Fréttablaðið - 11.12.2007, Side 4
4 11. desember 2007 ÞRIÐJUDAGUR
GENGIÐ 10.12.2007
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
119,1925
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
61,41 61,71
125,40 126,00
90,09 90,59
12,075 12,145
11,267 11,333
9,553 9,609
0,5496 0,5528
97,15 97,73
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
Jólaóskir
VINNUMARKAÐUR Alþýðusamband
Íslands, ASÍ, hefur kynnt sameigin-
legar kröfur aðildarfélaganna fyrir
forystumönnum Samtaka atvinnu-
lífsins, SA.
Þetta er í fyrsta skipti sem lands-
samböndin fimm og stærstu aðild-
arfélög gera formlegt samkomulag
um sameigin legar áherslur gagn-
vart atvinnurekendum og ríkis-
stjórn. Kröfugerð gagnvart ríkis-
stjórninni verður kynnt síðar í
vikunni.
Meginmarkmið ASÍ í komandi
kjaraviðræðum er að verja kaup-
mátt og styrkja stöðu hinna lægst
launuðu. ASÍ krefst þess meðal
annars að allar uppsagnir verði
rökstuddar, liðkað verði fyrir
greiðslu launa í erlendri mynt,
afnema launaleynd og að fyrirtækj-
um verði óheimilt að banna starfs-
manni að fara til starfa hjá sam-
keppnisaðila nema í
undantekningartilfellum. Þá er
áhersla á að finna leiðir til að upp-
ræta launamun kynjanna.
Í greinargerð ASÍ segir að breyta
þurfi orðalagi kjarasamninga um
útreikning á yfirvinnukaupi. Hæsti-
réttur hafi dæmt að lögmætt geti
verið að greiða ekki yfirvinnu af
umsömdu kaupi fyrir dagvinnu ef
heildarkjör eru umfram lágmarks-
taxta og yfirvinnu reiknaða á hann.
Þessi túlkun er andstæð sjónarmið-
um ASÍ og því er krafist orðalags-
breytingar.
Farið hefur vaxandi að starfs-
mönnum sé gert skylt að tilkynna
veikindi í tvígang, til næsta yfir-
manns og heilbrigðisverktaka sem
atvinnurekendur semja sérstak-
lega við. Verkalýðshreyfingin vill
að rammi verði settur utan um
þessa þróun.
„Hér er um íþyngjandi frávik að
ræða,“ segir í greinargerðinni,
„sem kalla á meiri skýrleika kjara-
samninga og tilvísun til persónu-
verndar.“
Ingibjörg R. Guðmundsdóttir
varaforseti segir að setjast verði
sameiginlega yfir þessa þróun.
„Þetta er meðal annars spurning
um réttindi starfsmannsins til að
segja ekki frá veikindum af ein-
hverjum ástæðum. Það getur líka
verið að starfsmaðurinn vilji frekar
fara til síns læknis,“ segir hún.
Í kröfugerðinni er einnig tekið á
málefnum erlendra starfsmanna,til
dæmis er samkomulag um nauðsyn
þess að taka upp sérstök vinnu-
staðaskilríki til að auðvelda eftirlit
á vinnumarkaði, sérstaklega á
byggingamarkaði.
Ingibjörg telur ólíklegt að samn-
ingar takist fyrir áramót.
ghs@frettabladid.is
Auðveldara verði að fá
launin í erlendri mynt
Landssambönd ASÍ hafa kynnt sameiginlega kröfugerð fyrir SA. Þetta er í
fyrsta sinn sem þau gera með sér formlegt samkomulag um kröfugerð. Áhersla
er á að uppræta launamun kynjanna. Samkomulag er um vinnustaðaskilríki.
RAMMI VERÐI SETTUR Farið hefur vaxandi
að starfsmönnum sé gert skylt að tilkynna
veikindi bæði til yfirmanns og heilbrigðis-
verktaka. Verkalýðshreyfingin vill að rammi
verði settur utan um þessa þróun. „Hér er
um íþyngjandi frávik að ræða,“ segir í kröfu-
gerð ASÍ til SA.
SPURNING UM RÉTTINDI „Þetta er meðal
annars spurning um réttindi starfsmannsins
til að segja ekki frá veikindum,“ segir Ingi-
björg R. Guðmundsdóttir, varaforseti ASÍ.
UTANRÍKISMÁL Samráðsvettvangur
fulltrúa stjórnmálaflokka um
varnar mál hefur enn ekki litið
dagsins ljós. Stofnun hans var
boðuð í yfirlýsingu fyrri ríkis-
stjórnar við brotthvarf varnarliðs-
ins, 26. septem ber í fyrra, og aftur
í stjórnar sáttmála nýrrar ríkis-
stjórnar.
„Ríkisstjórnin er einfaldlega að
svíkja loforð um samráð stjórn-
málaflokkanna í landinu um þessar
aðstæður sem komu upp við brott-
hvarf hersins,“ segir Steingrímur
J. Sigfússon, formaður Vinstri
grænna. Í ræðu í Háskóla Íslands í
september síðastliðnum, sagði Geir
H. Haarde forsætisráðherra það
hugmynd ríkisstjórnarinnar að
sameina samráðsvettvanginn og
störf óstofnaðs rannsóknarseturs
um utanríkis- og öryggismál. Sam-
kvæmt upplýsingum frá ráðu-
neytinu eru þessi áform óbreytt.
Steingrímur segir að samráðsvett-
vangurinn hefði átt að stjórna
vinnu tengdri öryggismálum sem í
gangi sé í dag. Í staðinn taki ríkis-
stjórnin einhliða ákvarðanir, geri
samninga og skuldbindi landið sem
kosti mikil fjárútlát, án samráðs
við stjórnarandstöðuna. Til lítils sé
að stofna samráðsvettvang þegar
allar ákvarðanir hafi verið teknar,
eins og nú stefni í.
„Þetta afhjúpar þennan málatil-
búnað eins og hann leggur sig, það
er erfitt að komast að annarri niður-
stöðu en að þetta hafi aldrei verið
annað en orðin tóm,“ segir Stein-
grímur. - bj
Ekkert bólar á samráðsvettvangi sem ríkisstjórnin boðaði segir formaður VG:
Loforðin aðeins orðin tóm
VARNARMÁL
Ríkisstjórnin
hefði átt að
reyna að ná
þverpólitískri sátt
um varnarmál
segir Steingrímur
J. Sigfússon,
formaður Vinstri
grænna.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
AUSTURRÍKI, AP Hin austurríska
Natascha Kampusch, sem á
síðasta ári slapp úr höndum
mannræningja eftir átta ára
einangrun, byrjar
brátt með eigin
sjónvarpsþátt á
nýrri einkarek-
inni sjónvarps-
stöð í Austurríki.
Kampusch, sem
nú er nítján ára,
ætlar að taka á
móti gestum og
ræða ýmis
málefni en segist
þó ætla að forðast hefðbundnar
viðtalsspurningar.
Nú í vikunni opnaði Kampusch
einnig sína eigin heimasíðu á
netinu. - gb
Fórnarlamb mannræningja:
Fær sinn eigin
sjónvarpsþátt
NATASCHA
KAMPUSCH
FRÆÐI Sjómælingasvið Landhelg-
isgæslunnar hefur gefið út nýtt
sjókort af Austfjörðum. Kortið
leysir af hólmi gamla kortið sem
var gefið út af „det kongelige
Søkort-Arkiv“ í Kaupmannahöfn
árið 1944. Dýptarmælingarnar
sem sú útgáfa kortsins byggist að
stærstum hluta á voru gerðar árið
1898, eða fyrir 109 árum.
Útkoma hins nýja sjókorts er
mikilsverður viðburður bæði
fyrir sjómælingasvið Landhelgis-
gæslunnar og ekki síður sjófar-
endur við Ísland sem fá nú í
hendur kort sem byggist á
nýjustu upplýsingum um svæðið.
Nýja kortið er byggt á dýptar-
mælingum sem gerðar voru á
mælingabátnum Baldri á árunum
2003 og 2004. - shá
Nýtt sjókort gefið út:
Leysir af 109
ára mælingar
DETTIFOSS Nýtt sjókort er mikið öryggis-
tæki. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
LÖGREGLUMÁL Fulllestuð olíubif-
reið valt í Arnkötludal á Vest-
fjörðum um klukkan ellefu á
laugardagskvöld. Ökumaðurinn
er grunaður um ölvun við akstur.
Slysið varð á vinnusvæði þar
sem verið er að leggja veg um
dalinn. Ekki er talið að olía hafi
lekið frá bifreiðinni. Hún var
fjarlægð eftir að starfsmenn
Olíudreifingar höfðu losað úr
henni farminn. Ökumaðurinn var
fluttur á sjúkrahús til skoðunar.
Lögregla rannsakar málið. - sþs
Engin olía lak úr bílnum:
Ölvaður velti
olíuflutningabíl
DÓMSMÁL DC++ málið svokallaða
verður tekið fyrir í Héraðsdómi
Reykjavíkur í dag. Tíu karlmenn
á aldrinum 22 til 36 ára eru
ákærðir í málinu, sem snýst um
ólöglega dreifingu á höfundar-
réttarvörðu efni í gegnum
skráaskiptaforritið DC++.
Samkvæmt gögnum sem
Fréttablaðið hefur undir höndum
er ákært fyrir ólögmæta afritun
og birtingu á um yfir 135 þúsund
höfundarréttarvörðum verkum.
Íslensk og erlend tónlist er
stærstur hluti þeirra verka, eða
um 118 þúsund lög talsins. Tölvur
mannanna voru gerðar upptækar
í september 2004. - sþs
Tíu karlmenn ákærðir:
DC++ málið
tekið fyrir í dag
HEILBRIGÐISMÁL Einkavæðing er
ekki á dagskrá hjá ríkisstjórninni,
sögðu stjórnar-
þingmenn á
Alþingi í gær.
Fjárskortur
Heilsugæslunnar
í Reykjavík var
til umræðu.
Siv Friðleifs-
dóttir, fyrrver-
andi heilbrigðis-
ráðherra, sagði
þá að stjórnin
vildi svelta
þjónustuna svo fara mætti út í
einkarekstur.
Þessu höfnuðu stjórnarliðar
með öllu og röktu á móti dæmi
þess að Siv sjálf hefði í sinni
ráðherratíð staðið að einkarekstri
í heilbrigðisþjónustu. Heilbrigðis-
ráðherra tók fram að ekki ætti
að skera niður um 550 milljónir í
rekstri heilsugæslunnar. - kóþ
Umræður um heilbrigðismál:
Einkavæðing
ekki á dagskrá
GUÐLAUGUR ÞÓR
ÞÓRÐARSON