Fréttablaðið - 20.12.2007, Blaðsíða 88
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Dr. Gunna
Í dag er fimmtudagurinn 20.
desember, 354. dagur ársins.
11.21 13.25 15.30
11.37 13.10 14.43
Ég hef fastmótaðar skoðanir á jólaskrauti. Mér finnst að í
jólaskreytingu fjölskyldunnar eigi
öllu að ægja saman, stíllinn á að
vera sundurlaus, jafnvel smekk-
laus. Fimm ára heimagerður músa-
stigi má alveg hanga við hliðina á
nýjustu gullkúlunni frá Georg
Jensen. Dapurlegt finnst mér
útúrhannað jólaskraut og sú við-
leitni að allt skrautið sé í stíl. Ég
hélt að svörtu jólatrén og svörtu
kúlurnar sem voru vinsælar í
fyrra væru botninn, en nú þegar
berast fréttir af fólki sem fær
verktaka til að skreyta hjá sér
með fokdýru snobbskrauti veit ég
að það má alltaf komast neðar.
NÚ eru tímar forgengileikans.
Dót er ekki búið til til að endast.
Oftast eyðileggst dót daginn eftir
að það dettur úr ábyrgð. Minna
kostar að fá sér nýtt en að gera
við. Líttu í kringum þig. Hvað er
elsta dótið sem þú átt? Hefur eitt-
hvað fylgt þér síðan úr æsku?
Elsta dótið mitt er Sharp-vasa-
reiknir síðan 1980. Það er enn þá á
upprunalegu batteríunum sem er
örugglega kraftaverk. Ég man
greinilega að líftími batteríanna
var sagður sirka fimm ár.
GAMALT dót hefur tilfinninga-
gildi og jólaskraut er oft það elsta
á heimilum. Skrautið hefur safn-
ast saman í gegnum árin. Það
kaupir enginn allt jólaskrautið sitt
í einu. Jólaskraut hjá fjölskyldu er
eins og húðflúr á einstaklingi. Það
segir sögu hennar. Skrautið er
geymt í kössum meirihluta ársins.
Þegar það er tekið upp fer hlý til-
finning um mann, sama tilfinning-
in og maður fær þegar maður
rekst á sams konar dót og maður
átti í bernsku á fornsölu. Hjá for-
eldrum mínum sé ég gamla plast-
jólasveininn uppi á sjónvarpi.
Hann hefur birst á jólum síðan ég
man eftir mér. Ég veit af fenginni
reynslu að hann er svartur undir
brókinni. Svona minningarbrot
gera mann að því sem maður er.
MÉR finnst leiðinlegt að henda
gömlu dóti. Ég kveð það stuttlega
og þakka því fyrir samfylgdina.
Ég býst við að ég hafi erft þessa
hlutahluttekningu frá móður
minni. Ein falleg saga af henni er
að hún keypti sér einu sinni nýtt
bjútíbox á Kanarí. Hún tók samt
það gamla með sér heim af því
hún vildi ekki henda því á erlendri
grundu. Að lokum segi ég gleðileg
jól og farið vel með jólaskrautið
ykkar!
Jólaskraut
Tónlist beint í símann
Milljón íslensk og erlend lög til eignar í Vodafone
tónlistarsímann þinn
Gríptu augnablikið og lifðu núna
Tónlistarklúbburinn
• Hátt í 1.000.000 íslensk og erlend lög!
• Íslensk tónlist innifalin (almennt verð 149 kr.)
• Kauptu erlenda tónlist á einfaldan og löglegan hátt í
fyrsta sinn á Íslandi – 99 kr. lagið (almennt verð 149 kr.)
• 3ja mánaða áskrift að tónlistarklúbbnum fylgir útvöldum
tónlistarsímum (mánaðaráskrift kostar 990 kr.)
Sony Ericsson W910i
Fullkominn Walkman tónlistarspilari. Örþunnur sleðasími. 3G,
EDGE, 1 GB minniskort. Fer á netið með Vodafone live!
Fæst í “Havana Gold” og svörtu.
39.900 kr.
Skráðu þig í tónlistarklúbbinn og fáðu ótakmarkaðan aðgang að íslenskri tónlist.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
2
4
2
1
5
Komdu við í næstu Vodafone verslun og kynntu þér tónlist í símann