Fréttablaðið - 20.11.2007, Blaðsíða 48
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Karenar D.
Kjartansdóttur
Í dag er þriðjudagurinn 20.
nóvember, 324. dagur ársins.
10.11 13.13 16.15
10.13 12.58 15.42
Ó svei, allir eru að okra, enginn vill vinna, allir eru að kaupa,
jólin byrjuðu í október. Þegar
meirihluti samræðna á kaffi-
stofum byggist upp á fyrrnefndum
fullyrðingum veit ég að blessuð
jólahátíðin er á næsta leiti.
Margir segja að fyrsti boðberi
jólanna sé jólasveinarnir í glugg-
anum hjá Rammagerðinni. Mér
finnst jólin hins vegar ekki byrja
fyrr en ég les reiðipistil um hve
geigvænleg efnishyggja og
neysla íslensku þjóðarinnar sé
orðin. Slíka pistla skrifar gáfað
og gott fólk sem mér finnst lík-
legt að vilji segja öðrum rómant-
ískar ýkjusögur af þeirri gleði
sem gagntók það þegar það fékk
epli í desember eða þegar það
opnaði fyrsta molann af makkin-
tosinu í bernsku.
YFIRLEITT hríslast um mig
gæsahúð af hrifningu þegar ég
les slíka vandlætingarpistla þó
ég velti því oft fyrir mér hvar í
veröldinni þetta fólk hafi alist
upp. Ekki voru epli neitt tiltöku-
mál í minni bernsku, þaðan af
síður viðbjóðslegir makkintos-
molarnir sem eldra fólk otaði að
mér á hátíðum og gerði mér ljóst
að það væri dónaskapur og van-
þakklæti að afþakka slíkan
nýlenduvarning.
ÉG er afskaplega sátt við hlut-
skipti mitt í lífinu. Hef aldrei
keypt mér hlut sem mér þótti of
dýr. Í martröðum mínum sé ég
ekki fyrir mér kaupmenn að velta
sér upp úr seðlahrúgu og greiðslu-
kvittunum frá sveltandi vinnu-
þjörkum með sultardropa, sem
neyddust til að eyða síðustu
krónunum sínum í bandarísk
leikföng. Dægurþras gáfaðs og
nýtins fólks um verð og okur fær
mig stundum til að halda að meg-
inþorri Íslendinga eigi nánast
engan pening. Þeim fáu krónum
sem þeir haldi eftir af launum
sínum sé ætíð stolið af gráðugum
kaupmönnum í líki hins illa
Skröggs sem lesa má um í jóla-
ævintýri Dickens.
ÞÁ finnst mér væl fólks yfir því
hvað það eigi ægilega lítinn pen-
ing vegna þess að það hafi þurft
að kaupa sér svo ægilega dýra
hluti svipa til kvartana drykkju-
manns sem kvartar yfir þynnku.
Í báðum tilfellum er til einföld
lausn á vandamálinu. Temjið
ykkur að versla til jólanna undir
áhrifum áfengis; þá getið þið
kennt brennivíninu um að þið
eydduð allt of miklum peningum.
Lausnin fundin