Fréttablaðið - 11.12.2007, Side 42
34 11. desember 2007 ÞRIÐJUDAGUR
Í kvöld kl. 20 sýnir Kvikmynda-
safn Íslands myndina Kóngur í
New York (A King in New York)
eftir Charlie Chaplin. Þetta er
fyrsta mynd Chaplins eftir að
hann fór í útlegð frá Bandaríkjun-
um og sú síðasta þar sem hann
leikur sjálfur aðalhlutverkið.
Shahdov konungur kemur til
New York sem allslaus maður
eftir að uppreisn brýst út í ríki
hans. Hann kynnist fljótlega
tveimur persónum, Ann Kay, sem
er falleg ung kona sem dregur
hann á tálar og platar hann til að
koma fram í sjónvarpsauglýsing-
um hjá sér, og Rupert sem er
afburða snjall drengur en foreldr-
ar hans hafa verið dregnir fyrir
óamerísku nefndina og fangelsuð,
grunuð um að vera kommúnistar.
Sem afleiðing af kunningsskap
þeirra er Shahdov sjálfur grunað-
ur um kommúnisma og verður að
koma fyrir eina af yfirheyrslu-
nefndum McCarthys en Chaplin
flúði Bandaríkin ásamt fjölskyldu
sinni vegna áhuga nefndarinnar á
að kalla hann fyrir vegna samúðar
hans með málstað vinstrisinna.
Myndin var frumsýnd á Íslandi
í Bæjarbíói skömmu eftir að hún
hafði verið frumsýnd erlendis.
Það var að frumkvæði Helga Jóns-
sonar bíóstjóra en hann sagði svo
frá að hann hefði gert sér betur
grein fyrir því en bíóstjórarnir í
Reykjavík hversu mikill viðburð-
ur það var að ný mynd eftir Charl-
es Chaplin skyldi vera komin fram
á sjónarsviðið. Hann skaut þeim
því ref fyrir rass og tryggði sér
sýningarrétt af myndinni.
Leikarar: Charlie Chaplin, Max-
ine Audley, Jerry Desmonde, Oli-
ver Johnston. Sonur Chaplins,
Michael, hefur hlutverk í mynd-
inni sem Rupert. Myndin er með
íslenskum texta og verður sýnd
öðru sinni í Bæjarbíói næstkom-
andi laugardag kl. 16. - pbb
Kóngur í New York
KVIKMYNDIR Chaplin í sínu kunnasta
hlutverki sem flækingurinn, en í síðustu
kvikmyndum sínum yfirgaf hann gervi
flækingsins og er Kóngur í New York ein
þeirra.
Kristín Marja Baldursdóttir
sendir frá sér heilmikinn doðrant
sem vafalítið á eftir að njóta vin-
sælda undir sænginni með
smákökuboxið á náttborðinu, auk
nokkurra klúta. Óreiða á striga er
sjálfstætt framhald bókarinnar
um hana Karítas án titils. Í fyrri
bókinni er sagt frá því að Karítas
kemst í myndlistarnám kornung
til útlanda, en eins og oft vill verða
eru það barneignir og skilnings-
laus eiginmaður, sem reyndar var
aldrei heima, sem gerði draum
hennar um að forframast og helga
sig alfarið myndlistinni fremur að
martröð.
Lífshlaup af því tagi þekkjum
við gegnum sögur af mörgum for-
mæðrum en hér er þróunin önnur.
Karítas lætur ekkert aftra sér þótt
biðin eftir því að komast til Parísar-
borgar hafi verið löng. Hún var
komin fram á miðjan aldur, dreng-
irnir uppkomnir og maðurinn ein-
hvers staðar úti í heimi að græða
peninga á því að kaupa og selja
skip. Sjálf réði hún sig til teikni-
kennslu í þorpi við hafið langt frá
öllu því fólki sem hún áður hafði
þekkt. Þar hugðist hún mála og
leggja drög að utandvöl sinni. Við
kynnumst henni aftur í þessari
bók þar sem hún lifir á Eyrar-
bakka og á þar nokkrar vinkonur.
Fyrsti hluti bókarinnar er hálf
langdreginn, það hefði mátt taka
fyrstu 60 síðurnar og kuta þær
niður í 20. Það hefði gert áhlaup
atburðarásarinnar miklu skemmti-
legra. Kristín Marja kann að segja
sögu og það er greinilegt að þeir
sem kynnast þessum persónum
geta endalaust velt því fyrir sér
hvað kom í raun og veru fyrir og
hvernig hefði þetta getað orðið ef
og svo framvegis.
Á köflum er trúverðugleikinn
einhvern veginn víðs fjarri. En
um leið er rómantíkin og vonin og
óskin um að svona listakonulífi
hafi einhver getað lifað til staðar,
þannig að fátt fær mann til þess að
loka bókinni, nema bara það að
hún er helst til of löng. 565 síðna
skáldsaga er í lengra lagi, einkum
ef hugsað er til þess að þéttari og
knappari hefði hún verið betri.
Kristín Marja kann vel tökin á því
að ríghalda í sína lesendur og það
kæmi nú ekki á óvart þótt einhver
sé farinn að láta sig dreyma um að
gera kvikmynd um lífshlaup Kar-
ítasar sem nær því að verða aldar-
gömul þá er hún hverfur út úr
þessu lífi á æskuslóðunum á Ísa-
firði.
Um hvað fjallar þessi bók? Hún
fjallar kannski um spurninguna
um það, hvað það er sem hindrar,
og aftrar okkur í því að láta
drauma okkar rætast. Eins fjallar
hún á mjög mildum nótum um ein-
beitinguna, láta ekki hrærigraut
svokallaðara kvennaskyldustarfa
trufla einbeitinguna. Karítas fær
nú svo sem sinn skammt af for-
mæðraoki, það er nú ekki það, en
henni tekst að halda sínu striki
engu síður og alltaf með aðstoð
góðra kvenna, hvort heldur er í
New York eða París.
Bestu kaflar bókarinnar gerast
á Laugaveginum í sambýli nokk-
urra kvenna, eftir að Karítas er
búin að lifa bæði í New York og
Parísarborg. Þessar lýsingar eru
Kristínu Mörju einhvern veginn
svo eðlilegar og má segja að þegar
hin léttgeggjaða systir Karítasar,
Bjarghildur, hlussast niður stig-
ann eftir að vera búin að ganga
berserksgang á efri hæðinni sé
það svolítið líkt ýmsum mynd-
skeiðum úr Mávahlátri.
Samband
þessara
tveggja systra
er flókið:
Bjarghildur er
með minni-
máttarkennd
gagnvart hinni
grönnu og
glæsilegu lista-
konu en jafn-
framt getur
hún nuddað
henni upp úr
því að hafa
brugðist börn-
um sínum.
Bjarghildur
elur upp dóttur
Karítasar og
svo dótturdóttur hennar líka en á
heimilinu var einnig drykkfelldur
sonur hennar sem gerði allt það
sem má ekki gera við ungar stúlk-
ur. Örlög þessarar litlu dótturdótt-
ur Karítas ar fléttast inn í líf henn-
ar og annarra kvenna í húsi hennar
við Laugaveg og endar það hörmu-
lega. Sonardóttir Karítasar stend-
ur henni næst og hjá henni dvelur
hún síðustu ár ævinnar, langrar
ævi.
Bókin er eins konar aldarspegill
íslenskra kvenna. Þó svo að aðal-
persónan sé listmálari á alheims-
mælikvarða þá þarf hún engu síður
að taka þátt í því formæðraoki sem
einkenndi og kannski einkennir
enn smákökubakandi konur þessa
lands. Það er svo mikið af smá-
atriðum sem flækjast fyrir aðal-
atriðunum eins og fram kemur
glögglega í andstæðunum sem þær
systur eru. Samband þessara
tveggja systra við fyrrverandi
mágkonuna, hina þýsku Hermu, og
ferðalag þeirra þriggja til Rómar
er í senn sirkus og martröð.
Þær eru eins og þrír pólar sem
allir eru til í hverri einustu fjöl-
skyldu.
Ástarsagan sem liðast í gegnum
bókina er í raun og veru bæði sorg-
leg og falleg. Karítas elskaði Sig-
mar og Sigmar elskaði Karítas:
þau kunnu bara ekki að vera saman
með þann metnað sem var drif-
fjöður lífs þeirra. Hann vildi verða
meiri og betri en faðir hans, verða
karlmaður fyrir sinn hatt og segir
henni það þegar hann kemur undir
lokin til hennar, annaðhvort með-
vitað eða ómeðvitað, til þess að
deyja. Þau hittast með nokkurra
ára millibili hingað og þangað í
Evrópu, þau eru bæði heimsborg-
arar en samt svo ógurlega íslensk.
Þetta er í raun og veru eins og
ættar- eða fjölskyldusaga allra
Íslendinga á öldinni sem leið. Hún
er skrifuð með konur í aðalhlut-
verki í þeim aukahlutverkum sem
þær voru í meðan karlmenn bókar-
innar töluðu annað mál og leituðu
að hamingjunni með öðrum for-
merkjum. Ætli þessar áherslur séu
svo voðalega breyttar? Í stað þess
að kaupa og selja skip eins og Sig-
mar eyddi ævinni í er það annað
brask sem drífur karlpeninginn
áfram til þess að sanna sjálfan sig
og sýnast hver fyrir öðrum.
Óreiða á striga er heillandi
skáldsaga um sorg og gleði í
hundrað ára lífi alþýðustúlku og
þótt hún sé sorgleg, er hún á köfl-
um mjög fyndin. Elísabet Brekkan
Fyndin og sorgleg saga konu
BÓKMENNTIR Kristín
Marja Baldursdóttir
fer víða í áframhaldi
sögu sinnar um Kar-
ítas sem nú er komin
út og heitir Óreiða á
striga.
BÓKMENNTIR
Óreiða á striga
Kristín Marja Baldursdóttir
★★★
Heillandi og fyndin saga - en helst
til löng.
Frönku listamennirnir Nathalie
Talec, NoName*NoFame og
Oléna ásamt íslensku hljóm-
sveitunum Stereo Hypnosis,
Product 8 og Gjöll koma fram á
listrænu kvöldi á Organ á
fimmtudaginn.
Talec er einn þekktasti vídeó-
gjörningalistamaður Parísar og
er þekkt fyrir uppákomur sínar
sem tengja manninn við ótroðn-
ar norðlægar slóðir.
NoName*NoFame er þekktur
plötusnúður í París og heldur
ávallt uppi mikilli stemningu
hvar sem hann spilar. Oléna er
vídeó-hljóðlistamaður sem flutti
til Íslands fyrir þremur árum og
hefur unnið að list sinni síðan.
Húsið opnar klukkan 20.30 og
byrjar fjörið klukkutíma síðar.
Aðgangseyrir er 500 krónur.
Íslenskt og
franskt kvöld
STEREO HYPNOSIS Stereo Hypnosis
kemur fram á listrænu kvöldi á Organ.
Á sunnudaginn kemur verður
Aðventa Gunnars Gunnarssonar
lesin í heild sinni á skrifstofu
skáldsins á Skriðuklaustri. Árið 2005
var tekinn upp sá siður að lesa
söguna í heild sinni og er það fastur
hópur sem sækir þessa kyrrðar-
stund fjarri ys og þys jóla-
undirbúningsins.
Vala Þórsdóttir leikkona, dóttir
fyrrverandi bústjóra á Skriðu-
klaustri, las söguna árið 2005. Í
fyrra var það Birgitta Birgisdóttir,
leikkona og barnabarnabarn
skáldsins, sem las Aðventu. Og að
þessu sinni er það ekki ómerkari
maður en rithöfundurinn
Þórarinn Eldjárn sem les.
Lesturinn fer fram við kertaljós og
arineld á skrifstofu skáldsins á
Skriðuklaustri og hefst lesturinn
kl. 13.30 og tekur um það bil þrjár
klukkustundir með hléum.
Kaffi og jólasmákökur eru í
boði Klausturkaffis og aðgangur
ókeypis.
Aðventa á Skriðuklaustri
ÞÓRARINN ELDJÁRN
7. og 8. des uppselt
30. des
SENDU SMS JA ACF
Á NÚMERIÐ 1900 OG
ÞÚ GÆTIR UNNIÐ!
Vinningar eru bíómiðar fyrir tvo, DVD
myndir, varningur tengdur myndinni
og margt fleira!
SMS
LEIKUR
Vinningar verða afhendir hjá BT Smáralind. Kópavogi.
Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 99 kr/skeytið.
JÓLAMYNDIN Í ÁR!
STÓRSKEMMTILEG GAMANMYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA!
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI.
F R U M S Ý N D 1 4 . D E S E M B E R