Fréttablaðið - 20.11.2007, Side 48

Fréttablaðið - 20.11.2007, Side 48
GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 BAKÞANKAR Karenar D. Kjartansdóttur Í dag er þriðjudagurinn 20. nóvember, 324. dagur ársins. 10.11 13.13 16.15 10.13 12.58 15.42 Ó svei, allir eru að okra, enginn vill vinna, allir eru að kaupa, jólin byrjuðu í október. Þegar meirihluti samræðna á kaffi- stofum byggist upp á fyrrnefndum fullyrðingum veit ég að blessuð jólahátíðin er á næsta leiti. Margir segja að fyrsti boðberi jólanna sé jólasveinarnir í glugg- anum hjá Rammagerðinni. Mér finnst jólin hins vegar ekki byrja fyrr en ég les reiðipistil um hve geigvænleg efnishyggja og neysla íslensku þjóðarinnar sé orðin. Slíka pistla skrifar gáfað og gott fólk sem mér finnst lík- legt að vilji segja öðrum rómant- ískar ýkjusögur af þeirri gleði sem gagntók það þegar það fékk epli í desember eða þegar það opnaði fyrsta molann af makkin- tosinu í bernsku. YFIRLEITT hríslast um mig gæsahúð af hrifningu þegar ég les slíka vandlætingarpistla þó ég velti því oft fyrir mér hvar í veröldinni þetta fólk hafi alist upp. Ekki voru epli neitt tiltöku- mál í minni bernsku, þaðan af síður viðbjóðslegir makkintos- molarnir sem eldra fólk otaði að mér á hátíðum og gerði mér ljóst að það væri dónaskapur og van- þakklæti að afþakka slíkan nýlenduvarning. ÉG er afskaplega sátt við hlut- skipti mitt í lífinu. Hef aldrei keypt mér hlut sem mér þótti of dýr. Í martröðum mínum sé ég ekki fyrir mér kaupmenn að velta sér upp úr seðlahrúgu og greiðslu- kvittunum frá sveltandi vinnu- þjörkum með sultardropa, sem neyddust til að eyða síðustu krónunum sínum í bandarísk leikföng. Dægurþras gáfaðs og nýtins fólks um verð og okur fær mig stundum til að halda að meg- inþorri Íslendinga eigi nánast engan pening. Þeim fáu krónum sem þeir haldi eftir af launum sínum sé ætíð stolið af gráðugum kaupmönnum í líki hins illa Skröggs sem lesa má um í jóla- ævintýri Dickens. ÞÁ finnst mér væl fólks yfir því hvað það eigi ægilega lítinn pen- ing vegna þess að það hafi þurft að kaupa sér svo ægilega dýra hluti svipa til kvartana drykkju- manns sem kvartar yfir þynnku. Í báðum tilfellum er til einföld lausn á vandamálinu. Temjið ykkur að versla til jólanna undir áhrifum áfengis; þá getið þið kennt brennivíninu um að þið eydduð allt of miklum peningum. Lausnin fundin

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.