Fréttablaðið - 20.11.2007, Blaðsíða 34
26 20. nóvember 2007 ÞRIÐJUDAGUR
menning@frettabladid.is
ÁRMÚLA 11 | Sími 568-1500 | Lónsbakka | Sími 461-1070 | www.thor.is
Demants ...
... kjarnaborar: 42 - 400 mm
... slípibollar: 125 og 180 mm
... sagarblöð: 125 - 800 mm
Gæði og gott verð.
SMS
LEIKUR
V
in
n
in
g
ar
v
er
ða
a
fh
en
d
ir
h
já
B
T
Sm
ár
al
in
d.
K
óp
av
og
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
ta
ka
þ
át
t e
rt
u
ko
m
in
n
í
SM
S
kl
úb
b.
1
49
k
r/
sk
ey
ti
ð.
V
in
n
in
g
ar
v
er
ða
a
fh
en
d
ir
h
já
B
T
Sm
ár
aal
in
d
av
in
d.
K
óp
av
Sendu SMS skeytið BTC ATE á
númerið 1900 og þú gætir unnið!
Vinningar: Harry Potter, Pirates, Desperate Houswifes,
Friends, Jungle Book, Hara, Bloodgroup, Mugison, I-pod,
Ferða DVD, Heimabíó, Árskort í Smárabíó, 42"Plasmatæki.
9
HVERVINNUR!
Bókin Bóksalinn í Kabúl eftir
norska blaðamanninn Asne Seier-
stad dró upp afar gagnrýna mynd
af afgönsku samfélagi.
Svo óheppilega vill þó til að
Shah Muhammad Rais, sjálfur
bóksalinn sem bókin fjallar um, er
afar ósáttur við myndina sem
sagan dregur upp af afgönsku
samfélagi og honum sjálfum.
Hann hefur ítrekað ásakað Seier-
stad um að afbaka sannleikann, en
lítið mark hefur verið tekið á
honum fram til þessa. Nú hefur
Rais tekið málin í sínar hendur og
sjálfur skrifað bók þar sem hann
segir sína hlið sögunnar. Bókin
hefur ekki enn fengist útgefin, en
í henni gagnrýnir Rais skrif Seier-
stad harðlega.
Metsölubókin Bóksalinn í Kabúl
er byggð á reynslu Seierstad, en
hún bjó um tíma hjá Rais, konun-
um hans tveimur og börnunum
þeirra í Kabúl. Í bókinni fjallar
Seierstad um hvernig Rais stýrði
heimili sínu með harðri hendi og
kúgaði eiginkonur sínar tvær til
hlýðni við sig.
Rais hefur áratugum saman
starfað við að selja bækur í Kabúl,
oft í óþökk talibananna sem gættu
þess vandlega að hann seldi ekki
bækur sem gætu talist and-
íslamskar. Rais segir þó að með-
ferð talibananna hafi verið smá-
munir miðað við þá niðurlægingu
sem hann upplifði eftir útkomu
bókar Seierstad.
Í Bóksalanum frá Kabúl er því
meðal annars haldið fram að Rais
hafi reynt að fela þá staðreynd að
„heiðursmorð“ hafi átt sér stað
innan fjölskyldu sinnar. Þegar
bókin kom út var yfirhylmingunni
slegið upp í afgönskum dag blöðum
og Rais fordæmdur. Rais viður-
kennir að morðið hafi átt sér stað
en hann vildi ekki ljóstra því upp
af ótta við hefnd frá öðrum fjöl-
skyldumeðlimum. Rais segir að
fjölskyldu hans standi nú svo mikil
ógn af hefndaraðgerðum að báðar
konur hans og börn hafi leitað
hælis í öðrum löndum og því sé
hann nú einn eftir í Kabúl.
Allt frá því að Bóksalinn í Kabúl
kom fyrst út hefur Rais ótal
sinnum farið til Noregs til þess að
fá Seierstad til þess að draga skrif
sín til baka. Hann hefur einnig
reynt að kæra hana fyrir æru-
morð. Rais segist aldrei ætla að
gefast upp við að reyna að hreinsa
nafn sitt og annarra Afgana. „Hún
hefur sagt heiminum að Afganar
séu villimenn, en hún var bara í
Kabúl í nokkrar vikur og gat því
ekki sett sig inn í menningu okkar
eða skilið hana á nokkurn hátt,“
segir Rais.
Seierstad hefur tekið skrifum
Rais af stillingu. Hún segist standa
við sannleiksgildi bókar sinnar og
segir að Rais sé frjálst að segja
sína hlið á málinu sé hann ósáttur
við skrif hennar. - vþ
Hefnd bóksalans í Kabúl
Bryddað verður upp á
spennandi nýjung í tón-
leikahaldi í Hafnarhúsinu
næstkomandi föstudags-
kvöld þegar fyrstu tónleik-
ar í röðinni Kökukonsertar
fara fram. Á tónleikunum
verður kökugerðarlist og
tónlist blandað saman á
eftirminnilegan hátt.
Skipuleggjendur tónleikanna eru
söngkonurnar Hallveig Rúnars-
dóttir og Margrét Sigurðardóttir
og hafa þær fengið til liðs við sig
súkkulaðigerðarmeistarann Haf-
liða Ragnarsson til þess að skapa
óvenjulega listaupplifun. „Til-
gangurinn með þessum tónleikum
er að reyna að brjóta upp þetta
hefðbundna tónleikaform,“ segir
Margrét.
„Okkur langar til þess að fara
nýja leið í tónleikahaldi og bjóða
áhorfendum upp á aðra reynslu en
að þeir sitji í sínu rými og að við
tónlistarmennirnir fremjum okkar
list í okkar rými. Slík upplifun er
oft afar formleg og stíf. Mikið af
sígildri tónlist var upphaflega
flutt á litlum stofutónleikum þar
sem mikil nánd ríkti og áhorfend-
ur gátu gætt sér á veitingum á
meðan þeir hlýddu á tónlistina.
Þessi stemning var heimilisleg og
afar ólík þeirri sem ríkir í tón-
leikasölum í dag. Með köku-
konsertunum langar okkur til þess
að endurvekja þessa tónlistar-
upplifun.“
Á þessum fyrstu tónleikum
verður boðið upp á nýja og nýlega
íslenska tónlist í bland við góðgæti
frá Hafliða. Þær Margrét og Hall-
veig koma að sjálfsögðu fram
ásamt hörpuleikaranum Katie
Buckley, sellóleikaranum Sigur-
geiri Agnarssyni, slagverks-
leikaranum Frank Aarnink og
raftónlistar manninum Guðmundi
Vigni Karlssyni, sem þekktur er
undir listamannsnafninu Kippi
Kanínus. Flutt verður frumsamin
tónlist eftir þau Frank, Guðmund
og Margréti en einnig verður sótt í
smiðju Snorra Sigfúsar Birgissonar
og Sigursveins Magnús sonar. Stefnt
er að því að halda tvenna tónleika á
ári í röðinni og verður nýtt þema á
tónleikunum hverju sinni.
„Þrátt fyrir að súkkulaðigerð
flokkist yfirleitt ekki til listgreina
verður að segjast að Hafliði er
sannkallaður listamaður á sínu
sviði og því verður afar spennandi
að sjá hvað hann býður upp á á
föstudag. Að njóta góðs matar er
lífsnautn og það sama má segja
um áhlustun góðrar tónlistar. Við
ætlum að sameina þetta tvennt og
því ætti útkoman ekki að svíkja
nokkurn mann,“ segir Margrét að
lokum.
Tónleikarnir hefjast klukkan 20
og er miðaverð 1.800 kr.
vigdis@frettabladid.is
Konfekt fyrir munn og eyru
MARGRÉT SIGURÐARDÓTTIR OG HAFLIÐI RAGNARSSON Listamenn hvort á sínu sviði.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
ASNE SEIER-
STAD Norskur
rithöfundur
sem sló í gegn
með Bóksalan-
um frá Kabúl.
YRSA SIGURÐARDÓTTIR Metsöluhöfundurinn Yrsa
les úr glænýrri spennusögu sinni annað kvöld.
Bókaforlagið Bjartur stendur fyrir upplestrar-
kvöldi á kaffihúsinu Súfistanum í Bókabúð
Máls og menningar á Laugavegi 18 annað
kvöld kl. 20.30. Þetta verður krassandi kvöld-
stund þar sem lesið verður úr nýútkomnum
glæpasögum.
Ingunn Ásdísardóttir les upp úr þýðingu sinni
á bókinni Drápin eftir Andreu Mariu Schenkel.
Bókin byggist á sönnum atburðum sem áttu
sér stað í Þýskalandi um miðja síðustu öld. Á
bóndabænum Tannöd fundust lík allra heim-
ilismanna og af verksummerkjum að dæma
höfðu þau öll verið myrt. Meðal hinna látnu
voru hjónin á bænum, en þau höfðu orð á
sér fyrir að vera gráðug, illskeytt og skapstygg.
Margir í sveitinni áttu í útistöðum við hjónin og
því var nokkur fjöldi fólks sem lá undir grun.
Málið er þó enn óupplýst þrátt fyrir að reynt
hafi verið að upplýsa það allt fram til þessa
dags.
Lesið verður upp úr Horfinn eftir Robert
Goddard, í þýðingu Ugga Jónssonar. Bókin segir
frá Lance Bradley sem lifir viðburðasnauðu lífi
þar til systir gamals vinar hans biður hann um
hjálp. Vinurinn, Rupert Alder, er horfinn en
allt útlit er fyrir að hann hafi verið potturinn
og pannan í svikamyllu sem hefur haft fé af
fyrirtæki nokkru.
Yrsa Sigurðardóttir les upp úr bók sinni Aska,
sem kemur út á fimmtudaginn, en vonir standa
til að nokkur eintök verði komin í Bókabúð
Máls og menningar á miðvikudagskvöldið.
Sumarið 2007 koma í ljós líkamsleifar við
uppgröft húss sem fór undir ösku í eldgosinu í
Eyjum árið 1973. Á sama tíma finnst kona myrt
í Reykjavík. Þóra Guðmundsdóttir lögmaður,
sem lesendur þekkja úr fyrri bókum Yrsu, glímir
við að finna tengsl á milli þessara voðaverka.
- vþ
Æsispennandi kvöld með krimmum
Kl. 17
Reykjavíkurakademían stendur fyrir
umræðufundi í húsnæði sínu að
Hringbraut 121 í dag kl. 17. Umræðu-
efni fundarins eru grunngildi
samfélagsins. Mælendur á fundinum
eru Miriam Rose sem hefur tekið
þátt í mótmælum Saving Iceland,
Stefán Eiríksson, lögreglustjóri
höfuðborgarsvæðisins, Guðfríður
Lilja Grétarsdóttir og Viðar Þor-
steinsson heimspekingur.