Fréttablaðið - 16.11.2007, Side 96
Jónas Hallgrímsson á afmæli í dag og hefði orðið 200 ára hefði
hann lifað. Íslendingar eiga
Jónasi margt að þakka. Jónas
fæddist á Hrafnseyri í Arnarfirði
á nítjándu öld. Talið er að hann
hafi átt erfiða æsku, að minnsta
kosti orti hann ekki mikið um
æskustöðvar sínar. Sumir halda
þó að hið dularfulla kvæði All-
snjóað sé kannski um Arnarfjörð
enda var þar oft snjóþungt. Jónas
var líka náttúrufræðingur og
fyrstur manna til að rækta kart-
öflur í Sauðlauksdal og skrifaði
um það bókina Búnaðarbákn.
gaf til að byrja með út
margar bækur sem vöktu ekki
athygli. Hann sló hins vegar í
gegn með ljóðinu Ferðalag, þar
sem hann yrkir meðal annars
„greiddi ég þér lokka við Grafar-
vog“. Þar strax sýndi Jónas hvað
hann var langt á undan sinni sam-
tíð, með því að yrkja kvæði um
Grafarvog löngu áður en Grafar-
vogur varð til. Ég held að þetta sé
í fyrsta sinn sem þetta kemur
fram. Það má því með sanni segja
að Jónas hafi verið fyrsta Grafar-
vogsskáldið, langt á undan Sig-
mundi Erni. Jónas var líka í
skáldahópnum Fjölni sem íþrótta-
félagið í Grafarvogi er nefnt
eftir.
var uppi á tíma þegar
Íslendingar töluðu ekki góða
íslensku. Jónas og Fjölnismenn
voru aðilar að ákvörðunartökunni
um að snúa vörn í sókn. Jónas
hljóp undir bakka með þjóðinni
og samdi mörg nýyrði, til dæmis
apótek, harmóníka og flatskjár.
Þannig er Jónas enn í dag gríðar-
lega áhrifamikill í íslensku hvað
málbeitingu varðar. Jónas elskaði
Ísland og samdi til dæmis ljóðið
Ísland er land þitt sem frægt lag
var samið við og sumir vilja að
verði spilað á landsleikjum.
Íslendingar elska líka Jónas.
Bækur eftir Jónas eru enn mjög
vinsælar á Íslandi, sérstaklega
fyrir fermingar, sérstaklega
Passíusálmarnir. Jónas var líka
mjög rómantískur eins og sést á
ástarljóðum hans til Vatnsenda-
Rósu.
dó langt fyrir aldur fram
og var ekki ófáum harmdauði
þegar hann varð fyrir sporvagni í
Kaupmannahöfn árið 1924. Jónas
var ekki nema 27 ára þegar hann
dó. Það merkilega við það er að
margt annað frægt fólk var líka
27 ára þegar það dó. Jónasar
verður alla veganna alltaf minnst
á sama vettvangi og Janis Joplin,
Jim Morrison og Kurt Cobain.
Jónas var sko ekki verra skáld en
þau. Hvernig er það, verðum við
ekki að fara að reisa styttu af
Jónasi?
Jónas minn
BYR - sparisjóður | Sími 575 4000 | www.byr.is
Fáðu BYR undir báða vængi
Við lítum á viðskiptavini okkar sem mikilvægustu fjárfestinguna.
Við aðstoðum þig við að sjá um fjármál heimilisins og fylgjumst
með því að þú fáir alltaf það besta sem er í boði.
Með því að vera með allt á sama stað færð þú betri kjör og meiri fríðindi.
NÁMSKEIÐ OG RÁÐGJÖF Í FJÁRMÁLUM
*Útlán eru háð lánareglum.
LÁN ÁN ÁBYRGÐARMANNA*
FRÍTT DEBETKORT
HÆRRI INNLÁNSVEXTIR
LÆGRI YFIRDRÁTTARVEXTIR
AFSLÁTTUR AF LÁNTÖKUGJÖLDUM
SÉRKJÖR Á BÍLAFJÁRMÖGNUN*