Fréttablaðið - 20.11.2007, Blaðsíða 42
34 20. nóvember 2007 ÞRIÐJUDAGUR
HANDBOLTI Dregið var í átta liða
úrslit í Eimskipsbikar karla í
hádeginu í gær.
Óhætt er að segja að drátturinn
hafi verið tvískiptur þar sem í
boði verða tveir stórleikir og svo
tveir leikir þar sem minni spá-
menn eru á meðal þátttakenda.
Bikarmeistarar Stjörnunnar
þurfa að sækja Fram heim í
Safamýri en þessi lið áttust
einmitt við í úrslitum bikarkeppn-
innar á síðustu leiktíð. Svo tekur
Valur á móti Haukum.
Þróttur úr Vogum er óvænt í
átta liða úrslitum en liðið tekur
ekki þátt í deildarkeppninni. Liðið
er þjálfað af Sigurði Vali Sveins-
syni, fyrrum stórskyttu. Leikirnir
fara fram 2. og 3. desember. - hbg
Eimskipsbikar karla:
Meistararnir í
Safamýrina
MÆTAST AFTUR Fram og Stjarnan mæt-
ast í stórleik átta liða úrslitanna.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
DRÁTTURINN
8-liða úrslit:
Fram - Stjarnan
Valur - Haukar
Afturelding B - Akureyri
Þróttur Vogum - Víkingur
GOLF Birgir Leifur Hafþórsson er
í 17.-23. sæti þegar aðeins einn
hringur er eftir á lokaúrtökumót-
inu fyrir Evrópumótaröðina.
Hann kom í hús í gær á 71 höggi
eða eina höggi undir pari. Birgir
Leifur er samtals á fimm högg-
um undir pari og er jafn öðrum í
17.-23. sæti en 30 efstu kylfing-
arnir á mótinu öðlast þáttökurétt
á Evrópumótaröðinni.
„Þetta er búið að ganga fínt og
spilamennskan ágæt. Ég tel mig
samt eiga meira inni og vonandi
kemur það hjá mér á lokadegin-
um,“ sagði Birgir Leifur við
Fréttablaðið í gær. Þó að staða
Birgis sé góð er hún einnig við-
kvæm og ljóst að hann má ekki
við miklum áföllum á loka-
hringnum til þess að ná takmarki
sínu.
„Þetta er einn þéttur pakki. Ég
verð að passa mig því það er stutt
í báðar áttir. Það er mikil spenna
og hvert högg skiptir gríðarlegu
máli. Stöðugleikinn hefur verið
fínn hjá mér en ég hefði viljað
komast undir 70 höggin,“ sagði
Birgir Leifur en hann hefur
minnst leikið á 70 höggum og
mest á 73 höggum á þessum fimm
hringjum.
Hann byrjaði á því að para
fyrstu tvær brautirnar í gær en
síðan fékk hann skolla á þriðju og
sjöttu braut. Hann lét það ekki
koma sér úr jafnvægi heldur
fékk hann fugl á sjöunda, áttundu
og níundu braut og litlu mátti
muna að hann fengi einnig fugl á
þeirri tíundu.
„Ég var að spila vel en púttin
voru ekki alveg að detta. Ég reyndi
bara að hugsa jákvætt og hugsa
aðeins um eitt högg í einu. Mér
leið strax betur þegar fuglarnir
fóru að detta. Það hefur vantað að
púttinn detti ofan í hjá mér, ég hef
verið að pútta vel en það lekur oft
rétt framhjá,“ sagði Birgir.
Það er aðeins einn hringur eftir
hjá Birgi og hann mætir bjart-
sýnn til leiks. „Lokahringurinn
leggst vel í mig. Ég mun halda
áfram að hugsa jákvætt og reyna
að gera hlutina með einföldum
hætti. Ég hef engu að tapa en allt
að vinna. Það kemur samt ekk-
kert annað til greina en að kom-
ast áfram,“ sagði Birgir Leifur
en hvað gerir hann til þess að búa
sig undir hringinn mikilvæga?
„Ég hugsa mikið um öndun og
svo finnst mér gott að slaka á og
horfa á góða þætti eða mynd. Ég
er með tvær góðar hérna með De
Niro sem ég mun skoða fyrir
hringinn. De Niro er algjör
meistari og vonandi hefur hann
góð áhrif. Annars verður hann
ekki notaður aftur,“ sagði Birgir
léttur á því. henry@frettabladid.is
Býr sig undir lokahringinn með
því að horfa á mynd með De Niro
Birgir Leifur Hafþórsson er aðeins einum golfhring frá því að öðlast þátttökurétt á Evrópumótaröðinni
annað árið í röð. Birgir Leifur lék vel aftur í gær en hann hefur verið mjög stöðugur á lokaúrtökumótinu.
Hann ætlar að horfa á kvikmynd með Robert De Niro til þess að koma sér í gírinn fyrir lokahringinn.
EINBEITTUR Birgir Leifur sést hér einbeittur á svip í gær. Hann er í kjöraðstöðu til þess að tryggja sér þátttökurétt á Evrópumóta-
röðinni annað árið í röð. VÍKURFRÉTTIR/JÓN BJÖRN
Miele ryksugur
á einstöku tilboðsverði
Tilboð:
Kr. 15.990
Fáanlegir fylgihlutir t.d.:
AFSLÁTTUR
35%
KÖRFUBOLTI Njarðvíkingar lentu
ekki í miklum vandræðum gegn
fámennu liði Tindastóls og vann
þægilegan tuttugu stiga sigur, 98-
78.
Njarðvíkingar mættu til leiks
með nýjan Bandaríkjamann en
Damon Bailey var tiltölulega
nýlentur á landinu og var hent
strax í búning. Hann byrjaði þó
ekki leikinn.
Jafnræði var með liðunum
lengstum í fyrri hálfleik og það
var ekki fyrr en Njarðvíkingar
settu í gírinn og keyrðu upp hrað-
ann sem eitthvað fór að gerast.
Þeir skoruðu úr fjölda hraðaupp-
hlaupa og röðuðu þess utan niður
einum níu þriggja stiga skotum í
hálfleiknum.
Brenton var heitur í hálfleikn-
um með 15 stig og þrjár þriggja
stiga körfur en hann endaði með
sex slíkar.
Stólarnir réðu ekkert við hraða
Njarðvíkinga og misstu þá þrett-
án stigum fram úr sér í leikhléi,
54-41, eftir að munurinn hafði
aðeins verið tvö stig eftir fyrsta
leikhluta, 20-18.
Njarðvík byrjaði þriðja leik-
hluta af sama krafti og komu
muninum í 20 stig fyrir lok leik-
hlutans, 76-56 og ballið búið.
Teitur Örlygsson, þjálfari
Njarðvíkur, var eðlilega sáttur
með sína menn í leikslok. „Við
vorum alveg steinsofandi í upp-
hafi en eftir að við sprengjum
leikinn upp ráða þeir ekkert við
okkur og við hristum þá af okkur,“
sagði Teitur en hann var sáttur
við Brenton og ekki síst Hjört
Einarsson sem kom sterkur inn
og skoraði 18 stig.
„Æðislega gaman að fylgjast
með Hirti en hann er ekki nema
18 ára þessi strákur og sjálfs-
traustið er flott hjá honum. Hann
var ákveðinn báðum megin og ég
er virkilega sáttur við þennan
sigur.“ - hbg
Njarðvík lagði Tindastól, 98-78:
Brenton braut Stólana
STIG NJARÐVÍKUR:
Brenton Birmingham 28, Hjörtur
Einarsson 18, Hörður Axel Vil-
hjálmsson 15, Sverrir Þór Sverrisson
9, Jóhann Árni Ólafsson 8, Friðrik
Stefánsson 7, Damon Bailey 7,
Guðmundur Jónsson 3, Elías Kristj-
ánsson 3.
STIG TINDASTÓLS:
Donald Brown 22, Kristinn Friðriks-
son 16, Svavar Birgisson 11, Shamir
Shaptahovic 11, Marcin Konarzewski
10, Ísak Einarsson 5, Serge Poppe 3.
HART BARIST Stólarnir réðu ekkert við
hraða Njarðvíkinga sem unnu leikinn
með tuttugu stiga mun. Brenton Birm-
ingham skoraði flest stig í leiknum, 28
talsins. MYND/VÍKURFRÉTTIR