Fréttablaðið - 11.12.2007, Blaðsíða 54
46 11. desember 2007 ÞRIÐJUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
BESTI BITINN Í BÆNUM
LÁRÉTT 2. sál 6. í röð 8. struns 9.
stækkaði 11. samtök 12. ofanálag 14.
stoðvirki 16. í röð 17. fugl 18. ennþá
20. til dæmis 21. velta.
LÓÐRÉTT 1. þjaka 3. átt 4. veiðarfæri
5. keyra 7. fíkinn 10. ílát 13. gljúfur
15. Listastefna 16. húðpoki 19. núna.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. anda, 6. rs, 8. ark, 9. jók,
11. aa, 12. álegg, 14. grind, 16. hi, 17.
lóa, 18. enn, 20. td, 21. snúa.
LÓÐRÉTT: 1. hrjá, 3. na, 4. dragnót,
5. aka, 7. sólginn, 10. ker, 13. gil, 15.
dada, 16. hes, 19. nú.
Jón Ásgeir Jóhannesson minnir á
þungarokksgítarleikara frá átt-
unda áratugnum og hefur talað
fjálglega um það hversu
gaman honum þykir að
blanda sér í glas. Og hrifn-
ing hans af þessu ljúfa lífi
varð meðal annars upphaf-
ið að ásökunum í dómsal á
Miami vegna exótísks teit-
is á skútu árið 2003 en
þeim var öllum vísað á bug
af Baugi. Þetta skrifar
blaðamaðurinn Martin Well-
er á viðskiptavef Times í
gær. Þar er Jón sagður vera
draumur sérhvers slúðurdálka-
höfundar, jafnvel þótt honum
sjálfum sé meinilla við að
vera sjálfur til umfjöll-
unar.
Weller greinir einnig
frá brúðkaupi Jóns og
Ingibjargar Pálma-
dóttur sem kallað var
brúðkaup aldarinnar
og segir að bæði sir
Tom Hunter – sem
reyndar er kallaður Tom
Farmer í greininni – og
Ólafur Ragnar
Grímsson,
forseti
Íslands,
hafi þurft
að gefa loforð, væntanlega eins
og aðrir gestir, um að halda öllu
því sem þarna fór fram leyndu.
Weller gerir einnig grein fyrir
Baugsmálinu þar sem Jón hafi
verið sýknaður af öllum ásökun-
um.
Það er síðan ef til vill skemmti-
leg tilviljun að nafni Jóns, Jón
Ólafsson, er í stóru viðtali hjá
The Independent þar sem hann
ræðir um sitt íslenska vatn.
- fgg
Jón Ásgeir eins og gítarleikari í rokksveit
HJÁ INDEPENDENT Jón
Ólafsson vekur áhuga
Breta; hann fór í
viðtal hjá The
Independent.
MINNIR Á ROKKSTJÖRNU Jón Ásgeir
er sagður vera með rokkstjörnuútlit og
draumur sérhvers slúðurdálkahöfunds.
FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
„Ég er mjög matvönd og finnst
erfitt að finna góða veitinga-
staði. En pitsurnar á Ítalíu
eru góðar. Líka humarinn á
Fjöruborðinu og humarsúpan á
Sægreifanum.“
Hildur Vala Einarsdóttir söngkona
„Listinn verður óbreyttur og telur
28 manns. En fjárhæðin er hækkuð
úr 1,6 milljónum í 1,8 á ári,“ segir
Sigurður Kári Kristjánsson for-
maður menntamálanefndar.
Þingskjal verður lagt fram í dag
þar sem gerð er tillaga um að
hækka heiðurslaun listamanna úr
125 þúsundum á mánuði í 150 þús-
und sem þýðir 20 prósenta hækkun.
Tekist var á um heiðurslaunin í
menningarnefnd. Sigurður Kári
segir að í púllíunni hafi verið mörg
nöfn en það orki tvímælis að taka
einn fram yfir annan í þessum
efnum. Mikill áhugi er á heiðurs-
laununum og segir Sigurður sím-
ann ekki hafa stoppað en fjölmarg-
ir væru að agitera fyrir hinum og
þessum. Sterkar skoðanir væru á
heiðurslaunum.
Kolbrún Halldórsdóttir situr í
menntamálanefnd og hún er ósátt.
Segir minnihlutann hafa fremur
viljað bæta tveimur við á lista í stað
þeirra tveggja sem féllu frá á árinu.
„Mikill nánasarskapur af meiri-
hlutanum. Það er verið að eyða öðru
eins á þessum fjárlögum. Lista-
menn af þeirri kynslóð sem greiddi
kannski ekki í lífeyrisjóð. Það er
kannski ekkert markmið en heiður-
inn sem eldri kynslóðin upplifir við
að fá þessi heiðurslaun er þannig
að mér finnst að þeir sem eigi það
skilið eigi að njóta þess.“
Á ýmsu hefur gengið í tengslum
við heiðurslaun listamanna sem
hafa verið umdeild enda engar
skýrar verklagsreglur til í tengsl-
um við veitingu þeirra. Gagnrýn-
endur vilja meina að þau snúist um
pólitísk hrossakaup fremur en
nokkuð annað. Frjálshyggjufélagið
hefur ályktað gegn verðlaununum
og vitnað í Milton Friedman sem
segir að ekki skuli gera góðverk á
kostnað annarra. „Listamenn eru
að jafnaði hvorki merkilegri né
ómerkilegri en aðrir. Mismunun í
formi heiðurslauna listamanna er
því röng,“ segir Frjálshyggju-
félagið.
Hvernig háttar með heiðurs-
launin er ákvarðað við 3. umræðu
fjárlagafrumvarps ár hvert.
Fréttablaðið hefur fyrir því heim-
ildir að þau nöfn sem nefnd hafa
verið í tengslum við að komast í
hinn umdeilda hóp á allra síðustu
árum séu Hafliði Hallgrímsson
sellóisti en hann er búsettur í
Edinborg, Hreinn Friðfinnsson
myndlistarmaður búsettur í Hol-
landi auk þess sem nafn Þórhildar
Þorleifsdóttur hefur borið á góma.
Slúðurvefurinn „Orðið á götunni“
fullyrðir að nafn Þórhildar sé
fram komið að undirlagi Ingi-
bjargar Sólrúnar Gísladóttur
utanríkisráðherra. Þá hefur lengi
staðið reiptog í nefndinni um Sig-
urð A. Magnússon en samkvæmt
áreiðanlegum heimildum Frétta-
blaðsins hefur Sjálfstæðisflokk-
urinn alltaf staðið í vegi fyrir því.
jakob@frettabladid.is
SIGURÐUR KÁRI KRISTJÁNSSON: ENGIR NÝIR Í HÓP HEIÐURSLAUNÞEGA
Heiðurslaun listamanna
hækka um tuttugu prósent
Heiðurslaunþegar eru 28
talsins en á árinu féllu tveir frá,
hinir dáðu og elskuðu
óperusöngvarar Guðmundur
Jónsson og Kristinn Hallsson.
Þeir sem eru á lista heiðurs-
launa listmanna eru eftirtaldir:
■ Atli Heimir Sveinsson
tónlist
■ Ásgerður Búadóttir
myndlist
■ Erró myndlist
■ Fríða Á. Sigurðardóttir
ritlist
■ Guðbergur Bergsson ritlist
■ Guðmunda Elíasdóttir
tónlist
■ Gunnar Eyjólfsson leiklist
■ Hannes Pétursson ritlist
■ Herdís Þorvaldsdóttir
leiklist
■ Jóhann Hjálmarsson ritlist
■ Jón Nordal tónlist
■ Jón Sigurbjörnsson leiklist
■ Jón Þórarinsson tónlist
■ Jónas Ingimundarson
tónlist
■ Jórunn Viðar tónlist
■ Kristbjörg Kjeld leiklist
■ Kristján Davíðsson
myndlist
■ Magnús Pálsson myndlist
■ Matthías Jóhannessen
ritlist
■ Megas tónlist
■ Róbert Arnfinnsson leiklist
■ Thor Vilhjálmsson ritlist
■ Vigdís Grímsdóttir ritlist
■ Vilborg Dagbjartsdóttir
ritlist
■ Þorbjörg Höskuldsdóttir
myndlist
■ Þorsteinn frá Hamri ritlist
■ Þráinn Bertelsson ritlist
■ Þuríður Pálsdóttir tónlist
HEIÐURSLAUNÞEGAR
ATLI HEIMIR
SVEINSSON
GUNNAR EYJÓLFSSON LEIKARI
VIGDÍS GRÍMSDÓTTIR
ÞRÁINN BERTELSSON
JÓLAGJÖFIN Í ÁR Matthías Johanness-
en, Gunnar Eyjólfsson, Vigdís Gríms-
dóttir og Þráinn Bertelsson eru meðal
þeirra sem fá 20 prósenta hækkun á
heiðurslaun sín.
ÁRMÚLA 11 | Sími 568-1500 | Lónsbakka | Sími 461-1070 | www.thor.is
Demants ...
... kjarnaborar: 42 - 400 mm
... slípibollar: 125 og 180 mm
... sagarblöð: 125 - 800 mm
Gæði og gott verð.
„Þetta gekk alveg glimrandi vel,“
sagði Garðar Thor Cortes skömmu
eftir að hafa sungið fyrir Karl
Bretaprins og Camillu Parker
Bowles í gær þegar nýju skemmti-
ferðaskipi Cunard-skipasmíða-
fyrirtækisins var gefið nafnið
Queen Victoria í Southampton.
Frú Camilla sá um að skíra fleyið
en það var óperusöngkonan Kath-
erine Jenkins sem sá um að bjóða
hina tignu gesti vel-
komna.
Aðalatriði kvöldsins
voru hins vegar hinir
nýju þrír tenórar,
þeir Alfie Boe, Jon
Christos og
Garðar Thor. Og
fluttu þeir lögin I Saw Three Ships,
Nessun Dorma og svo loks Rule
Britannia en þá slóst í hópinn
Lúðrasveit hinna konunglegu líf-
varða. Undir þessu öllu var slegið
upp glæsilegri flugeldasýn-
ingu og að sögn sjónar-
vottar var þetta mikið
sjónarspil.
Stórleikarinn Derek
Jakobi sá um að kynna
en að sögn Garðars gistu
tenórarnir um borð í skipinu tvær
nætur og lét tenórinn vel af dvöl
sinni. Sagði allt vera til alls um
borð, bæði veitingastaðir, búðir og
diskótek. Garðari gefst nú kær-
komið tækifæri til að hvíla rödd-
ina eftir mikla törn að undanförnu.
„Ég á að mæta í einhver viðtöl en
ekkert meir,“ segir Garðar. - fgg
Garðar Thor fór á kost-
um hjá kóngafólkinu
NÝIR ÞRÍR TENÓRAR
Garðar söng þrjú lög
ásamt þeim Alfie Boe
og Jon Christos undir
dynjandi flugeldasýn-
ingu.
KONUNGLEGT YFIRBRAGÐ Bæði Karl
og Camilla Parker vígðu hið nýja skip
Cunard-skipasmíðafyrirtækisins.
FRÉTTABLAÐIÐ/AFP PHOTOS