Fréttablaðið - 20.11.2007, Blaðsíða 21
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÆKUR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL.
Ari Trausti Guðmundsson jarðeðlisfræðingur
hefur stundað mikla hreyfingu allt frá unglings-
aldri og er meðal annars þekktur fyrir að vera
mikill fjallgöngumaður. Hann lætur það hins
vegar ekki nægja heldur lyftir hann lóðum
tvisvar til þrisvar sinnum í viku.
„Ég byrjaði ekki á lyftingum og tækjastandi fyrr en
ég var orðinn rúmlega þrítugur,“ segir Ari, sem er
búinn að lyfta lóðum í um 25 ár. „Ég æfi að meðaltali
svona tvisvar til þrisvar í viku í Silfur sporti og er
þá að lyfta lóðum. Mér finnst það mjög gott og það
gefur mér mikið enda þarf ég á þessu að halda bæði
út af almennu starfsþreki og út af því sporti sem ég
er í,“ segir hann og vísar þar til fjallgöngu og fjalla-
klifurs. „Þar verða menn að vera sterkir. Með sterka
fætur, sterkt bak og sterka handleggi svo þetta er
alveg bráðnauðsynlegt,“ segir Ari og leggur áherslu
á að þótt ákveðnum tíma sé eytt í lyftingarnar komi
það til góða annars staðar eins og í auknu starfs-
þreki.
Ari hefur verið virkur í fjallgöngum og fjallaklifri
í að minnsta kosti 35 ár og er einn af þessum gömlu
í faginu. Spurður hvað það sé við fjöllin sem heilli
segir Ari: „Það er að vera úti í náttúrunni og fást við
krefjandi verkefni.“ Hann segist alltaf vera með
einhver plön í fjallasportinu og stefnir á hátt fjall
árið 2008.
„Ég hef reyndar ekkert rosalega gaman af því að
lyfta lóðum og held að fáir hafi gaman af því,“ segir
Ari og bætir því við að þetta sé þó nytsamlegt og
nokkuð sem hann viti að hann verði að gera, rétt
eins og að borða. „Ég hef bara verið á þremur stöð-
um í þessi 25 ár og þoli ekki stóra staði. Frekar vil ég
vera á smærri stöðum eins og Gym-80 þegar það var
og hét og svo núna í Silfur sporti,“ segir hann og
bætir við: „Það er frekar lítið, maður þekkir alla og
tækin eru mjög góð. Það skiptir mig öllu máli hvar
ég æfi og myndi ekki gera þetta hvar sem er.“
sigridurh@frettabladid.is
Stefnir á hátt fjall
Ari Trausti Guðmundsson lyftir lóðum í Silfur sporti tvisvar til þrisvar sinnum í viku að meðaltali og finnst það bráðnauðsynlegt
upp á starfsþrekið sem og almennt þrek. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
NOTUÐ AF NÁTTÚRULÆKNUM
Goji-ber sem vaxa í hlíðum Hima-
lajafjalla þykja meinholl og
hafa lengi verið notuð við
ýmsum kvillum.
HEILSA 2
HOLLUSTUDRYKKIR
Á veitingastaðnum Gló í
Laugardalnum má fá ýmsa
orkuríka drykki.
HEILSA 3