Fréttablaðið - 20.11.2007, Blaðsíða 29

Fréttablaðið - 20.11.2007, Blaðsíða 29
ÞRIÐJUDAGUR 20. nóvember 2007 21 KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf] OMX ÍSLAND 15 Fjöldi viðskipta: 749 6.956 -3,65% Velta: 9.317 milljónir HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Atorka 10,28 +0,00% ... Bakkavör 57,40 -1,38% ... Eimskipafélagið 36,90 -3,28% ... Exista 27,60 -5,80% ... FL Group 21,60 -3,14% ... Glitnir 24,90 -3,11% ... Icelandair 24,80 +1,23% ... Kaupþing 916,00 -4,38% ... Landsbankinn 38,00 -2,56% ... Straumur-Burðarás 16,05 -5,31% ... Össur 97,90 -1,90% ... Teymi 6,35 -1,40% MESTA HÆKKUN ATLANTIC PET. +14,66% FØROYA BANKI +3,13% ICELANDAIR +1,23% MESTA LÆKKUN EXISTA -5,80% STRAUMUR -5,31% KAUPÞING -4,38% Umsjón: nánar á visir.is Felld voru niður fyrstu viðskipti með hlutabréf Føroya Banka í Kauphöllinni í gærmorgun. Heimild er til að fella niður viðskipti þar sem augljós mistök hafa verið gerð í framsetningu kaup- eða sölutilboðs. Niðurfelldu viðskiptin voru á genginu 220 danskar krónur á hlut en þá um morguninn gengu bréf bankans kaupum og sölum nálægt 190 dönskum krónum á hlut. Fram kemur í tilkynningu Kauphallar- innar í gær að niðurfellingin hafi verið gerð á grundvelli greinar 5.7.3 í aðildarreglum NOREX. - óká Mistök leiðrétt í Kauphöllinni John Thain, forstjóri bandarísk- evrópsku kauphallarsamstæð- unnar NYSE Euronext var fyrir helgi ráðinn sem forstjóri bandaríska fjárfestinga- bankans Merrill Lynch. Ráðn- ingin vakti heilmikla athygli enda í fyrsta sinn í 93 ár sem einstakl- ingur sem ekki starfar með beinum hætti í fjármálageiranum er ráðinn í svo mikilvæga stöðu. Thain tekur við af Stan O‘Neal, fyrrverandi forstjóra Merrill Lynch, sem tók poka sinn eftir að bankinn skilaði tapi í fyrsta sinn í sex ár vegna geysihárra afskrifta í tengslum við fasteignalán í Bandaríkjunum. - jab JOHN THAIN Nýr forstjóri Merrill Lynch Goran superform á 4 vikum Grand Spa | Sigtúni 38 | 105 Reykjavík | Sími 578 8200 | grandspa@grandspa.is Námskeiðin byrja 26. nóvember ! VILT ÞÚ: Efla orku þína og komast í form? Léttast og bæta meltinguna? Styrkja ónæmiskerfi og heilbrigði? Koma jafnvægi á hormónana? Auka andlega vellíðan? Bæta minni og einbeitingu? Þú getur æft hvar sem er. Það eina sem þú þarfnast eru fáeinir fermetrar. Það er ástæðulaust að slá slöku við. Líkami þinn er á sama máli. Þú þarft ekki á neinum tækjum að halda. Aðeins eigin líkamsþyngd. Fimm tímar í viku – brennsla – styrking – liðleiki. Takmarkaður fjöldi. Einkaráðgjöf og uppbygging hjá Goran. Persónuleg næringarráðgjöf. Ráðgjöf við matarinnkaup. Fræðsla og eftirfylgni – 2 fyrirlestrar. Frábær spennandi lífrænn matur. Næringardrykkur í lok hvers tíma. Slökun og herðanudd í pottum að æfingu lokinni, kl. 7:30, 10:00, 16:30 og 18:30. Kinesis - nýtt æfingakerfi sem eykur styrk, jafnvægi og liðleika. Skráðu þig strax í síma 578 8200 Grand Spa | Sigtúni 38 | 105 Reykjavík | Sími 578 8200 | grandspa@grandspa.is GORAN SUPERFORM er raunhæft heilsunámskeið sem tryggir þér fullkominn árangur frá byrjun. Tilgangur þess er að þú takir hröðum líkamlegum og huglægum framförum og stígir örugg en einföld skref til betri skilnings á eigin heilsu. Þú kynnist nýjum möguleikum í matarvali, mat sem örvar fitubrennslu. Hvernig þú átt að glíma við matar- og sykurþörfina. Hvernig þú ferð að því að brenna meira og léttast. Norska tryggingafélagið Store- brand hefur fengi leyfi frá norska fjármálaráðuneytinu til að taka yfir SPP, sem er sænskt líftrygg- ingafélag í eigu Handelsbanken. Kaupþing er stærsti hluthafinn í Storebrand. Kaupþing og Exista fara saman með tæp þrjátíu prósent í félaginu. Stjórnendur Exista hafa gefið út að þeir muni taka þátt í hlutafjáraukningu Storebrand til þess að fjármagna þessi kaup. Gefa á út 200 milljónir hluta á genginu 45 norskar krónur. Það jafngildir um hundrað milljörð- um íslenskra króna. Í Vegvísi Landsbankans kemur fram að svo lágt gengi hafi ekki verið á Storebrand síðan 2004. „Afslátturinn kemur nokkuð á óvart en ætti að tryggja að fjármögnun á yfirtökunni gangi eftir þrátt fyrir erfiðar markaðs- aðstæður,“ segir í Vegvísinum. - bg Storebrand fær leyfi ráðuneytis „Kaup á hlutabréfum eru í eðli sínu langtímafjárfesting og ég ráðlegg fólki að hugsa sig vel um áður en það selur bréf sín nú,“ segir Pétur Aðalsteinsson, sérfræðingur hjá VBS Fjárfestinga- banka, en gengi bréfa í fjármálafyrir- tækjum tók snarpa dýfu undir lok við- skiptadags í Kauphöll Íslands í gær. Úrvalsvísitalan féll um 3,65 prósent, stóð við lok viðskiptadags í 6.956 stig- um og hefur ekki verið lægri síðan undir lok janúar. Gengi bréfa í Exista féll um 5,8 pró- sent. Fast á hæla þess fylgdi Straumur, sem féll um rúm fimm prósent en gengi bréfa í félaginu hefur ekki verið lægra síðan seint í ágúst á síðasta ári. Á eftir þeim fylgdi nýliðinn SPRON, Kaupþing, Glitnir, FL Group og Eimskipafélagið, sem fór niður um rúm þrjú prósent. Atlantic Petroleum hækkaði hins vegar um tæp fimmtán prósent á sama tíma í kjölfar tæplega þrjátíu prósenta falls í síðustu viku. Pétur segir alþjóð- lega hlutabréfa- markaði nú stjórn- ast af fréttum af fjármála fyrir- tækjum, sem flestar hverjar hafi verið neikvæðar en slíkt valdi sveiflum á verði hlutabréfa nú. Hann bendir á að kennitölur fyrirtækja í Kauphöllinni sýni engu að síður að grunnur þeirra sé traustur. „Til lengri tíma litið eru verð hlutabréfa hag- stæð,“ segir Pétur. „Ég held að það sé engin ástæða fyrir menn að örvænta.“ - jab Engin ástæða til að örvænta LÆKKUN Á GENGI FJÁRMÁLAFYRIRTÆKJA* Fyrirtæki Gengisbreyting Eik banki -7,59% Exista 15,98% Glitnir -10,43% FL Group -14,29% Föroya banki -9,38% Landsbankinn -13,44% Kaupþing -17,55% Straumur-Burðarás -18,94% * Síðustu fjórar vikurWILLIAM FALL, FOR- STJÓRI STRAUMS

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.