Fréttablaðið - 20.11.2007, Blaðsíða 4
4 20. nóvember 2007 ÞRIÐJUDAGUR
flugfelag.is
Netið
Þú færð alltaf
hagstæðasta verðið
á www.flugfelag.is
DÓMSMÁL Tveir litháískir ríkis-
borgarar sem setið hafa inni að
undanförnu
vegna rannsókn-
ar á nauðgunar-
máli voru í gær
úrskurðaðir í
áframhaldandi
gæsluvarðhald
til 21. desember.
Lögreglustjóri
höfuðborgar-
svæðisins lagði
fram kröfu
þessa efnis og
Héraðsdómur
Reykjavíkur
féllst á hana.
Ekki var ljóst síðdegis í gær
hvort mennirnir myndu kæra
úrskurðinn til Hæstaréttar, en það
gerðu þeir síðast þegar þeir voru
úrskurðaðir í gæsluvarðhald.
Nauðgunin sem mennirnir eru í
haldi út af átti sér stað við
Laugaveg og var afar hrottaleg.
- jss
Á LEIÐ Í HÉRAÐS-
DÓM Annar Lit há-
anna sem eru í haldi
vegna nauðgunar.
Grunaðir um nauðgun:
Gæsluvarðhald
var framlengt
NOREGUR, AP Lögreglan í Noregi
handtók á sunnudag skólapilt sem
grunaður er um að hafa hótað
skotárás í milliskóla á norsku
eyjunni Askøy skammt frá
Björgvin. Honum var sleppt úr
haldi í gær. Á myndbandi sem var
sett inn á myndbandavefinn
YouTube sást mynd af Erdal-
skólanum og dagsetningin í gær
kom fram. Myndbandið var
svipað því sem finnskur nemandi
setti inn á sama vef áður en hann
skaut átta til bana í finnskum
skóla fyrir skömmu.
Ábending um myndbandið
barst á laugardaginn frá konu í
Bretlandi að sögn lögreglu. - sdg
Einn er í haldi lögreglu:
Skotárás hótað
í norskum skóla
Karimov fram enn á ný
Islam Karimov, sem hefur stjórnað
Úsbekistan með harðri hendi frá því
áður en Sovétríkin liðuðust í sundur
árið 1991, hefur gefið kost á sér til
endurkjörs í forsetakosningum sem
fram eiga að fara 23. desember. Sam-
kvæmt stjórnarskrá má hann það ekki
en enginn efast samt um að hann
verði endurkjörinn. Fáeinum öðrum
hefur verið leyft að bjóða sig fram til
málamynda.
ÚSBEKISTAN
Hryðjuverkamálaráðgjafi frá
Fran Townsend, helsti ráðgjafi Banda-
ríkjaforseta í hryðjuverkavarnamálum,
hefur boðað afsögn sína eftir fjögur
og hálft ár í starfi. Með henni missir
George W. Bush forseti enn einn
af kjarnaráðgjöfum sínum úr Hvíta
húsinu, fimmtán mánuðum fyrir lok
kjörtímabils síns.
BANDARÍKIN
BANGLADESS, AP Tala látinna eftir
fellibylinn Sidr sem reið yfir
Bangladess á fimmtudaginn
hækkar stöðugt eftir því sem
björgunarmenn komast til
afskekktari svæða og er nú komin
upp í 3.100.
Yfir þúsund manns er enn
saknað að sögn talsmanns
hersins, Ullah Chowdhury. Óttast
er að fjöldi látinna sé mun meiri
en komið hefur fram.
Þeir sem komust lífs af segja
að koma hefði mátt í veg fyrir
mörg dauðsfallanna en fólk hafi
hunsað aðvaranir um fellibylinn
og tilmæli um að færa sig hærra
inn í landið.
Hjálparsamtök hafa heitið
aðstoð upp á 1,5 milljarða króna.
- sdg
3.100 látnir í Bangladess:
Fórnarlömbum
fellibyls fjölgar
SYRGJANDI MÓÐIR Móðir syrgir sjö ára
son sinn eftir að björgunarmenn fundu
lík drengsins á akri skammt frá þorpinu
þeirra. NORDICPHOTOS/AFP
ORKUMÁL Hlutafélagavæðing
Orkuveitu Reykjavíkur er ekki á
dagskrá nýs meirihluta í borgar-
stjórn Reykjavíkur. Stjórn Orku-
veitunnar beindi því til eigenda
fyrirtækisins í september að
rekstrarformi þess yrði breytt.
Mat núverandi borgarmeirihluta
er að sá styr sem hefur staðið um
fyrirtækið og málefni þess fresti
ákvörðunum um hlutafélagavæð-
ingu um ótiltekinn tíma.
„Það er ekki á dagskrá að hluta-
félagavæða Orkuveituna eins og
pólitíkin stendur núna“, segir
Svandís Svavarsdóttir, borgarfull-
trúi Vinstri grænna. Dagur B.
Eggertsson borgarstjóri segir að í
bili séu hugmyndir um breytt
rekstrarform úti af borðinu. Stýri-
hópur Svandísar um málefni fyrir-
tækisins hefur tillögu um breytt
rekstrarform fyrirtækisins til
umfjöllunar en hefur ekki tekið
formlega ákvörðun.
Stjórn Orkuveitunnar sam-
þykkti á fundi 3. september að
beina því til eigenda fyrirtækisins
að rekstrarformi hennar yrði
breytt úr sameignarfélagi í hluta-
félag. Hlutafélagið átti að taka til
starfa 1. janúar 2008, samkvæmt
hugmyndum þáverandi forstjóra
og aðstoðarforstjóra, Guðmundar
Þóroddssonar og Hjörleifs B.
Kvaran, en fulltrúar minnihlut-
ans, Svandís og Dagur, greiddu
atkvæði gegn tillögunni.
Helstu rökin með breytingunni
voru ábending Eftirlitsstofnunar
EFTA vegna samkeppni Orkuveit-
unnar við hlutafélög á orkumark-
aði og skattamál. Töldu Guðmund-
ur og Hjörleifur að 800 milljónir
myndu sparast árið 2008 þar sem
skattahlutfall af tekjum Orkuveit-
unnar myndi lækka úr 28 prósent í
18 prósent. Gagnrýni Svandísar
og Dags snerist um að málið væri
illa undirbúið, og að gögn vantaði
til að taka rökstyðja ávinning
breytingarinnar. Einnig taldi
Svandís að í raun væri breytingin
illa dulbúin tilraun til einkavæð-
ingar.
Eftir að stjórn Orkuveitunnar
lagði til að fyrirtækið yrði hluta-
félagavætt var skipaður þver-
pólitískur starfshópur eftir
umfjöllun um málið í borgarráði.
Niðurstaða fékkst ekki áður en
meirihlutinn sprakk um miðjan
október. Málinu var síðan beint
inn í stýrihóp Svandísar um mál-
efni Orkuveitunnar, sem ekki
hefur unnist tími til að fjalla um
málið. svavar@frettabladid.is
Hlutafélagavæðing
OR ekki á dagskrá
Meirihlutinn í borgarstjórn segir hlutafélagavæðingu Orkuveitunnar ekki á dag-
skrá. Stýrihópur Svandísar Svavarsdóttur á að taka afstöðu til breytts rekstrar-
forms. Stjórn fyrirtækisins vildi að Orkuveitan hf. tæki til starfa í janúar.
DAGUR B.
EGGERTS SON
SVANDÍS
SVAVARSDÓTTIR
ORKUVEITUHÚSIÐ Hugmyndir um að breyta Orkuveitu Reykjavíkur í hlutafélag hafa
verið slegnar út af borðinu vegna ólgu í kringum fyrirtækið að undanförnu.
FRÉTTABLAÐIÐ/RÓBERT
Farið fram á gæsluvarðhald
Lögreglustjórinn á Selfossi hefur farið
fram á gæsluvarðhald yfir karlmanni
á þrítugsaldri í þágu rannsóknar
á hnífstungumáli við Hellisheiðar-
virkjun. Dómari tók sér frest til
hádegis á dag. Maðurinn er grunaður
um að hafa stungið félaga sinn með
hnífi í vinnubúðum virkjunarinnar á
laugardag.
LÖGREGLUFRÉTTIR
GENGIÐ 19.11.2007
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
117,8733
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
60,75 61,05
124,48 125,08
88,87 89,37
11,924 11,994
11,01 11,074
9,573 9,629
0,5498 0,553
96,15 96,73
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
ALÞINGI Engir annmarkar valda
því að ekki sé hægt að berjast
áfram fyrir svokölluðu íslensku
ákvæði í Kyoto-bókuninni um
loftslagsmál.
Þetta kom fram í svari Össurar
Skarphéðinssonar iðnaðarráð-
herra við fyrirspurn Sivjar Frið-
leifsdóttur, þingmanns Fram-
sóknarflokksins, á Alþingi í gær.
Siv spurði meðal annars hvort
ekki væri rétt að ræða þessi mál
og taka ákvörðun um það hvort
óskað yrði eftir endurnýjun á
íslenska ákvæðinu.
Fram kom í máli ráðherrans að
hann teldi að ekki væri rétti tím-
inn til að taka ákvörðun um þessi
mál. Aðallega hefði verið rætt um
mikilvægi þess að ná utan um
losun gróðurhúsalofttegunda hjá
þeim löndum sem ekki væru aðil-
ar að bókuninni. Þá hefði verið
rætt um svokallaða geiranálgun,
þar sem reynt yrði að ná utan um
losun á gróðurhúsalofttegundum
einstakra geira. Sagði Össur þá
nálgun þjóna hagsmunum Íslands
mun betur en séríslensk undan-
þága.
Iðnaðarráðherra sagði enn
fremur að um þessar mundir væri
það mikilvægast að smáþjóðir,
líkt og Ísland, berðust fyrir því
„að reyna að fá þessi stóru lönd,
þessi efnahagslegu tígrisdýr eins
og Indland og Kína og fleiri, til að
taka þátt í þessu samningaferli.“
- þeb
Iðnaðarráðherra svaraði fyrirspurn um íslenska ákvæðið í Kyoto-bókuninni:
Ótímabært að taka ákvörðun
RÁÐHERRANN Össur segir mikilvægt
fyrir smáþjóðir eins og Ísland að fá lönd
eins og Indland og Kína inn í samninga-
ferli um losun gróðurhúsalofttegunda.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI