann
er orðinn dauðleiður á starfinu. Aðalhlut-
verk: John Cusack, Minnie Driver, Alan Arkin.
00.00 Dirty War
02.00 Hard Cash
04.00 Grosse Point Blank (e)
07.30 Game tíví (e)
08.00 Dr. Phil (e)
08.45 Vörutorg
16.00 Vörutorg
17.00 Game tíví (e)
17.25 7th Heaven (e)
18.15 Dr. Phil
19.00 Friday Night Lights (e)
20.00 Charmed (14.22) Bandarískir þætt-
ir um þrjár fagrar og kyngimagnaðar örlaga-
nornir. Billy Zane leikur fyrrum djöful sem
sækir um kennarastöðu við galdraskólann.
21.00 Survivor: China (9.14) Vinsæl-
asta raunveruleikasería allra tíma. Þetta er
15. keppnin og nú fer hún fram í Kína.
22.00 Law & Order: Criminal Intent
(16.22) Bandarískir þættir um störf stór-
málasveitar New York borgar og leit henn-
ar að glæpamönnum. Það er dramatík í óp-
erunni þegar dóttir frægrar óperusöngkonu
er myrt og hrokafullur stjórnandinn liggur
undir grun.
22.50 Masters of Horror (8.13) Þekkt-
ustu hrollvekjuleikstjórar samtímans leikstýra
stuttum hrollvekjum sem fá hárin til að rísa.
Nú er komið að leikstjóranum Mick Garris
(Riding the Bullet og The Stand) að sýna
hvað í honum býr en Christopher Lloyd
leikur eitt af aðalhlutverkunum.
23.40 Backpackers (20.26) Áströlsk
þáttaröð þar sem áhorfendur slást í för með
þremur vinum sem halda í mikla ævintýra-
för um heiminn. Félagarnir segja skilið við
hversdagsleikann í eitt ár og koma við í 22
löndum á ferðalagi sínu.
00.10 Law & Order: SVU (e)
01.00 Allt í drasli (e)
01.50 C.S.I. Miami (e)
02.35 World Cup of Pool 2007 - NÝTT
(e)
03.35 C.S.I. (e)
04.20 C.S.I. (e)
05.05 Vörutorg
06.05 Óstöðvandi tónlist
17.25 PGA Tour 2007 - Highlights (Walt
Disney World Resort Classic)
18.20 Gillette World Sport 2007 Íþróttir
í lofti, láði og legi.
18.50 NFL Gameday Upphitun fyrir leiki
helgarinnar í bandaríska fótboltanum auk
þess sem helstu tilþrif síðustu helgar eru
sýnd.
19.20 Meistaradeild Evrópu - Frétta-
þáttur Vandaður fréttaþáttur um allt það
helsta sem er á döfinni í þessari sterkustu
knattspyrnudeild heims.
19.50 Austurríki - England Bein útsend-
ing frá vináttuleik Austurríkis og Englands.
21.50 World Supercross GP Súperkross
er æsispennandi keppni á mótorkrosshjól-
um sem fram fer á brautum með stórum
stökkpöllum. Mjög reynir á kappana við
þessar aðstæður en ýmsar tækninýjungar
hafa verið nýttar varðandi búnað vélhjól-
anna sem til að mynda gefa þeim aukið svif
í stökkum.
22.50 World Series of Poker 2007 (7
Card Stud)
23.40 Heimsmótaröðin í póker 2006
00.30 NBA-körfuboltinn Útsending frá
leik í NBA.
18.00 Tottenham - Wigan Útsending
frá leik Tottenham og Wigan í ensku úrvals-
deildinni.
19.40 Man. Utd. - Blackburn Útsending
frá leik Man. Utd og Blackburn í ensku úr-
valsdeildinni sem fór fram sunnudaginn 11.
nóvember.
21.20 Premier League World Nýr þáttur
þar sem enska úrvalsdeildin er skoðuð frá
ýmsum óvæntum hliðum. Leikmenn heim-
sóttir, gömlu stjörnurnar leitaðar uppi og
svipmyndir af æðinu fyrir enska boltanum
um heim allan.
21.50 PL Classic Matches Leikur New-
castle og Leicester var frábær skemmtun
fyrir áhorfendur sem munu seint gleyma
þessum leik.
22.20 PL Classic Matches Hápunktarn-
ir úr bestu og eftirminnilegustu leikjum úr-
valsdeildarinnar. Leikur Blackburn og Leicest-
er frá árinu 1998 var stórkostleg skemmtun
þar sem boðið var upp á markaveislu.
22.50 Goals of the season
23.50 Reading - Arsenal Útsending frá
leik Reading og Arsenal í ensku úrvalsdeild-
inni í knattspyrnu sem fór fram mánudag-
inn 12. nóvember.
▼
▼
▼
▼
Stjörnurnar á skjánum og hvíta tjaldinu, sem birtast jafnóðum á
síðum glanstímarita og dagblaða, hafa haldið við útlitsdýrkuninni
í hinum vestræna heimi undanfarna áratugi. Þessi trúarbrögð hafa
færst í aukana á undanförnum árum og náð hámarki með þáttum
á borð við Extreme Makeover, The Swan og svo loks America‘s
Next Top Model þar sem útlitið skiptir höfuðmáli.
Hið venjulega þykir ekki fínn pappír. Nú síðast sá Tyra Banks sig til
að mynda tilneydda að reka eina stúlkuna sem gekk með fyrir-
sætudrauminn í maganum úr keppni og gaf þá einföldu ástæðu
að hún væri hvorki nógu mikil „bomba“ né of grönn. Hún væri
einfaldlega venjuleg. Tárin láku niður hvarma fyrirsætunnar sem
var með þessum áfellisdómi frú Banks orðin ein af okkur.
Og þessi útlitsdýrkun teygir anga sína víðar. Fórnarlömbin sem
hrannast upp hjá CSI og öðrum bandarískum sakamálaþáttum
virðast nefnilega hafa tekið upp þessa trú. Morðin hafa færst
úr skuggasundum stórborganna yfir í sundlaugarpartí þar sem
er nánast öruggt að myndavélin fangi fönguleg fljóð og bert
hold. Fórnarlömbin eru ekki fólk á röngum stað á röngum tíma
heldur virðast síðustu mínútunum í lífi þeirra hafa verið
eytt í djarfan dans við taktfasta rapptónlist en svo er lífið
murkað úr þeim á mjög snjallan og útsmoginn hátt. En
þetta á ekki bara við um sakleysingjana sem eru kall-
aðir til æðri máttarvalda á unga aldri því morðing-
inn er ekki líkt og áður illa þefjandi dópisti né róni
heldur ýmist afbrýðisöm eiginkona sem eytt hefur
milljónum í fegrunaraðgerðir eða illa inn rættur
eiginmaður með Colgate-bros.
Þetta hljóta þó að vera góðar fréttir fyrir okkur ljóta
fólkið, við erum hólpin ef marka má spennuþætti,
því það er bara fallega fólkið sem er drepið þessa
dagana.
VIÐ TÆKIÐ FREYR GÍGJA GUNNARSSON VARPAR ÖNDINNI LÉTTAR
Fallega fólkið er nýjustu fórnarlömbin
REKIN FYRIR MEÐALMENNSKU Tyra Banks var ekki
ýkja hrifin af stúlku sem þótti venjuleg og lét hana
taka pokann sinn.
> Mandy Moore
Mandy fékk áhuga á söng eftir að
hún sá söngleikinn Oklahoma!
Amma hennar hvatti hana til
að verða söngkona og hún hóf
ferillinn með því að syngja þjóð-
sönginn á íþróttaleikjum í Flórída.
Mandy leikur í Try Seventeen á Stöð
2 Bíó í kvöld.
Opið til 19 í dag og 10–18 á morgun
Gefðu þér
góðan tíma
Hafðu jólaundirbúninginn notalegan og njóttu þess
að kaupa jólafötin og jólagjafirnar tímanlega.
Nýtt kortatímabil