Fréttablaðið - 11.12.2007, Page 18
18 11. desember 2007 ÞRIÐJUDAGUR
HEIMILD: HAGSTOFA ÍSLANDS
Nóbelsverðlaunin í ár voru að venju afhent bæði í Stokkhólmi
og Ósló í gær við hátíðlega athöfn. Friðarverðlaunin voru afhent
í Ósló og þau hlutu Al Gore, fyrrverandi varaforseti Bandaríkj-
anna, og milliríkjanefnd Sameinuðu þjóðanna um loftslags-
breytingar. Í Stokkhólmi voru afhent verðlaun í bókmennt-
um, efnafræði, eðlisfræði, læknisfræði og hagfræði.
Hvers vegna Nóbelsverðlaun?
Alfred Nobel var sænskur verkfræðingur, vopnasali
og uppfinningamaður, fæddur árið 1833 og hafði
meðal annars unnið sér það til frægðar að finna
upp dýnamítið, öflugt sprengiefni sem hefur
verið notað jafnt í góðum sem slæmum tilgangi.
Þegar hann komst á efri ár vildi hann ekki að
sín yrði minnst eingöngu sem vopnafram-
leiðanda og uppfinnanda sprengiefnis og
ákvað því að stofna sjóð sem notaður yrði
til að veita afreksmönnum á ýmsum sviðum
verðlaun.
Hve há eru verðlaunin?
Alfreð Nóbel lést 10. desember árið 1896 og eru verðlaunin
því afhent þann dag ár hvert. Þegar hann lést voru eignir hans
metnar á um 31 þúsund sænskar krónur en í sjóðnum eru
nú um 1.500 milljónir sænskra króna, eða tæplega 15
milljarðar íslenskra króna. Verðlaunaupphæðin nemur
um 10 milljónum sænskra króna.
Hverjir úthluta verðlaununum?
Upphaflega voru verðlaunin fimm talsins. Samkvæmt
erfðaskrá Nóbels kemur það í hlut Sænsku vísinda-
akademíunnar að úthluta verðlaunum fyrir afrek á
sviði eðlisfræði og efnafræði, Karolinska sjúkrahúsið
í Stokkhólmi úthlutar verðlaunum í læknisfræði,
sænska Akademían verðlaunum í bókmenntum en
friðarverðlaunum úthlutar fimm manna nefnd sem
norska þjóðþingið velur. Síðar var ákveðið að bæta við
verðlaunum í hagfræði, sem afhent skyldu í minningu
Alfreds Nóbels. Sænski seðlabankinn úthlutar þeim.
FBL-GREINING: ALFRED NÓBEL
Vildi bæta fyrir uppfinningu dýnamítsins
11,2
2002 2003 2004 2005 2006
Svona erum við
fréttir og fróðleikur
Fimmtán ára börnum fer
aftur í lestri og stærðfræði,
samkvæmt námskönnun
PISA sem nýlega var
kynnt, og telur mennta-
málaráðherra niðurstöðuna
vonbrigði. Nýbúabörnin á
Íslandi koma mun verr út
en íslensku börnin en þó
svipað og nýbúabörn í öðr-
um löndum. Hvort sem um
innfædd eða innflutt börn
er að ræða er ljóst að auka
þarf áherslu á lesskilning.
Íslenskum unglingum fer aftur í
lestri og stærðfræði og vísbend-
ingar eru um minnkandi færni í
náttúrufræði ef marka má nýj-
ustu PISA-könnunina. Samkvæmt
henni eru íslensku börnin undir
meðaltali OECD-ríkjanna. Finnar
koma best út, eru langhæstir, og
hinar Norðurlandaþjóðirnar
koma líka betur út en Íslendingar
að undanskildum Norðmönnum.
Íslensku unglingunum hefur
farið aftur milli kannana og þeim
þjóðum hefur fjölgað sem standa
sig betur en Íslendingar, sérstak-
lega í lestri. Júlíus K. Björnsson,
forstöðumaður Námsmatsstofn-
unar, sagði á blaðamannafundin-
um þegar PISA-könnunin var
kynnt, að Íslendingar þyrftu að
hafa áhyggjur af þessari þróun.
Hann sagði einnig að kröftug
tengsl væru milli frammistöðu í
samræmdu prófunum og PISA.
Júlíus benti meðal annars á að
viðhorf íslenskra nemenda til
náttúrufræði og vísinda væru
frekar jákvæð en ekki eins
jákvæð og á hinum Norðurlönd-
unum. Nemendur hér hefðu þó
meiri trú á eigin getu í náttúru-
fræði en nemendur í Danmörku
og Svíþjóð og hefðu því betri
sjálfsmynd á því sviði en Svíar
og Danir. Íslensku nemendurnir
hefðu þó mun minni áhyggjur af
umhverfismálum en nemendur í
OECD að meðaltali og af norræn-
um nemendum væru þeir íslensku
minnst meðvitaðir um umhverfis-
mál.
Kynjamunur minnkar
Frammistaða eftir landshlutum
hér innanlands hefur breyst
miðað við fyrri PISA-kannanir.
Nemendur á Vestfjörðum, Norð-
urlandi vestra og Norðurlandi
eystra sýna betri frammistöðu en
nemendur í Reykjavík og
nágrenni og á Austurlandi. Sér-
staklega er þetta áberandi í
lestri.
Þá hefur kynjamunurinn
minnkað í öllum greinum, mestur
er hann þó á Austurlandi.
Ungum nýbúum gengur ekki
nógu vel í könnuninni. Af þeim
tæplega áttatíu 15 ára unglingum
sem voru skráðir á Íslandi árið
2006, samkvæmt tölum Hagstof-
unnar, tóku rúmlega fimmtíu
prófið.
Frammistaða þeirra er mark-
tækt slakari í öllum greinum en
annarra nemenda. Munurinn á
unglingum af innlendum og
erlendum uppruna er svipaður og
hjá öðrum þjóðum en þó er það
ekki samanburðarhæft þar sem
nýbúahópurinn hér er svo lítill.
Einar Skúlason, framkvæmda-
stjóri Alþjóðahúss, segir að niður-
staðan varðandi nýbúana komi
ekki á óvart. „Við þurfum að átta
okkur á því að það tekur tíma
fyrir hvern og einn að tileinka
sér nýtt tungumál. Þetta snýst
ekki bara um íslenskukennsluna
sjálfa, þau þurfa stuðning í fleiri
greinum. Það tekur langan tíma
að ná skilningi og slíkum orða-
forða að unglingurinn geti til-
einkað sér námsefni,“ segir
hann.
Munur á viðhorfum
Undir þetta tekur Nína Magnús-
dóttir, deildarstjóri í nýbúadeild
Austurbæjarskóla. Hún segir að
íslenskan sé lykillinn. Hulda
Karen Daníelsdóttir, kennsluráð-
gjafi í nýbúafræðslu, segir að
minnst tvö ár taki að ná valdi á
talmáli, enn lengri tíma taki að ná
skólamáli.
Hafsteinn Karlsson, skólastjóri
í Salaskóla, hefur kynnt sér
finnskt skólakerfi. Hann segir að
Íslendingar hafi miklu meiri
breidd í skólakerfinu en Finn-
arnir. Ekki sé vitað hvort nem-
endur í sérdeildum séu með í
finnska úrtakinu, finnskir kenn-
arar viti það ekki einu sinni
sjálfir.
Munur sé á viðhorfum íslenskra
og finnskra kennara. Íslenskir
kennarar vilji koma til móts við
öll börn en finnskir kennarar telji
það ekkert aðalatriði. Þá séu
Finnar með hefðbundnari kennslu-
aðferðir. Nemendur þar séu ekki
eins virkir og hér á landi.
Börn hafa jákvæða sjálfs-
mynd í náttúrufræði
HAFSTEINN
KARLSSON
Skólastjóri
Salaskóla.
JÚLÍUS K. BJÖRNS-
SON Forstöðu-
maður Námsmats-
stofnunar.
BÖRN Í SKÓLA Fimmtán ára unglingum hefur farið aftur í lestri. Þetta kemur fram
í námskönnun sem nýlega var kynnt. Niðurstöðurnar leiða væntanlega til þess að
spyrnt verði við fótum þannig að kannski munu þessi börn, sem hér taka við skóla-
máltíðinni sinni, standa sig betur í lesskilningi ef þau eiga einhvern tíma eftir að taka
PISA-próf. Myndin er úr safni og tengist efni fréttarinnar ekki beint.
FÆÐINGARLAND 15 ÁRA
NÝBÚABARNA 2006
Pólland 14
Danmörk 10
Bandaríkin 5
Lettland 5
Filippseyjar 5
Litháen 4
Taíland 5
Víetnam 3
Önnur lönd 27
Samtals 78
Til að geta tekið þátt í PISA-könnun-
inni þurfti nýbúabarn að hafa búið
minnst eitt ár í viðkomandi landi.
Heimild: Hagstofa Íslands
FRÉTTASKÝRING
GUÐRÚN HELGA SIGURÐARD.
ghs@frettabladid.is
12,4 12,3
14,5
18,9
Staðan í kjaraviðræðum
verkalýðshreyfingarinnar
við Samtök atvinnu-
lífsins, SA, hefur mikið
verið til umræðu upp á
síðkastið. Alþýðusam-
band Íslands kynnti
í gær sameiginlegar
kröfur gagnvart SA. Vonir
stóðu til að hægt yrði að
ljúka samningum fyrir
áramót en nú ríkir meiri
óvissa um það.
Hvernig metur þú stöð-
una í samningaviðræð-
unum?
Ég met hana sæmilega. Ég er samt
ekkert allt of bjartsýnn.
Hvers vegna ekki?
Einfaldlega vegna þess að ég tel
að tónninn hafi verið þannig í
atvinnurekendum síð-
ustu daga.
Hvernig er sá tónn?
Tónninn byggist á því
að þeir tala um að það
verði lítið til skiptanna ef
þannig má að orði kom-
ast. En ég fagna því að
það á að taka hraustlega
á lægstu laununum.
Hvað er auðveldast að
ná samkomulagi um?
Það liggur fyrir að það
er nokkuð ríkjandi þjóð-
arsátt um að lagfæra
lægstu launin en það er
hvellskýr krafa að lágmarkslaunin
verði 165 þúsund í samningslok
árið 2009. Það er nokkuð breið
samstaða um að frá þeirri kröfu
verði ekki hvikað.
SPURT & SVARAÐ
KJARAVIÐRÆÐURNAR
Hvellskýr krafa um 165 þúsund
VILHJÁLMUR BIRGISSON
Formaður Verkalýðsfé-
lags Akraness
STYRKURINN Í FJÖLBREYTNI
Ráðstefna á vegum félagsmálaráðuneytisins,
haldin í Þjóðminjasafninu fi mmtudaginn 13. desember 2007
14.00–14.10
Ávarp Jóhönnu Sigurðardóttur félagsmálaráðherra.
14.10–14.55
Kynningar á verkefnum Árs jafnra tækifæra.
Jafnréttisstofa kynnir verkefnin sín.
Rannsóknin Innflytjendur: viðurkenning og virðing í íslensku
samhengi kynnt.
Ljósmyndasamkeppni í tilefni Evrópuársins kynnt.
Kynning á rannsókn á vegum Styrktarfélags vangefinna.
Samtökin ‘78 kynna upplýsingabækling um réttarstöðu
samkynhneigðra. hérlendis á ýmsum tungumálum.
14.55–15.25
Sýning á stuttmyndinni Bræðrabyltu.
15.25–15.45
Hlé.
15.45–16.40
Kynningar á verkefnum Árs jafnra tækifæra.
Ísland Panorama kynnir verkefnið Inn við beinið erum við öll eins.
Kynning á útgáfu trúardagatals.
Mannréttindaskrifstofa Íslands fjallar um verkefnin sem hafa verið
á könnu hennar og Háskólans í Reykjavík.
Femínistafélagið kynnir ráðstefnuna Kynlaus og litblind, samræða
við margbreytileikann.
Barnaheill kynnir verkefnið Gegn mismunun á öllum skólastigum.
Kvennaathvarfið kynnir verkefni.
16.40–17.00
Hjólastólasveitin fl ytur leikatriði.
17.00
Léttar veitingar.
Fundarstjóri er Paola Cardenas, verkefnastjóri málefna innfl ytjenda hjá
Rauða krossi Íslands.
Evrópuár jafnra tækifæra
13. desember 2007 Kl. 14.00-18.00
Félagsmálaráðuneyti
> Kreditkortavelta í desember
(í milljörðum króna)