Fréttablaðið - 20.11.2007, Blaðsíða 6
6 20. nóvember 2007 ÞRIÐJUDAGUR
LÖGREGLUMÁL Rúmlega 1000 hegn-
ingarlagabrot voru skráð í mála-
skrárkerfi lögreglunnar í október.
Ölvunarakstursbrot voru 153 sem
jafngildir því að fimm einstakl-
ingar voru teknir að meðaltali á
dag fyrir slík brot um allt land.
Umferðarlagabrot voru 5.289
talsins sem er fjölgun frá sama
mánuði síðastliðin fjögur ár. Fíkni-
efnabrot voru skráð 157 sem er
nánast sami fjöldi brota og í októ-
ber árið 2004.
Kynferðisbrot hafa mikið verið
í umræðunni að undanförnu. Til-
kynnt var um 234 slík brot á tíma-
bilinu og voru flest þeirra skráð í
janúar.
Hraðakstursbrot voru 3.383 í
október þetta árið sem er tæp
þriðjungsfjölgun frá því í október
í fyrra. Þjófnaðarbrot, eignaspjöll,
innbrot og fíkniefnabrot voru
færri en í fyrra en fleiri en í októ-
ber árið 2005.
Áfengislagabrot, líkamsmeið-
ingar og árásir voru fleiri í októ-
ber í ár en síðastliðin tvö ár. - jss
Afbrotatölfræði embættis ríkislögreglustjóra í október 2007:
Fimm stútar teknir á dag
Vettvangur kynferðisbrota janúar til október 2007
■ Akbraut/bifreiðastæði 15,0 %
■ Fyrirtæki 6,0 %
■ Heimili/einkalóð 50,4 %
■ Samkomustaður 6,0 %
■ Stofnanir 4,3 %
■ Utandyra 3,4 %
■ Annað eða ekki skráð 15,0
HEIMILD: RÍKISLÖGREGLUSTJÓRI
AFBROTATÖLUR Umferðarlagabrotum
hefur fjölgað samkvæmt bráðabirgða-
tölum frá ríkislögreglustjóra.
Girnileg nýjung með 2 í pakka.
Fæst í næstu verslun.
Meistara-
flokkssúpur
Masterklass
Nýjung
F
O
R
V
AR
N A R DAGURI N
N
TAKTU ÞÁTT!
HVERT ÁR SKIPTIR MÁLIKynntu þér málið á www.forvarnardagur.is
Hefur þú hugmynd um hvað virkar best?
Rannsóknir sýna að ein besta forvörnin gegn fíkniefnum er
að börn og foreldrar
verji tíma saman
Miðvikudagurinn 21. nóvember er forvarnardagur í öllum grunnskólum landsins. Ofangreind fullyrðing er byggð á
áralöngum rannsóknum fræðimanna við Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík á hegðun ungmenna og hvað skilar
árangri í forvörnum. Forvarnardagurinn er samstarfsverkefni eftirfarandi aðila:
Verkefnið er styrkt af
Bara að vera saman skiptir máli þótt
við séum ekki að gera neitt sérstakt,
það þarf ekki að vera neitt skipulagt.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
0
7
–
0
3
4
0
HEILBRIGÐISMÁL Sjúklingum á gjör-
gæsludeild hefur fjölgað um
fimmtán prósent frá árinu 2003.
Spár sýna að á næstu árum muni
gjörgæslusjúklingum fjölga enn
frekar. Ekki er þó von á nýju hús-
næði fyrr en í fyrsta lagi eftir átta
ár. Það segir Alma Dagbjört
Möller, yfirlæknir deildarinnar, of
langan tíma. Finna verði bráða-
brigðaúrræði hið fyrsta. Ítrekað
hafi þurft að fresta aðgerðum, svo
sem hjartaaðgerðum, vegna þess
að ekkert rými sé fyrir sjúkling-
ana.
Alma hefur sjálf teiknað upp
hugmyndir að einfaldri viðbygg-
ingu við spítalann sem gjörgæslu-
deildin gæti notað til að geyma
tæki, vinnuaðstöðu fyrir starfs-
fólk og aðstöðu fyrir ættingja
sjúklinga. Hún segir málið þó
komið mjög skammt á veg þrátt
fyrir að hún hafi sett fram hug-
myndirnar í mars 2006. Engir
peningar séu eyrnamerktir fyrir
úrbótum.
Sjálf hefur Alma látið eftir
skrifstofu sína til þess að aðstand-
endur geti fengið rými til að hvíl-
ast en hún segir gjörgæsludeildir
sérstakar að því leyti hve ætt-
ingjar sjúklinga dvelji þar mikið.
„Það sem hefur bjargað málun-
um á þessari deild er hve margt
gott starfsfólk er hér. Ég er samt
ekki viss um að þetta fólk treysti
sér til að una mikið lengur við
núverandi aðbúnað án þess að fá
svör um bráðbrigðaúrræði,“ segir
Alma.
Þá bendir hún á að á deildinni
starfi um hundrað manns. Það
fólk hafi nær enga aðstöðu aðra
en lítið herbergi sem geti rúmað
um tíu manns. Það afdrep eigi
samt að nýtast sem hvíldar-
aðstaða, fundarsalur og matsalur
alls fólksins.
Verði engar úrbætur gerðar
áður en nýr spítali rís segir Alma
það geta skapað áhættu fyrir
sjúklinga.
Guðlaugur Þór Þórðarson heil-
brigðisráðherra segist vita af
húsnæðisvanda heilbrigðisstofn-
ana og ljóst sé að ekki sé hægt að
bíða með allar framkvæmdir þar
til nýr spítali rísi. „Þetta er ein af
ástæðunum fyrir því að ég setti
saman nýja nefnd sem hefur það
hlutverk að skoða aðstöðu heil-
brigðisstofnana í heild sinni. Það
eru mörg mál sem þarf að finna
lausn á fyrr en seinna og ný
sjúkrahússbygging mun ekki
leysa allan vanda,“ segir Guð-
laugur.
karen@frettabladid.is
Sjúklingum fjölgar í
óviðunandi húsnæði
Sjúklingum á gjörgæsludeild hefur fjölgað mikið á síðustu árum. Ekki er von á
nýju húsnæði fyrr en eftir átta ár. Yfirlæknir deildarinnar segir ekki hægt að
bíða. Núverandi ástand sé hættulegt og finna verði lausn til bráðabirgða.
SKRIFSTOFA YFIRLÆKNIS Alma hefur látið aðstand-
endum deildarinnar eftir skrifstofu sína. Á gjörgæslu-
deildum hafa sjúklingar oft langa viðdvöl og ættingjar
vilja vera mikið í námunda við þann sjúka. Því sé
nauðsynlegt að aðstaðan sé góð.
AFDREP Á HUNDRAÐ
MANNA VINNUSTAÐ
Í þessu herbergi
eiga hinir níutíu til
hundrað starfsmenn
deildarinnar að
matast, halda fundi
og hvílast.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
MEÐ NÝJAR HUGMYNDIR Alma lét teikna upp afar
einfalda byggingu sem gæti komið ofan á röntgen-
deildina. Myndin sem hún heldur á sýnir byggingu
setta saman úr gámum. Hún tekur þó fram að þetta
sé ekki sú hugmynd sem húsafriðunarnefnd hafi til
umfjöllunar heldur hafi hún látið gera gámamyndina
til að varpa skýru ljósi á nauðsyn þess að eitthvað
verði gert.
SAMGÖNGUR Mikilvægara er að
gera strætó að raunverulegum
valkosti við einkabílinn en að allir
borgarbúar fái að ferðast ókeypis,
að mati Svandísar Svavarsdóttur,
staðgengils borgarstjóra og
stjórnar manns í Strætó.
„Það þarf að fjölga stórkostlega
mikið forgangsakreinum og auka
tíðni ferða. Þannig verður fólk
fljótara á milli í strætó. Ég held að
þetta sé aðalatriðið,“ segir hún.
Þegar ökumenn sjái strætó bruna
framhjá fari þeir að líta á hann
sem eftirsóknarverðan valkost.
Frí fargjöld komi því í þriðja
sæti, á eftir breytingum á gatna-
kerfi og aukinni tíðni ferða.
„En tilraunin um að framhalds-
og háskólanemar fái ókeypis í
strætó hefur gefist vel og mér
finnst koma mjög vel til greina að
bæta grunnskólabörnum inn í
hana,“ segir Svandís.
Hún vill að farþegarnir sjálfir
komi að ákvarðanatöku og hafi
tækifæri til að koma að hugmynd-
um um bætta þjónustu. Því muni
Svandís leggja til á stjórnarfundi
Strætós að stofnað verði félag
farþega. Formaður þess félags
fái síðan sæti í stjórn Strætós.
- kóþ
Svandís Svavarsdóttir segir vel koma til greina að grunnskólabörn ferðist ókeypis:
Fargjöld eru ekki númer eitt
SVANDÍS
SVAVARSDÓTTIR
Staðgengill
borgarstjóra
gengur oftast í
vinnuna enda
býr hún nálægt
skrifstofunni. Hún
tekur strætó af og
til, síðast fyrir um
tíu dögum.
Hefurðu áhyggjur af loftslags-
breytingum?
Já 61,2%
Nei 38,8%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Fylgdist þú með umfjöllun um
brúðkaup Jóns Ásgeirs og Ingi-
bjargar Pálmadóttur?
Segðu þína skoðun á visir.is
MENNTAMÁL Iðnskólinn í Reykja-
vík, Fjölbrautaskólinn í Breið-
holti, Flensborgarskólinn í
Hafnarfirði, Fjölbrautaskólinn
við Ármúla og Menntaskólinn í
Kópavogi eru þeir skólar sem
menntamálaráðuneytið hefur haft
til skoðunar vegna skila á
upplýsingum um fjölda nema sem
ljúka skólaári með prófi. Þetta
kom fram í tilkynningu frá
ráðuneytinu.
Skólameistarar skólanna fimm
hafa sent inn athugasemdir vegna
málsins. Málið er nú til athugunar
hjá ráðuneytinu, sem mun ekki
tjá sig frekar um það að svo
stöddu. - þeb
Staðfesting frá ráðuneyti:
Fimm skólar
til skoðunar
KJÖRKASSINN