Fréttablaðið - 11.12.2007, Blaðsíða 48
40 11. desember 2007 ÞRIÐJUDAGUR
sport@frettabladid.is
Hólmfríður Magnúsdóttir, leikmaður KR, heldur utan í dag
til Þýskalands þar sem hún mun dvelja við æfingar hjá
Hamburger SV í tvo daga.
„Ég hlakka mjög mikið til að fara
út til Þýskalands og æfa hjá þessu
sterka liði. Ég fer á æfingu strax um
leið og ég kem út og síðan verða tvær
æfingar á miðvikudaginn. Það verður mjög spennandi
og skemmtilegt að fá að kynnast aðstæðum í Þýskalandi
frá fyrstu hendi þar sem ég er búin að heyra margt, bæði
gott og slæmt, um þýsku deildina,“ sagði Hólmfríður, sem
heldur svo til LDB Malmö í Svíþjóð um næstu helgi þar sem
hún dvelur við æfingar í nokkra daga.
„Ég var að tala við Ásthildi Helgadóttur, sem lék með LDB
Malmö, um að ég hefði áhuga á að finna mér lið erlendis og
hún talaði í framhaldi af því við þjálfara liðsins og hann vildi
alveg ólmur fá mig út til æfinga. LDB Malmö er náttúrlega mjög
sterkt lið og sænska deildin er yfirhöfuð mjög sterk, þannig að
það er ljóst að ég verð að sýna allar mínar bestu hliðar þarna
úti og ég hlakka til að fá tækifæri til þess,“ sagði Hólmfríður, sem
átti frábært tímabil með KR síðastliðið sumar og skoraði meðal
annars nítján mörk í sextán leikjum. Hólmfríður var svo valin besti
leikmaður Landsbankadeildar á lokahófi Knattspyrnusambands
Íslands í haust og það hefur án nokkurs vafa opnað henni
nokkrar dyr.
„Ég ætla mér að komast út í atvinnumennsku.
Ég var í þrjá mánuði hjá danska liðinu Fortuna
Hjörring í fyrra og mér finnst bara vera kominn
tími til að láta reyna á þetta aftur og taka þar
með næsta skrefið í boltanum eftir að hafa verið að spila
nokkuð lengi á Íslandi. Hvernig sem fer, þá verð ég alveg
örugglega reynslunni ríkari með því að fara út til reynslu hjá
öflugum liðum og það er ekkert nema jákvætt um það að
segja. Ef mér líst ekki nógu vel á aðstæður hjá Hamburger SV
og LDB Malmö, eða þá að ég kemst ekki að hjá þessum
liðum, þá bíða mín fleiri tækifæri í Svíþjóð sem ég veit
af og væri tilbúin að skoða ef til þess kæmi.“
HÓLMFRÍÐUR MAGNÚSDÓTTIR, KR: FER TIL REYNSLU HJÁ STERKUM LIÐUM Í ÞÝSKALANDI OG SVÍÞJÓÐ
Ég ætla mér að komast út í atvinnumennsku
HANDBOLTI Hasarinn í kringum
toppleik Fram og Stjörnunnar í
N1-deild kvenna er hvergi nærri
búinn. Fram vann leikinn með einu
marki, 21-20, og í kjölfar leiksins
hafa fallið þung orð. Stjarnan
hefur ekki sagt sitt síðasta orð í
málinu og hefur nú kært umgjörð
leiksins til HSÍ. Stjörnumenn vilja
að leikurinn verði spilaður upp á
nýtt.
„Við erum að kæra framkvæmd-
ina frá upphafi til enda. Má þar
nefna dæmi eins og að það hafi
ekki verið eftirlitsmaður á leikn-
um og við bendum á í rökstuðningi
að hefði hann verið til staðar hefðu
mörg atvik farið á annan veg en
raun bar vitni.
Svo talar formaður dómara-
nefndar um að þetta dómarapar
hafi staðið sig svo vel að þeir hafi
verið verðlaunaðir með því að fá
þennan leik. Ég kæri mig einfald-
lega ekkert um að liðið mitt sé ein-
hver verðlaun til þessara manna,“
sagði Bragi Bragason, formaður
meistaraflokksráðs kvenna hjá
Stjörnunni.
„Að setja þessa dómara á leik-
inn án eftirlits er rakinn dóna-
skapur við íþróttina og þá leik-
menn sem tóku þátt. Það sem ætti
að gerast er að bæði dómaranefnd-
in og HSÍ ætti að biðja mína leik-
menn afsökunar á því sem þarna
fór fram. Þessi leikur fór úr bönd-
unum frá upphafi og það gengur
ekki.“
Bragi er mjög ósáttur við að
HSÍ ætli að kæra ummæli þjálf-
ara og færa þar með umræðuna
frá því sem máli skipti. „Það er
ástæðan fyrir tilurð þessara orða
sem er umgjörðin og frammistaða
dómar anna. Það hvað gekk þarna
á er grafalvarlegt mál og í raun
það sem skaðar ímynd íþróttar-
innar. Það er óþolandi að leggja
mikinn metnað í starfið og svo er
leiknum sýnd slík vanvirðing sem
raun ber vitni. Það er ekki til þess
að hvetja mann áfram í starfi,“
sagði Bragi.
Einar Þorvarðarson, fram-
kvæmdastjóri HSÍ, staðfesti að
hafa fengið kæruna inn á borð til
sín en hann skýtur henni inn á
borð dómstóls HSÍ, sem væntan-
lega tekur málið fyrir síðar í vik-
unni. Bragi segir kröfu Stjörnu-
manna skýlausa.
„Við viljum að úrslitin verði
gerð ómerk og að leikurinn verði
spilaður upp á nýtt á hlutlausum
stað,“ sagði Bragi en hefur hann
trú á því að kæran muni bera
árangur? „Það er afskaplega ólík-
legt en við vonumst til þess að
hægt sé að gera þetta af sanngirni
og handboltinn njóti vafans,“ sagði
Bragi að lokum.
henry@frettabladid.is
Viljum spila leikinn aftur
Handknattleiksdeild Stjörnunnar hefur kært umgjörð leiks kvennaliða Fram
og Stjörnunnar. Stjarnan vill að úrslit leiksins verði þurrkuð út og leikurinn
spilaður upp á nýtt. Málið fer fyrir dómstól HSÍ sem dæmir líklega fyrir helgi.
BARÁTTA Leikmenn gáfu ekkert eftir í hinum umdeilda leik Fram og Stjörnunnar.
Hér er það Stjörnustúlkan Rakel Dögg Bragadóttir sem fær hraustlegar móttökur hjá
Fram-vörninni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FORMÚLAN Fernando Alonso,
fyrrverandi heimsmeistari í
Formúlu 1, hefur ákveðið að snúa
aftur á fornar slóðir og keppa
fyrir Renault á næsta keppnis-
tímabili.
„Ég er í skýjunum með að koma
aftur til Renault. Ég ólst upp sem
ökumaður hjá liðinu og núna er
tími til þess að við
skrifum saman
nýjan kafla á
ferli mínum,“
sagði Alonso,
sem skrifaði undir
eins árs samning
við liðið. Alonso
vann stigakeppni
ökuþóra tvívegis
með Renault-liðinu,
árin 2005 og 2006, og
er sannfærður um að
ná góðum árangri
árið 2008. - óþ
Fernando Alonso, Renault:
Stefnan sett á
toppinn á ný
ÁRMÚLA 11 | Sími 568-1500 | Lónsbakka | Sími 461-1070 | www.thor.is
Veltisagir
MAKITA LF1000.
Öflug og lipur veltisög.
Frábært verð.
Sendu sms
BTC BMF
Á númerið
1900og þú
gætir unnið!
Vinningar eru DVD myndir,
varningur tengdur myndinni
og margt fleira!
SMS
LEIKUR
Vi
nn
in
ga
r v
er
ða
a
fh
en
di
r h
já
B
T
Sm
ár
al
in
d.
K
óp
av
og
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
ta
ka
þ
át
t e
rt
u
ko
m
in
n
í S
M
S
kl
úb
b.
1
49
k
r/
sk
ey
tið
.
Kemur í verslanir 6. desember!
FÓTBOLTI Íslenska karlalandsliðið
í knattspyrnu leikur vináttu-
landsleik við Slóvakíu hinn 26.
mars á næsta ári og mun leikur-
inn fara fram ytra eins og fram
kemur á heimasíðu Knattspyrnu-
sambands Íslands.
Leikurinn gegn Slóvakíu er
annar vináttulandsleikurinn sem
hefur verið staðfestur í mars, en
íslenska liðið mætir því færeyska
í Egilshöll 16. mars, auk þess sem
íslenska landsliðið leikur á alþjóð-
legu æfingarmóti á Möltu dagana
2.-6. febrúar. Ólafur Jóhannes-
son, þjálfari karlalandsliðsins,
var að vonum sáttur þegar Frétta-
blaðið heyrði í honum í gær.
„Við höfum sett okkur það
markmið að fá æfingarleiki á
eins mörgum alþjóðlegum lands-
leikjadögum og við mögulega
getum og erum að vinna hörðum
höndum að því. Þessi leikur gegn
Slóvakíu er bara eitt af þeim
skrefum sem við erum að taka í
því og þetta er bara gott mál. Við
hittum forráðamenn knatt-
spyrnusambands Sló-
vakíu í Suður-Afr-
íku á dögunum
þegar dráttur-
inn í riðla undan-
keppni Heims-
meistaramótsins
fór fram og í
framhaldi náðum
við samkomulagi
við þá. Við erum
svo að skoða
möguleikann á að
fá æfingarleik
næsta
sumar áður en Evrópumótið byrj-
ar og þá jafnvel á móti ein-
hverri þjóð sem verður að
spila þar, en það verður bara
að koma í ljós síðar,“ sagði
Ólafur, sem kvaðst þegar
vera kominn á fullt að undir-
búa sig fyrir æfingarmótið á
Möltu í byrjun febrúar.
„Ég hef verið að fylgjast
með liðunum hérna heima
og er að gera mér hugmynd-
ir um hverju ég vil ná
fram á þessu
móti. Það er
alla vega nóg
að gera og í
mörg horn
að líta, en
þetta er
bara
skemmti-
leg vinna
sem ég
kann mjög
vel við.“
- óþ
KSÍ tilkynnti í gær að íslenska karlalandsliðið mætir Slóvakíu hinn 26. mars:
Markmiðið að fá fleiri leiki
> Mourinho tekur ekki við Englandi
Knattspyrnustjórinn José Mourinho tilkynnti í gær að
hann myndi ekki taka við
enska landsliðinu en enska
knattspyrnusambandið hafði
rætt við umboðsmann hans. Í
yfirlýsingu frá Mourinho kemur
fram að hann hafi ákveðið eftir
langa umhugsun að taka ekki
starfið að sér. Talið er að enska
knattspyrnusambandið muni
næst beina sjónum sínum að Ítölun-
um Fabio Capello og Marcello Lippi.