Fréttablaðið - 16.11.2007, Side 96

Fréttablaðið - 16.11.2007, Side 96
Jónas Hallgrímsson á afmæli í dag og hefði orðið 200 ára hefði hann lifað. Íslendingar eiga Jónasi margt að þakka. Jónas fæddist á Hrafnseyri í Arnarfirði á nítjándu öld. Talið er að hann hafi átt erfiða æsku, að minnsta kosti orti hann ekki mikið um æskustöðvar sínar. Sumir halda þó að hið dularfulla kvæði All- snjóað sé kannski um Arnarfjörð enda var þar oft snjóþungt. Jónas var líka náttúrufræðingur og fyrstur manna til að rækta kart- öflur í Sauðlauksdal og skrifaði um það bókina Búnaðarbákn. gaf til að byrja með út margar bækur sem vöktu ekki athygli. Hann sló hins vegar í gegn með ljóðinu Ferðalag, þar sem hann yrkir meðal annars „greiddi ég þér lokka við Grafar- vog“. Þar strax sýndi Jónas hvað hann var langt á undan sinni sam- tíð, með því að yrkja kvæði um Grafarvog löngu áður en Grafar- vogur varð til. Ég held að þetta sé í fyrsta sinn sem þetta kemur fram. Það má því með sanni segja að Jónas hafi verið fyrsta Grafar- vogsskáldið, langt á undan Sig- mundi Erni. Jónas var líka í skáldahópnum Fjölni sem íþrótta- félagið í Grafarvogi er nefnt eftir. var uppi á tíma þegar Íslendingar töluðu ekki góða íslensku. Jónas og Fjölnismenn voru aðilar að ákvörðunartökunni um að snúa vörn í sókn. Jónas hljóp undir bakka með þjóðinni og samdi mörg nýyrði, til dæmis apótek, harmóníka og flatskjár. Þannig er Jónas enn í dag gríðar- lega áhrifamikill í íslensku hvað málbeitingu varðar. Jónas elskaði Ísland og samdi til dæmis ljóðið Ísland er land þitt sem frægt lag var samið við og sumir vilja að verði spilað á landsleikjum. Íslendingar elska líka Jónas. Bækur eftir Jónas eru enn mjög vinsælar á Íslandi, sérstaklega fyrir fermingar, sérstaklega Passíusálmarnir. Jónas var líka mjög rómantískur eins og sést á ástarljóðum hans til Vatnsenda- Rósu. dó langt fyrir aldur fram og var ekki ófáum harmdauði þegar hann varð fyrir sporvagni í Kaupmannahöfn árið 1924. Jónas var ekki nema 27 ára þegar hann dó. Það merkilega við það er að margt annað frægt fólk var líka 27 ára þegar það dó. Jónasar verður alla veganna alltaf minnst á sama vettvangi og Janis Joplin, Jim Morrison og Kurt Cobain. Jónas var sko ekki verra skáld en þau. Hvernig er það, verðum við ekki að fara að reisa styttu af Jónasi? Jónas minn BYR - sparisjóður | Sími 575 4000 | www.byr.is Fáðu BYR undir báða vængi Við lítum á viðskiptavini okkar sem mikilvægustu fjárfestinguna. Við aðstoðum þig við að sjá um fjármál heimilisins og fylgjumst með því að þú fáir alltaf það besta sem er í boði. Með því að vera með allt á sama stað færð þú betri kjör og meiri fríðindi. NÁMSKEIÐ OG RÁÐGJÖF Í FJÁRMÁLUM *Útlán eru háð lánareglum. LÁN ÁN ÁBYRGÐARMANNA* FRÍTT DEBETKORT HÆRRI INNLÁNSVEXTIR LÆGRI YFIRDRÁTTARVEXTIR AFSLÁTTUR AF LÁNTÖKUGJÖLDUM SÉRKJÖR Á BÍLAFJÁRMÖGNUN*

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.