Fréttablaðið - 11.12.2007, Blaðsíða 8
11. desember 2007 ÞRIÐJUDAGUR
SMÁRALIND SÍMI 545 1550 GLÆSIBÆ SÍMI 545 1500 KRINGLUNNI SÍMI 545 1580
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/U
T
I
39
98
6
11
/0
7
húfur og vettlingar
1.590
Verð frá
fyrir fríska krakka
F plús hjá VÍS er samheiti yfir tryggingar fyrir fjölskyldur
og heimili. Þarfir fólks, fjölskyldu- og heimilishagir eru
mismunandi og þess vegna er mikilvægt að hafa
tryggingu sem tekur mið af því. Kynntu þér F plús og
veldu þá tryggingu sem hentar þér og þínum best.
VÍS – ÞAR SEM TRYGGINGAR SNÚAST UM FÓLK
Vátryggingafélag Íslands Ármúla 3 108 Reykjavík Sími 560 5000 www.vis.is
TRYGGING SEM
VEX MEÐ ÞÉR
V
IN
S
Æ
L
A
S
T
A
F
J
Ö
L
S
K
Y
L
D
U
T
R
Y
G
G
IN
G
IN
VÍÐTÆK
ASTA FJ
ÖLSKYL
DUTRYG
GINGIN
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Ó
D
Ý
R
O
G
H
A
G
K
V
Æ
M
Ó
D
Ý
R
M
E
Ð
F
E
R
Ð
A
T
R
Y
G
G
IN
G
U
M
STJÓRNMÁL Össur Skarphéðinsson
iðnaðarráðherra segir „ekkert
gefið“ að eignarnámsheimild verði
beitt vegna mögulegra virkjana
Landsvirkjunar í neðri hluta Þjórs-
ár. „Það er ekkert gefið um neitt í
þessu máli. Stjórnarskráin setur
töluverðar takmarkarnir á heim-
ild til þess að beita eignarnáms-
heimild raforkulaganna, þar á
meðal almannahagsmuni. Lögin
leggja á herðar mér sjálfstæða
rannsóknarskyldu til þess að
ganga úr skugga um að skilyrðum
um þessi mál verði fullnægt. Þess
vegna get ég ekkert sagt um það, á
þessum tímapunkti, hver niður-
staðan mögulega yrði.“
Samkvæmt raforkulögum fellur
virkjanaleyfi orkufyrirtækja
niður eftir níutíu daga hafi ekki
náðst samkomulag við landeigend-
ur og eigendur orkulinda um gjald
eða ákvörðun um eignarnám.
Árni M. Mathiesen fjármálaráð-
herra og þáverandi iðnaðar- og
landbúnaðarráðherra, Jón Sig-
urðsson og Guðni Ágústsson, undir-
rituðu samkomulag í maí við
Landsvirkjun fyrir hönd ríkisins
en markmið þess var að tryggja að
„Landsvirkjun hafi fullnægjandi
heimildir til að halda áfram undir-
búningi að virkjunum í neðri hluta
Þjórsár“, eins og orðrétt segir í
samkomulaginu.
Deilt var um samkomulagið á
Alþingi í gær í ljósi nýlegrar
greinagerðar Ríkisendurskoðunar
um málið. Samkvæmt henni var
samkomulagið ekki bindandi að
hálfu ríkisins og ekki væri hægt
afsala vatnsréttindum ríkisins án
samþykkis Alþingis. Athugun
Ríkis endurskoðunar takmarkaðist
við könnun á því hvort full-
nægjandi lagaheimildir liggi að
baki ráðstöfun á vatnsréttindum
ríkisins í neðri hluta Þjórsár auk
tiltekinna landsréttinda til virkjana-
afnota á þessu svæði og eignar-
réttindum á jörðinni Þjótanda.
Þingmenn vinstri grænna, Álf-
heiður Ingadóttir og Atli Gíslason,
gagnrýndu samkomulagið harð-
lega og sögðu greinargerð Ríkis-
endurskoðunar staðfesta að því
hefði verið ætlað að styrkja Lands-
virkjun í samningaviðræðum við
landeigendur við Þjórsá.
Árni M. Mathiesen fjármálaráð-
herra vísaði gagnrýninni á bug og
sagði hana á misskilningi byggða
þar sem ekkert framsal á vatns-
réttindum hefði farið fram. Sagð-
ist hann vera sammála niðurstöðu
Ríkisendurskoðunar. „Málið er
ekki komið á það stig að það sé
tímabært að leggja það fyrir
Alþingi. Eitt af skilyrðunum fyrir
því þetta verði lagt fyrir Alþingi
er að það fáist virkjanaréttindi. Þá
eru raforkulögin farin að gilda og
þau heimila aðkomu iðnaðarráð-
herrans að málinu. En aðalatriðið
er ef það er verið að afsala virkj-
anaréttindum varanlega þá þarf
að bera það undir Alþingi. Það
hefur alltaf verið ljóst frá mínum
bæjardyrum séð.“
Árni segir samkomulagið hafa
verið mikilvægt þótt ljóst sé að í
því felist ekki afsal ríkisins á vatns-
réttindum. „Samkomulagið fólst í
því, að ef Landsvirkjun fengi virkj-
anaréttinn þá gengi ríkið til samn-
inga um vatnsréttindin. Þetta er
mikilvægt samkomulag og aðkoma
Alþingis að málinu liggur alveg
skýr fyrir.“ magnush@frettabladid.is
Ekki víst að eignar-
námi verði beitt
Iðnaðarráðherra segir ekki ljóst hvort eignarnámsheimild verði beitt til að
greiða fyrir virkjunum í neðri hluta Þjórsár. Deilt var um málið á Alþingi í gær.
VIRKJANIR Í ÞJÓRSÁ Fyrirhugaðar virkjanir Landsvirkjunar í neðri hluta Þjórsár eru umdeildar. Samkvæmt yfirlýsingum fyrirtækis-
ins verður orkan úr fyrirhuguðum virkjunum notuð til uppbyggingar annars iðnaðar en svonefndar stóriðju.
ÁRNI M.
MATHIESEN
ÖSSUR
SKARPHÉÐINSSON