Fréttablaðið - 20.12.2007, Blaðsíða 82
Sir Alex Ferguson, stjóri
Manchester United, er víst ekki
búinn að gefa upp vonina um að
landa loksins Dimitar Berbatov,
leikmanni Tottenham, en United
varð að lúta í lægra haldi fyrir
Lundúnaliðinu á sínum tíma.
Samkvæmt breska dagblaðinu
Daily Mirror mun Berbatov vera
efstur á óskalista Ferguson þegar
félagsskiptaglugginn opnast í
janúar og er hann tilbúinn að láta
Louis Saha og Wes Brown ganga
upp í kaupin á búlgarska fram-
herjanum.
Wes Brown verður samnings-
laus hjá United næsta sumar og
hefur hingað til ekki viljað
framlengja samning sinn við
liðið. Hann var reyndar orðaður
við frjálsa sölu til Newcastle
næsta sumar í nokkrum bresku
blaðanna í gær.
Ferguson enn á
eftir Berbatov?
Stjarnan valtaði yfir Fram í Safa-
mýrinni í gær þegar þeir unnu níu marka sigur,
26-35, í bráðfjörugum leik. Aðeins var jafnræði
með liðunum fyrstu mínúturnar en eftir það
átti Fram ekki möguleika gegn frískum Stjörn-
umönnum.
Liðin bæði virtust tilbúin í verkefnið og vildu
ekki fara með tap á bakinu inn í jólafríið.
Stjarnan náði tveggja marka forystu, 2-4, en
góður leikkafli Fram í kjölfar þess sá þá jafna
leikinn í 6-6. Það var í síðasta skiptið sem Fram
átti eftir að sjá í skottið á Stjörnunni. Stjarnan
skoraði þá sex mörk í röð og breytti stöðunni í
6-11. Alls skoraði Stjarnan tólf mörk gegn fjór-
um það sem eftir lifði hálfleiks og leiddi fyrri
hálfleikinn, 10-18.
Garðbæingar gáfu ekkert eftir í seinni hálf-
leik og leyfðu Fram aldrei að komast nær en
sex mörk. Varnarleikur Stjörnunnar var frá-
bær og Roland í góðu formi sem gerir hvaða
liði sem er erfitt fyrir. Hinum megin stóð
Magnús Erlendsson sig ágætlega í mark-
inu en átti lítil svör við öllum dauðafærun-
um sem Stjarnan komst í.
Á lokamínútunum reyndi Fram að saxa
niður forskotið með hinni skemmtilegu
maður á mann-vörn en það
breytti engu. Roland Eradze
blandaði sér þá bara með í
sóknarleikinn og átti tvær
stoðsendingar. Undir lokin
var leikurinn orðinn
eins og æfing.
Bæði lið
gengu
upp og
niður völlinn og skoruðu að vild en sigurinn
var Stjörnumanna, 26-35.
Heimir Örn Árnason átti góðan dag eins og
margir í Stjörnunni og skoraði átta mörk.
„Leikur okkar hefur verið óstöðugur og margir
leikmenn verið misjafnir milli leikja. Nú stíga
miklu fleiri upp og það munaði um það hjá
okkur. Það voru loksins allir góðir á sama
tíma,“ sagði Heimir við Fréttablaðið eftir leik.
Ferenc Antal Buday, þjálfari Fram, sagði
mikið hafa munað um að skytturnar í sínu liði
voru daprar í leiknum. „Þetta er erfitt þegar
við erum með tvo menn frá og Filip (Kliszcyk)
að spila meiddur. Svo eru Rúnar og Jóhann
Gunnar ungir og þreyttir eftir síðasta leik og
það er mjög erfitt að vinna leiki án bakvarð-
anna. Ég er auðvitað mjög ósáttur því ég býst
við betri leik frá mínu liði en í dag spilaði
Stjarnan bara betur,“ sagði Buday.
Framarar fóru snemma í jólafrí þetta árið
Grindavík stöðvaði
sex leikja sigurgöngu KR með 86-
84 sigri í æsispennandi leik í
Grindavík í gær.
KR, sem var 68-73 yfir fyrir
lokaleikhlutann, skoraði þá ekki í
fyrstu sex mínútur og 44 sekúnd-
ur fjórða leikhlutans og á meðan
skoraði Grindavík 11 stig í röð og
komst 79-73 yfir. KR-liðið gafst
ekki upp og átti möguleika á að
tryggja sér sigurinn í lokin en
Ingibjörg Jakobsdóttir sá til þess
að stigin urðu eftir í Grindavík
þegar hún varði þriggja stiga
tilraun Monique Martin á
lokasekúndu leiksins.
Grindavík lagði
KR í Röstinni
Chelsea tók á móti Liver-
pool á Stamford Bridge í enska
deildarbikarnum í gær. Chelsea
vann 2-0 sigur með mörkum frá
Frank Lampard og Andriy Shev-
chenko og Chelsea er þar með
komið í undanúrslit keppninnar.
Fyrri hálfleikur var frekar líf-
legur framan af en báðum liðum
gekk þó illa að skapa sér opin færi.
Nokkuð fjaraði undan leiknum í
lok hálfleiksins og því markalaust
í leikhléi. Leikar æstust fljótlega í
síðari hálfleik enda talsvert meiri
hraði í leiknum. Frank Lampard
kom Chelsea yfir á 58. mínútu en
nokkur heppnisstimpill var á
markinu þar sem hann fór af
Jamie Carragher og í markið.
Aðeins tveim mínútum síðar
fékk Peter Crouch beint rautt
spjald fyrir að brjóta á John Obi
Mikel. Grófur dómur að einhverra
mati en tilburðir Crouch voru
alveg glóru- og ástæðulausir.
Liverpool reyndi að jafna í kjöl-
farið en sóknir þeirra voru mátt-
litlar. Andriy Shevchenko gerði
svo út um leikinn á lokamínútunni
með ekkert sérstöku skoti sem
markvörður Liverpool átti að
verja.
Chelsea skellti Liver-
pool á Stamford Bridge
N1-deild karla:
Iceland Express-deild kvk:
UEFA-bikarinn:
Valur vann gríðarlega
þýðingarmikinn sigur á HK, 33-26,
í N1 deild karla í gærkvöldi. Valur
náði HK að stigum en er sæti ofar
vegna betri úrslita í innbyrðisvið-
ureignum liðanna. Valur er sex
stigum á eftir toppliðinu.
Valur hóf leikinn af krafti og
komst fjórum mörkum yfir, 6-2.
Egidijus Petkcevicius, jafnan
góður markvörður HK, virtist hálf
lamaður í markinu og allt lak inn.
HK náði þrátt fyrir það að svara
fyrir sig og jafna í 8-8. Þá skiptu
Valsmenn um gír, skoruðu þrjú
mörk í röð og skömmu seinna var
munurinn aftur orðinn fjögur
mörk, 13-9. HK náði að minnka
muninn í tvö mörk en síðasta mark
fyrri hálfleiks var Valsmanna og
munurinn í hálfleik því þrjú mörk,
16-13.
Seinni hálfleikur var aldrei
spennandi. Valur skoraði þrjú
fyrstu mörkin og hélt sex marka
forystu lengst af síðari hálfleik.
HK náði aldrei að minnka muninn
í minna en þrjú mörk og frábær
endasprettur Vals varð til þess að
alls munaði sjö mörkum á liðunum
í lokin, 33-26.
Baldvin Þorsteinsson átti fínan
leik fyrir Val og var sérstaklega
drjúgur í hraðaupphlaupum þar
sem hann skoraði úr sex slíkum.
„Þetta var góður leikur. Það kom
smá bakslag gegn Fram þar sem
við spiluðum ekki okkar besta leik
og það vantaði smá kraft í okkur.
Við þjöppuðum okkur vel saman
fyrir þennan leik og ákváðum að
gefa allt í þetta. Þetta er búið að
vera langt og strangt og nú fáum
við smá hvíld um jólin enda langt í
næsta leik,“ sagði Baldvin kátur í
leiklok. „Þeir spiluðu ekki góða
sókn en á móti vorum við að spila
góða vörn og þá náðum við að
keyra hraðaupphlaup, þá erum við
góðir. Við hikstuðum aðeins í fyrri
hálfleik en við héldum áfram og
áttum mjög góðan seinni hálf-
leik.“
Með sigrinum hélt Valur lífi í
von sinni um að verja titilinn.
„Þetta var uppá líf og dauða en
þetta er svo jafnt að við eigum
fína möguleika eins og hin efstu
liðin. Það geta allir unnið alla
nema ÍBV,“ sagði Baldvin enn
fremur.
Valur vann góðan og þýðingarmikinn sigur á HK í gær og tryggði sér um leið
sæti í deildarbikarnum sem fram fer milli jóla og nýárs. Valur mátti ekki við
tapi ætli liðið sér að taka þátt í toppbaráttunni eftir áramót.